Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 5 Fréttir Páll Pétursson: Forseta Alþingis afhent mótmæli gegn frumvarpinu um stéttarfélög og vinnudeilur: Þakka ykkur fyrir stundina Til að reyna að koma í veg fyrir meiri háttar slys - sagöi Benedikt Davíösson, forseti Alþýðusambandsins Það var púað á Pál Pétursson þegar hann kom fram á tröppur Alþingishúss- ins, heilsaði Benedikt Davíðssyni og hlýddi á mótmælaályktun þings ASÍ. Páll glotti við eins og sjá má á myndinni. DV-mynd BG „Ætlarðu ekkert að segja?“ var hrópað til Páls Péturssonar félags- málaráðherra úr hópi þingfull- trúa ASÍ í gær. Hann hafði þá gert sig líklegan til að ganga inn I Al- þingishúsið eftir að hafa hlýtt á Benedikt Davíðsson, forseta ASÍ, lesa mótmælaályktun þings ASÍ gegn frumvarpi hans um stéttarfé- lög og vinnudeilur. Páll sneri við þegar í stað og sagði. „Það er mér sérstök ánægja að hitta ykkur (þá var úað) og ég vildi gjarnan að þið væruð meira sammála mér heldur en þið eruð. En úr því svo er ekki þá verður bara að hafa það (aftur var púað). Ég lít svo á að þið vinnið mikil- vægt starf og ég árna samtökum ykkar allra heilla og vænti góðs samstarfs við þau í framtíðinni. Þakka ykkur fyrir stundina." Það kom þarna afar skýrt fram að Páll Pétursson er ekki vinsæl- asti maður verkalýðshreyfingar- innar um þessar mundir. -S.dór „Við erum hér með fund á Al- þýðusambandsþingi á heldur óvenjulegum stað. En tilefnið er ærið og alger einhugur er á þinginu um að það væri svo ærið að rétt væri að brjóta upp áttatíu ára gamla hefð til þess að koma með þessum hætti á framfæri einróma skoðun hreyfíngarinnar á þeim athöfnum sem stjórnvöld nú hafa undirbúið og hætt er við að Alþingi, ef það ekki uggir að sér, fari að ráðum stjórnvalda og afgreiði. Við viljum þess vegna koma á framfæri skoð- unum okkar við Alþingi, biðja for- seta Alþingis að kynna þær hér inn í þessari stofnun til að reyna að koma í veg fyrir að hér verði meiri háttar slys.“ Þannig hóf Benedikt Davíðsson tölu sína á tröppum Alþingishús- isns þegar hann í gær afhenti Ólafi G. Einarssyni, forseta Alþingis, mótmælaályktun þings ASf gegn frumvarpi Páls Péturssonar félags- málaráðherra um stéttarfélög og vinnudeilur. Tillagan var samþykkt á þingi ASÍ með þeim hætti að hver einasti þingfulltrúi stóð upp og klappaði. Þá voru mættar tíu rútur til að flytja á fimmta hundrað þingfull- trúa niður að Alþingishúsi þar sem Ólafi G. voru afhent mótmælin. Þingfulltrúar kröfðust þess að Páll Pétursson kæmi líka fram á tröppur Alþingishúsins. Forseti Al- þingis lét sækja hann. Þegar Páll mætti skall á honum mikið baul frá þingfulltrúum um leið og hann heilsaði forseta ASÍ en Páll glotti við. Þegar Benedikt Davíðsson hafði lestið ályktunina afhenti Jón Karls- son, forseti þings ASÍ, Ölafi G. Ein- arssyni skjalið. Hann sagðist taka við því fyrir hönd Alþingis. „Efni ályktunarinnar verður kynnt af forsetastóli hér á eftir,“ sagði Ólafur G. Einarsson og notaði tækifærið til að árna þingfulltrúum heilla í þingstörfunum og óska ASÍ til hamingju með 80 ára afmælið. Að lokinni þessari athöfn fóru þingfulltrúar ASÍ aftur í rúturnar sem fluttu þá að Digranesskóla þar sem þingfundi var fram haldið. -S.dór Jón Karlsson, forseti þings ASÍ: Erum fulltruar 60 þusunda manna „Það mun hafa verið sagt hér í þessu húsi að það hafi verið ein- hverjir tveir eða þrír menn 1. maí sem hafi haft uppi andmæli við þessu margumtalaða frumvarpi. Hér er allur þingheimur Alþýðu- sambandsins, fast að fimm hundruð manns. Á bak við þennan hóp eru aftur 60 þúsund manns sem eru al- gerlega einhuga í þessari afstöðu sinni. Ég vil að þetta gangi hér á milli okkar, embættismanna þess- ara tveggja þinga, og bið þig að taka við þessu," sagði Jón Karlsson, for- seti þings Alþýðusambands íslands, þegar hann afhenti Ólafl G. Einars- syni, forseta Alþings, mótmælaá- lyktun þings ASÍ og bréf til allra al- þingismanna sama efnis á tröppum Alþingishússins í gær. -S.dór HEKLA <3E»vandaður Sportaqe 10nni á ótrúlegu ve Sportage 5 dyra h otrulegu verði! Kia Sportage 5 dyra handskiptur: 1.998.000 Kia Sportage 5 dvra sjálfskiptur: 2.141.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.