Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Page 32
'kJP
l'v&jkiMw
1. mzmmgur
Vertu viSbúin(n) vinningi
Vinningstölur
21.6/96
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö i DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
m550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ1996
Heimsfrægur
markmaður
á íslandi
Efni Helgarblaðs DV verður að
venju mjög fjölbreytt. í blaðinu
verður einkaviðtal við Lee Suk-huy-
ang, einn frægasta handboltamark-
mann í heimi. Hann mun leika með
liði FH í vetur og hefur fundið ást-
ina á Islandi. Rætt verður við
homma og lesbíur sem ætla að gifta
sig í næstu viku. Einnig verður
spjallað við rússneska stúlku sem
dúxaði í íslensku og stærðfræði og
stóð sig frábærlega á verslunarprófi
í Verslunarskóla íslands. Forseta-
frambjóðendurnir eru teknir tali í
eldhúsinu og margt fleira fróðlegt
og skemmtilegt verður í blaðinu.
-em
Akureyri:
Átta fluttir
á slysadeild
DV, Akureyri:
Átta manns voru fluttir á slysa-
deild á Akureyri um miðnætti eftir
geysiharðan árekstur tveggja fólks-
bifreiða á Leiruvegi.
Tildrög árekstursins voru þau að
bifreiðunum var ekið í sömu átt og
hugðist ökumaður þeirrar sem á
undan fór snúa við á veginum en
ökumaður hinnar bifreiðarinnar
ætlaði að aka fram úr. Fimm úr
annarri bifreiðinni voru fluttir á
slysadeild, þrír úr hinni. -gk
Feðgar urðu
undir þangi
Feðgar slösuðust þegar þeir urðu
undir þangi í Þörungaverksmiðjunni
á Reykhólum í gær. Faðirinn
lærbrotnaði en sonurinn tognaði á
fingrum og á fæti en meiðsli hans
eru ekki alvarleg. Þyrla Landhelgis-
gæslunnar flutti eldri manninn suð-
ur en hún var kölluð út þar sem bið
varð á að flugvél kæmist vestur. -gk
Bíræfnir þjófar fóru inn á heimili í miðbænum:
Létu greipar
sópa meðan
fólkið svaf
Rósa Kristíp Stefánsdóttir og Ragnar Hilmarsson benda á gluggann þar sem brotist var inn í íbúð þeirra.
DV-mynd S
- þökkum guði
að við vöknuðum ekki, segir konan
„Þetta er sannarlega hræðileg
lífsreynsla og ég viðurkenni að við
erum skíthrædd eftir þennan at-
burð. Við fórum að sofa um mið-
nætti og vöknuðum ekki fyrr en
um klukkan hálfsjö um morgun-
inn. Þá sáum við að útidyrnar
voru galopnar. Þegar okkur var
litið inn í stofuna var búið að
hreinsa þar til og Stela m.a. græj-
unum, tveimur úrum og peninga-
veski með nokkur þúsund krónum
í,“ sagði Rósa Kristín Stefánsdótt-
ir í samtali við DV um atburö í
fyrrinótt þegar brotist var inn í
íbúð hennar að Vífilsgötu. Hún
var í íbúðinni ásamt sambýlis-
manni sínum, Ragnari Hilmars-
syni og tveggja ára syni. Að sögn
Rannsóknarlögreglu ríkisins
höfðu innbrotsþjófarnir ekki náðst
í gærkvöldi en unnið er að rann-
sókn málsins. RLR telur að
þjófamir hafl verið tveir eða fleiri.
„Þjófarnir fóru frekar snyrtilega
um og er það sennilega ástæðan að
við vöknuðum ekki. Ég þakka guði
fyrir að vð vöknuðum ekki því það
er ekki hægt að vita hvað hefði
gerst ef við hefðum staðið þá að
verki. Lögreglan segir að þeir hafí
verið með eindæmum bíræfnir að
brjótast inn í svo litla ibúð meðan
fólk er í ibúðinni. Lögreglan telur
að þeir hefðu' eflaust einskis svifist
ef við hefðum komið að þeim. Það
var erfitt að sofna í nótt en það
fyrsta sem við gerðum var að
panta þjófavamarkerfi og það hef-
ur nú verið sett upp í íbúðinni,"
sagði Rósa Kristin.
Tröppurnar losnuðu frá húsveggn-
um og féllu yfir manninn.
DV-mynd S
Banaslys viö
Fossvogskirkju
Maður lét lifið við vinnu sína við
Fossvogskirkju um hádegisbilið í
gær. Var hann að vinna við tröppur
við hús starfsmanna kirkjugarðsins
þegar slysið varð.
Búið var að grafa frá tröppunum
og féllu þær ofan á manninn. Reikn-
að var með að tröppurnar væru
járnbentar við húsvegginn en svo
reyndist ekki vera.
Slökkvilið og lögregla aðstoðuðu
við að ná manninum undan tröpp-
unum en talið er að hann hafi látist
samstundis.
-GK
Norska viðskiptablaðið:
Lúsarlaun
á íslandi
- ástæða fiskkaupa í Noregi
„Launin á íslandi geta verið
ástæða þess að við höfum efni á að
kaupa fisk hér í Noregi," segir
Björgólfur Jóhannsson, hjá Útgerð-
arfélagi Akureyrar, í samtali við
norska viðskiptablaðið Dagens Nær-
ingsliv.
í blaðinu er verið að ræða um
hvernig á því standi að íslendingar,
sem eru að keppa á sömu fiskmörk-
uðum og Norðmenn, hafa efni á að
kaupa ferskan fisk í Noregi, flytja
hann til íslands og vinna hann þar.
Fyrirsögn greinarinnar í blaðinu er
„Lúsarlaun á Islandi".
Björgólfur segir að laun í fiskiðn-
aði á íslandi séu á milli 400 og 500
krónur á tímann. í Noregi eru með-
allaun í fiskvinnslu 930 krónur ís-
lenskar á tímann. Og blaðið ræðir
við Stefán Skjaldarson, i íslenska
sendiráðinu í Ósló. Hann segir að
laun á íslandi séu að meðaltali um
45 prósentum lægri en í Noregi.
Það kemur fram í greininni að
Norðmenn eru mjög pirraðir yfir
því að verið er að selja íslendingum
ferskan fisk og auðvelda þeim
þannig að keppa við Norðmenn á
fiskmörkuðum.
-S.dór
L O K I
Veörið á morgun:
Hæg norð-
vestlæg átt
Á morgun verour fremur
hæg norðvestlæg eða breytileg
átt. Allra vestast á landinu
verður skýjað að mestu og
sums staðar dálítil súld, ejnk-
um við ströndina. Annars verð-
ur yfirleitt léttskýjað. Hiti verð-
ur á bilinu 7 til 10 stig, hlýjast í
innsveitum en kaldast á annesj-
um norðan til á landinu.
Veðrið í dag er á bls. 36
Verð kr.
1.199.000.-
Bílheimar ehf.
Sævarhöföa 2a Sími: S25 9000