Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1996
Utlönd
9
DV
Bandaríska söngkonan Liza Minelli lét viröingu fyrir Pavarotti ekki trufla sig á útitónleikum á Ítalíu í gærkvöldi og
söng lagið New York, New York með miklum tilþrifum. Símamynd Reuter
Stjörnur óperu og popps meö tónleika fyrir bosnísk börn:
Liza Minelli hafði
í við Pavarotti
- David Bowie er einn verndara söfnunarinnar
S.tjörnur óperu, rokks og popps
tóku höndum saman í Modena á
Ítalíu í gærkvöldi og komu fram á
útitónleikum sem haldnir voru til
að safna fé handa stríðshrjáðum
börnum í Bosníu. Stórtenórinn
Luciano Pavarotti stóð fyrir tónleik-
unum en þetta eru aðrir tónleikam-
ir sem hann heldur í þessu augna-
miði á skömmum tima. Stjörnur
eins og Eric Clapton, Elton John,
Sheryl Crow og Liza Minelli stigu á
svið með Pavarotti við mikla hrifn-
ingu 15 þúsund tónleikagesta.
Flestar stjarnanna úr heimi
Stuttar fréttir
Vilja sættast
Leiðtogar ESB-ríkja vonast til
að ná sáttum um nautakjötsdeil-
una við John Major á fundi í dag
en Major segist ekki hafa í
hyggju að biðjast afsökunar á
truflunum þeim sem Bretar hafa
valdið í Evrópustarfmu.
Haldi sig við samninga
Leiðtogar arabaríkja hvöttu
Egypta til að hýsa fund þar sem
ný ríkisstjórn ísraels yrði ki-afin
um að halda sig við það friðar-
ferli sem væri í gangi.
Tók niður hringinn
Díana prinsessa tók trúlofun-
arhringinn sem Karl gaf henni á
sínum tíma af sér í fyrsta skipti
frá brúðkaupi hennar og Karls.
Söknuðu bresk blöð hringsins
sem kostaði um 2,5 milljónir
króna.
Halda sínu striki
Mexíkómenn segjast munu
gera hvaðeina til að vernda við-
skiptahagsmuni sína á Kúbu en
þeir eru í uppnámi eftir meiri
viðskiptahömlur af hálfu Banda-
ríkjanna. Reuter
rokks og popps virtust bera ótta-
blandna virðingu fyrir Pavarotti á
sviðinu en söngkonan Liza Minelli
var ekkert að spá í slíkt heldur lét
vaða í hið fræga lag New York, New
York svo Pavarotti mátti hafa sig
allan við. Söngkonan Cheryl Crow
kom síðan flestum á óvart þegar
hún söng dúett með Pavarotti úr óp-
erunni Don Giovanni eftir Mozart.
„Ég komst að því að Cheryl hafði
upphaflega fengið klassíska þjálfun
sem sópransöngkona og fékk hana
því til að taka þennan dúett með
mér,“ sagði Pavarotti himinlifandi
eftir tónleikana.
„Okkur tónlistarmönnum ber að
hjálpa til við endurreisnarstarfið og
taka þátt í sorginni i Bosníu," sagði
Eric Clapton áður en hann tók lagið
Holy Mother með Pavarotti.
Aðspurður hvers vegna svo marg-
ar stjórstjörnur hefðu fallist á að
vera með sagði Pavarotti að þær
hefðu frétt af velgengni síðustu
styrktartónleika. Geislaplata frá
þeim hefur selst í yfir einni milljón
eintaka. Rennur allur ágóði til
bresku góðgerðarsamtakanna War
Child sem stofnuð voru af tveimur
blaðaljósmyndurum sem upplifðu
stríðshörmungarnar í Bosníu. Auk
Pavarotti eru þeir Brian Eno og
David Bowie, sem söng í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi, verndarar
þessa átaks. Reuter
Deilt um persónuupplýsingar frá FBI:
Dularfullur nafnalisti
ekki komið I leitirnar
Listinn sem starfsmenn
Bills Clintons í Hvíta hús-
inu notuðu þegar þeir öfl-
uðu sér rúmlega fiögur
hundruð skýrslna frá al-
ríkislögreglunni FBI hefur
ekki fundist og leyniþjón-
ustan hefur ekki hugmynd
um hvaðan hann kom, að
því er bandarískir embætt-
ismenn sögðu í gær.
Embættismenn leyni-
þjónustunnar og FBI sögðu að þeir
hefðu engar sannanir fyrir öðru en
því sem haldið er fram í Hvíta hús-
inu að skjölunum hafi verið safnað
saman vegna mistaka.
Deilan snýst um hvort Hvíta hús-
ið leitaði eftir og fékk með óeðlileg-
um hætti síðla árs 1993 og snemma
árs 1994 viðkvæm skjöl frá FBI um
408 einstaklinga, þar á meðal þekkta
repúblikana eins og James Baker,
fyrrum utanríkisráðherra, og Ken-
neth Duberstein, sem starfaði í
Hvíta húsinu í stjómartið
Ronalds Reagans.
í Hvíta húsinu er sagt að
listinn hafi verið settur
saman til að ákvarða hverj-
ir fengju aðgangspassa að
forsetaskrifstofunum.
Leyniþjónustan sér alla-
jafna um það en þar á bæ
segjast menn ekki hafa átt
neinn þátt í að biðja um
skjölin frá FBI.
Janet Reno, dómsmálaráðherra
Bndaríkjanna, fór fram á það í gær
við Kenneth Starr, sérstakan sak-
sóknara í Whitewater-málinu, að
hann rannsakaði hvort starfsmenn
Hvíta hússins hefðu fengið skjölin á
ólöglegan hátt.
Nokkrir öldungadeildarþingmenn
repúblikana sögðu að Clinton og
starfsmenn hans hefðu verið á hött-
unum eftir upplýsingum sem þeir
gætu notað til að skaða repúblikana.
Reuter
Janet Reno.
Raaboh
pumB' ^
Rucanor^T
sportvöruverslun landsins
2 manna Camouflage tjald,
verö aöeins kr. 3.900,
stgr. kr. 3.705.
Golfvörur og golffatnaöur:
golfgallar, dömu og herra,
fleece windbreaker peysur,
buxur, golfbolir, kylfur,
boltar, kerrur, pokar og fl.
Símar: 553 5320
568 8860
Ármúla 40
Verslumn
Utvistarfatnaöur
og feröavörur.
Vandaöur, vatnsvarinn
útivistarfatnaður, gönguskór,
bakpokar, svefnpokar, vind-
sængur, sokkar, legghlffar,
nærfatnaöur o.fl.
Vindsæng,
sjálfuppblásin,
verö aðeins kr. 4.900,
stgr. kr. 4.655.
Hengirúm,
verö kr. 3.200,
grind fyrir hengirúm,
kr. 6.700.
/VI4RKIÐ
ALVÖRU SFORTVERSLUN
Allar almennar sport- og útivistarvörur, reiðhjól og æfingatæki
Göngu- og hjólatjald,
2 manna, aðeins 2 kg,
vandaö og vatnsvariö,
kr. 8.900, stgr. kr. 8.455.
íþróttafatnaður,
sundfatnaöur,
íþróttaskór,
bómullargallar,
sokkar, úlpur og margt fleira.
Ódýrir íþróttagallar:
barna frá kr. 3.980
fullorðins frá kr. 4.500.