Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
11
I
»
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
undirheimar
um hans. Þarna bætist viö eðli efna eins og blýs. Hins
vegar er engu líkara en Rúrí hafi staðnæmst fyrr en
skyldi í eðlisfræðitilraunum sinum. Skammtakenningin
er t.d. einungis óljóst inni í þessum vangaveltum með
því að listakonan talar um að það skipti máli „hver at-
hugandinn er“. I þessu sambandi hefði verið langtum
djarftækara og árangursríkara í ljósi langrar vinnu
listakonunnar með viðfangsefnið að taka athugandann
sérstaklega fyrir með tilliti til skammtakenningarinnar
og þess hvernig hún hefur breytt hugmyndum nútíma-
manna um afstæði, hvernig athugandinn breytir við-
fangsefninu efnislega með því einu að taka það til um-
hugsunar í andanum.
Tærleikinn til staðar
Verkin sex í Ingólfsstræti 8 eru hins vegar sett fram
á mjög skilmerkilegan hátt og virka vel í hinu einfalda
rými. Frumforsendur afstæðishugmyndarinnar ganga
eftir sem áður vel upp í einfaldleika sínum, einkum í
verki nr. 1, Fimm metrar. Askjan „Time Relativity-
Cosmos" bætir svo upp efnislega naumhyggju salarins
sem inniheldur einungis tommustokka og tilskorið
grjót. Tærleikinn er til staðar en óljóst er hvort útsýni
sé til allra átta hjá Rúrí.
Lauren Piperno
í Galleríi Úmbru hefur bandaríska listakonan Lauren
Piperno komið fyrir tólf ljósmyndum af svokölluðum
„cigarette girls“, konum er selja ýmislegt smálegt á veit-
ingahúsum og þar sem mannsafnaður er eftir miðnætti
þar vestra. Sölukonur þessar klæða sig upp á ærið
skrautlega og dansa jafnvel eða hafa í frammi smágjöm-
inga viðskiptavinum sínum til ómældrar ánægju og fá
Miss Kitty, ein Ijósmynda Lauren Piperno á sýningunni í
Gdllert Úmbru.
þær vísast meiri viðskipti út á atriðin. Lauren Pipemo
mun hafa tekið myndir af ýmsum undirheimahópum í
skemmtanaiðnaðinum í Bandaríkjunum og hefði verið
áhugavert til kynningar á ljósmyndaranum að hafa ein-
hverjar þeirra bóka fyrirliggjandi á sýningunni sem
hún á verk í samkvæmt upptalningu í sýningarskrá. Á
síðasta ári kynnti hún sig þó að nokkru hérlendis með
því að taka myndir af íslenskum konum. Þær myndir
eiga vonandi eftir að rata hingað á sýningu þótt síðar
verði. Ljósmyndir Lauren Piperno bera með sér að vera
gerðar í heimildarskyni. Þær eru í lit og stækkaðar upp
þannig að grófleikinn kemur í ljós. Pipemo leitast jafn-
an við aö skapa dýpt í myndflötinn með því að hafa fólk
í forgrunni en oftar en ekki er hreyfíng á því þannig að
dýnamík og líf er ríkjandi í myndunum. Sýningin er
pinnuð upp á einfaldan hátt og hæflr það vel svo
hraðsoðnum myndum.
1 • •<•
skrokkur sagaður í
grillsneiðar, ca 11 kg í
pakka, 580 kr. kílóið
Frí heimsending á höfuðborgarsvæðið
..• . . . . . M _ *•» _ _ _
Upplýsingar í síma 482 2798
- Rúrí í Ingólfsstræti 8 og Lauren Piperno í Úmbru
í skrá sýningar sinnar í Ingólfsstræti 8 ræðir Rúrí um
að allt sé afstætt. „Upplifun og skilningur á tilverunni
veltur á því frá hvaða stað og hvaða sjónarhomi, eða af-
stöðu, athugun er gerð, og jafnframt því hver athugand-
inn er. Á sama hátt getur einfalt og staðlað gildi, metr-
inn, tekið á sig margar myndir." í framhaldi af þessu til-
tekur Rúrí fimm gildi; þau sem em stöðluð, altæk,
fjöldaframleidd, tilfinningaleg eða forunnin. Listakonan
hefur kannað gildi metrans nú um fimm ára skeið og
sýnt afrakstur athugana sinna á fjómm sýningum.
