Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
13
Fréttir
Stefnir í metár
hjá Bláa lóninu
DV; Suðurnesjum:
„Það var geysilega góð aðsókn hjá
okkur í vetur. Miklu fleiri gestir
hafa komið til okkar fyrstu fjóra
mánuöi þessa árs miðað við sama
tíma í fyrra. Auking hátt í 25% Við
erum mjög sáttir við þessa fjölgun,"
sagði Grímur Sæmundsen, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins, í sam-
tali við DV.
Gott tíðarfar í vetur hefur orðið
til þess að gestum hefur fjölgað
mjög í Bláa lóninu og virðist stefna
í gott ár í þar. Gestir lónsins hafa
getað flatmagað að undanfórnu og
sleikt sólina. í fyrra fóru 125 þúsund
gestir í lónið, en miklu fleiri gestir
koma til að skoða athafnasvæði
lónsins og taka myndir af lóninu.
ÆMK.
Fréttamaður DV rakst á þennan fríða hóp um helgina.
ÆMK.
Sumarskólinn sf.
i í
s
Tónlistarhefðin rík á Seyöisfiröi
Skólinn hefet 31. maí og lýkur 3. júlf. Kennt verður á kvöldin
í Háskóla íslands.
Skólagjald er kr. 12.900 fyrir einn áfanga, en kr. 18.900 fyrir
tvo áfanga. Nemendur mega mest taka tvo áfanga.
Innritun verður virka daga frá 20.-29. maí kl. 16:30-19:00
f Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi.
Nánari upplýsingar fást í símum 565-6484 og 564-2100.
DV, Seyðisfirði:
Alla öldina hefur löngum verið
miklu blómlegra tónlistarlif á Seyð-
isfirði heldur en stærð bæjarins
gæfi tilefni til að álykta að væri.
Ástæðan er sú að hér hafa löngum
starfað og dvalið snjallir listamenn
á þessu sviði. Engin þörf að nefna
nöfn. íbúarnir og raunar þjóðin öll
hefur notið og nýtur þess ennþá.
Núverandi skólastjóri Tónlistar-
skólans er Einar Bragi Bragason og
hefur unnið hér gott starf í tvo vet-
ur. Með honum kenna þar María
Gaskell, ensk stúlka, og Aðalheiður
Borgþórsdóttir. Þau hafa nú á vor-
dögum efnt til hinna árlegu vortón-
leika skólans og voru þar efnilegir
tónlistarmenn á ferð, sem báru því
vitni að hafa haft góða leiðsögn.
Á vegum skólans var haldið mót
með þátttöku allflestra bamakóra á
Austurlandi. Það tókst mjög vel og
var Seyðfirðingum til sóma. Kór-
stjórinn Aðalheiður Borgþórsdóttir
annaðist allan undirbúning og hafði
af þessu mestan veg og vanda.
Um síðustu helgi var haldið hér
lúðrasveitamót með þátttöku lúðra-
sveita frá Neskaupstað og Seyðis-
firði. Þær eru auk Hornafjarðar
einu starfandi lúðrasveitir á Aust-
urlandi. Hinir ungu blásarar höfðu
af þessu bæði lærdóm og skemmtun
enda margt sér til gamans gert.
J.J.
Hólmavík:
Mikill stuðningur við björgunarsveitina
DV, Hólmavík:
Eins og undanfarin sumur verður Sumarskólinn sf. með
kennslu í fjölmörgum firamhaldsskólaáföngum. Yfir 40
áfangar verða í boði. Kennt verður samkvæmt námskrá
Menntamálaráðuneytisins. Allir áfangar eru matshæfir.
Aðstandendur björgunarsveitar-
innar Dagrenningar á Hólmavík
hafa ekki setið auðum höndum síð-
ustu missirin. Þeir hafa verið að
endurbæta og innrétta fyrir starf-
semi sína eitt af elstu húsum staðar-
ins, svonefnt Magnúsar Lýðssonar
hús. Því starfi er langt frá því að
vera lokið.
í vor festi björgunarsveitin kaup
á gúmbjörgunarbáti af Godias gerð.
Hann er með 40 ha. vél og ganghraði
er á milli 20 og 30 mílur. Báturinn
er með þeim staðlaða búnaði sem
Slysavarnafélag íslands ætlast til að
sé til staðar í slikum bátum. Kostaði
báturinn tæpa eina milljón króna.
Ýmsar fjáröflunarleiðir eru við-
hafðar til að kosta viðhald á húsi og
kaup á búnaði. Margir tóku þátt i
því, ungir sem aldnir. Þrjú börn
héldu hlutaveltu til fjáröflunar og
gáfu alla innkomuna til kaupa á
björgunarbátnum.
GF
Þau héldu hlutaveltu, frá vinstri: Gunnar Traustason, Tinna Rut Björnsdóttir
og Unnur Ingimundardóttir.
DV-mynd GF
SeyöisQöröur:
Nýtt fyrirtæki
með hópferðabíla
DV, Seyðisfirði:
Nýlega var stofnað hér einka-
hlutafélag um rekstur, sem hlaut
nafnið Ferðaþjónusta Austurlands,
og er starfssviðið fólksflutningar á
landi og bílaviðgerðir. Ferðaþjón-
ustudeild hjá vélsmiðjunni Stáli
hefúr áður sinnt slíkri þjónustu.
Formlega var stofnunin kunn-
gjörð í smáfagnaði 18.maí á Öldu-
götu 16, en það mun vera elst
þeirra húsa í kaupstaðnum, sem
ennþá eru í daglegri notkun. Þetta
hús hefur gegnt margs konar hlut-
verkum töluvert á aðra öld. Senni-
lega er húsið einna þekktast undir
- eða af nafninu Meyjaskemman -
sem það hlaut á síldarárunum á
sjöunda áratugnum.
Þama bjuggu lengi sildarstúlk-
umar af Haföldunni þau árin þeg-
ar ennþá var stemming í síldar-
vinnunni og þarf engum getum að
leiða að því, að svo sannarlega
blómstraði rómantíkin urídir hlíð-
um Bjólfsins ekki síður en í
Hvanneyrarskálinni.
Aðaleigendur Ferðamiðstöð
Austurlands era Austfar, Theódór
Blöndal, bræðurinir Bergur, Emil
og Sigurður Tómassynir og Sig-
mar Svavarsson. Theódór er for-
maður stjómar en Bergur fram-
kvæmdastjóri. Hlutafé er 5 millj-
ónir. Bílaeign nú er 5 fólksflutn-
ingavagnar með 160 sættun. Starfs-
menn em 5 og er starfsemin haíin.
J.J.
895 KR
VERH
IMBBÆKUR
handa fólki sem kann
að meta valdar bæknr
Ótrúlega ódýrar og
ennþá ódýrari í áskrift
er
550 5000
URVALS
sogur
im m msm
SABA ÓE
SANNKALLAÐAR
ÚRVALSBÆKUR