Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1996, Page 18
42
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
Fréttir r>v
Dverglamb í
Þorlákshöfn
DV, Selfossi:
„Þegar ég kom um morguninn til
að kíkja á kindumar og hestana var
kindin búin að bera. Lambið var
komið á lappirnar og hafði fest
hausinn milli rimla - það var svo
lítið. Ég hef aldrei séð svona lítið
lamb áður en það er hresst og sýgur
mömmuna af krafti. Það verður
gaman að fylgjast með því - sjá
hvernig það dafnar," sagði hesta-
maðurinn og fjárbóndinn í frístund-
um, Sigurgeir Kristinsson í Þorláks-
höfn, við DV.
Það fæddist hjá honum dverg-
lamb fyrir nokkrum dögum og heils-
ast vel. Ærin var að bera í fyrsta
sinn og var einlembd og lambið svo
örsmátt. Sigurgeir er Vestmannaey-
ingur en fluttist til Þorlákshafnar
og vinnur þar nú á trésmíðaverk-
stæði.
-KE
Formaður ÍA, Jón R. Runólfsson,
nælir heiðursmerkinu í barm Guð-
jóns Finnbogasonar en Hallur
Gunnlaugsson bíður eftir sínu. Til
hægri eru Guðbjartur Hannesson,
skólastjóri og bæjarfulltrúi, og Ellert
B. Schram, forseti ÍSÍ.
DV-mynd Daníel
íþróttabandalag Akraness:
Tveir nýir heiD-
ursfélagar hjá ÍA
DV, Akranesi:
í afmælishófi Iþróttabandalags
Akraness, sem heldur upp á 50 ára
afmælið á þessu ári, voru tveir góð-
kunnir Skagamenn gerðir að heið-
ursfélögum íþróttabandalagsins,
þeir Guðjón Finnbogason og Hallur
Gunnlaugsson.
Guðjón var um árabil einn af
bestu knattspyrnumönnum lands-
ins, lék með landsliðinu og var í
gullaldarliði Skagamanna. Þá hefur
Guðjón verið þjálfari hjá ÍA og átt
sæti í stjórn knattspyrnufélagsins.
Hann var einnig um árabil meðal
fremstu knattspyrnudómara lands-
ins.
Hallur Gunnlaugsson hefur verið
sundkennari í 42 ár og verið í stjórn
sundfélagsins. Hann hefur átt mik-
inn þátt í uppbyggingu sundíþrótt-
arinnar á Akranesi og þjálfað
marga af afreksmönnum sundsins
þar.
Þrír voru fyrir sem heiðursfélag-
ar hjá ÍA, Ríkharður Jónsson, Þórð-
ur Þórðarson og Málfríður Þor-
valdsdóttir þannig að í dag eru heið-
ursfélagarnir 5. -D.Ó.
Nýja Apótekið
DV-mynd Daníel Ólafsson.
Akranes:
Apótekið flutt
á sextugs-
afmælinu
DV, Akranesi:
Nýverið flutti Akranessapótek af
Suðurgötu 32 í nýtt og glæsilegt 260
m2 húsnæði á Kirkjubraut 50 á
Akranesi. Apótekið er á tveimur
hæðum og er allt hið glæsilegasta.
Að sögn Gylfa Garðarssonar lyfja-
fræðings var gamla húsnæðið mjög
óhentugt, m.a. fyrir þá sem hafa
skerta hreyfigetu og svo voru bíla-
stæði fá.'Nýja húsnæðið er mjög vel
staðsett og nóg er af bílastæðum.
Á neðri hæð húsnæðisins er af-
greiðsla og vörumóttaka en á efri
hæð er kaffistofa, lager og skrifstof-
ur. Sjö manns starfa við apótekið
sem á þessu ári heldur upp á sex-
tugsafmælið. Apótekari er Gylfi
Garðarsson. -D.Ó.
Jara og Einar duttu í lukkupottinn!
Smáaugiýsingar
550 5000
Sigurgeir með lambið en Karen Heimisdóttir, til vinstri, og Linda Heimisdótt-
ir fylgjast með. DV-mynd KEi
Jara og Einar voru svo heppin að vera valin úr
fjölda umsœkjenda þegar DV auglýsti eftir fólki í
brúðkaupshugleiðingum.
Þau hafa ákveðið brúðkaupsdaginn 17. ágúst nk.
og hafa fest kaup á íbúð sem þau fá afhenta nú
í júní. Jöru og Einar vantar allt milli himins og jarðar.
DV œtlar að gefa þeim 300.000 kr. í brúðargjöf til
að byggja upp framtíðarheimili sitt með hlutum
sem þau finna í gegnum smáauglýsingar DV.
Nú á ncestunni munu þau Jara og Einar fara að
skoða smáauglýsingarnar af fullri alvöru.
Þau vilja eignast: sófaborð, sófasett, borðstofu-
borð og stóla, hornskáp með gleri, fataskáp,
náttborð, tölvuborð, baðskáp, standlampa,
sjónvarp, örbylgjuofn, blóm o.fl.
Við munum fylgjast með þeim og upplýsa lesendur
DV um árangur þeirra!
Nú er tími til að selja!
oWtmil lihim/0s