Afstæði athugandans?
Tvær hinar fyrstu, í Nýlistasafninu 1991 og á Kjar-
valsstööum 1992, sýndu vítt svið tilrauna og tilvísana i
efni, tíma og form frá öndverðu og til okkar daga,
grundvallarhugmyndir að baki mælieiningum nútím-
ans sem eiga sér rætur í manninum sjálfum og hlutföll-
^úðkaupsveislur—úfisamkomur — skemmtanir—tónleikar — sýningar — kynningar og fl. og II. og fl.
i
Risatjöld - veislutjökL
iO°
..og ýmsir fylgihlutir
wm
8 [~~2J V
EkJd treysta á veðrið þegar
skipuleggja á eftirminnilegan viðburo -
Tryggið ykkur og leigið stórt tjald á
staðinn - það marg borgar sig.
Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2.
Einnig: Borð, stólar, tjaldgólf og
tjaldhitarar.
alelga skáta
..meo skótum á heimavelli
simi 562 1390 •fax 552 6377
DV
Menning
Afstæði og
miÐOSöLön
OPÍn Ki. 15-19
rtEmo món.
SÍmÍ 551-1475
ísLEnsKfl óPEKen
HY OPERJ EFtÍRjÓn ÁSCEÍR^SOn
jum UPPSELt OC 4. jOní UPPSELt
nÆS+u SYnincoR^7. júm' 8. júm' n. jOní oc 14. júm'
Fréttir
Egilsstaðir:
Kveðið við kútinn
DV, Egilsstöðum:
„Skrauta var mikil uppá-
haldskýr heima en hafði
einn galla. Henni þótti
þvottur mikið sælgæti og át
hann af snúrunum. Eitt
sinn hugðist ég venja
Skrautu af þessum ósið,
stal viskustykki, batt snæri
um eitt hornið og bauð
Skrautu til átu.
Hún gleypti við agninu
og át stykkið með sýnilegri
velþóknun en þó eins og
svolítið hissa á þessum
óvæntu gæðum. Ég hélt í
spottann og hófst nú
kennslan. Dró ég bleðilinn
upp úr kúnni með erfiðis-
munum en hún gleypti
hann aftur og gekk svo
lengi að .Skrauta át visku-
stykkiö og ég dró það upp.“
Þannig byrjaði ein sagan
hans Konna. Hákon Aðal-
steinsson, hinn þjóðkunni
hagyrðingur, hefur verið
að skemmta Austfirðing-
um að undanförnu með
skemmtisögum, bæði í
bundnu og óbundnu máli.
Honum til aðstoðar er
hljómsveit Friðjóns Jó-
hannssonar, XD3, og
syngur hún gamankvæðin
eftir að Hákon hefur skýrt
tilurð þeirra.
Þeir voru með skemmt-
un í Hótel Valaskjálf á Eg-
ilsstöðum á dögunum sem
var fjölsótt og undirtektir
slíkar aö salurinn lá tiðum
í krampakasti. Hákon og
félagar hafa skemmt í Vé-
garði, Grímsey noröur, á
Borgarfiröi og Hamraborg
í Berufiröi og þeir eiga eft-
ir að heimsækja marga
staði á Austurlandi.
-SB
Hákon flytur söguna af Skrautu. DV-mynd Sigrún
HVORA LEIÐ MEÐ FLUGVALLASKATTI
NU SELT A ISLANDI
WIHLBORG REJSER,
SÍMI: 567 8999
Hvaö heitir
sonur
hóteleigandans?
Svar;_____________
Sendið alla 4 seðlana til:
Krakkaklúbbur DV Þverhoiti 11
105 Reykjavík
Merkt „APASPIL“
NAFN.
DANMORK
KAUPMANNAHÖFN
Takmarkaður sætafjöldi
9.900
L