Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Síða 18
26
Föstudagur 21. júní 1996
íþróttir unglinga
r>v
Knattspyrna yngri flokka kvenna í Vestmannaeyjum:
Vel heppnað pæjumót
-Lárusarbikarinn afhentur í fyrsta sinn og meistaratitlarnir dreifðust systurlega
DV, Vestmaimaeyjum:
Mjög vel heppnuðu pæjumóti
Þórara í knattspyrnu yngri flokka
lauk í Vestmannaeyjum á sunnu-
dag. Þátttakendur voru um 1000 sem
er mesta þátttaka í mótinu til þessa.
Úrslitaleikirnir voru spilaðir í
glampandi sólskini við mjög góðar
aðstæður. Mótinu lauk síðan með
glæsilegri kvöldvöku.
„Þrátt fyrir að skipst hafl á skin
og skúrir á Pepsí-pæjumóti Þórs þá
gekk þetta í heildina alveg ljómandi
vel. Stelpumar, þjálfarar og for-
eldrar héldu ró sinni þrátt fyrir
rigninguna og höfðu góða skapið
ávallt að leiðarljósi,” sagði Magnús
Bragason mótsstjóri.
Mikil barátta
Hart var barist í úrslitaleikjunum
og sáust oft frábær tilþrif. Mesta
dramatíkin var í úrslitaleiknum í 4.
flokki B-liða milli ÍBV og KR þar
sem þurfti vítaspyrnukeppni til að
útkljá úrslit en ÍBV sigraði.
í 3. flokki A-liða var æsispenn-
andi úrslitaleikur milli Vals og
Grindavíkur og skoraði Valur sig-
urmarkið undir leikslok. Sömu
félög áttust við hjá B-liðum en þar
sigraði Grindavík.
í 6. flokki töpuðu gestgjafamir
Þór fyrir sterku Breiðabliksliði. í 5.
flokki A sigruðu Týsstelpurnar
fjórða árið í röð. Fjölnir vann síðan
í 4. flokki A og 5. flokki B sem er
frábær árangur.
Gréta mikill skorari
Markakóngur pæjumótsins var
Gréta Mjöll Samúelsdóttir, fyrirliði
6. flokks Breiðabliks. Hún skoraði
Þaö skiptir engu máli þó þaö rigni
aöeins, sögöu þær Brynja Ólafs-
dóttir og Laufey Bjarnadóttir.
alls 18 mörk í 7 leikjum . Hún á ekki
langt að sækja snilligáfuna því
móðir hennar er Ásta B. Gúnnlaugs-
dóttir, kunnasta knattspyrnukona
landsins fyrr og síðar. Mjöll er
einnig snjöll í fimleikum.
Laufey fékk Lárusarbikarinn
Laufey Ólafsdóttir í 3. flokki Vals
A var valin efnilegasta knattspymu-
kona Pepsí-pæjumótsins af sérstakri
dómnefnd. Hún hlaut Lár-
usarbikarinn að launum sem er
farandbikar. Þetta er í fyrsta skipti
Umsjón
Halldór Halldórsson
sem hann er afhentur en Eyja-
maðurinn Ólafur Pétur Sveinsson
gaf hann tfl minningar um Lárus
heitinn Jakobsson, knattspyrnu-
frömuð í Vestmannaeyjum. Valið
kom ekki á óvart enda er Laufey
mikið efni en hún varð einnig
markahæst í sínum flokki með 10
mörk.
Varöi þrjár vítaspyrnur
í úrslitaleiknum í 4. flokki B,
milli ÍBV og KR, þurfti vítaspymu-
keppni til að knýja fram úrslit.
Markvörður ÍBV, Tinna Tómas-
dóttir, gerði sér lítið fyrir og varði
þrjár vítaspymur og varð hetja
leiksins. Galdurinn bak við
vítaspymuvörsluna kvað hún vera
að horfa djúpum augum til þess sem
tekur spymuna og taka hann
þannig á taugum. Hún hefur æft
markvörslu í 4 ár og upp-
áhaldsmarkmaður hennar er Peter
Smeichel hjá liðinu Man. Utd.
Skemmtilegt framtak
Heiðursgestur Pepsí-pæjumótsins
var Kristinn Björnsson, landsliðs-
þjáifari kvenna. Hann heilsaði upp
á leikmenn fyrir úrslitaleikina og
afhenti verðlaun.
„Ég missti af rigningardögunum
en mér heyrist að allir hafi skemmt
sér vel, foreldrar sem börn. Þetta
mót er mikil hvatning fyrir
kvennaknattspymuna í landinu og
því mjög þarft framtak,” sagði
Kristinn Bjömsson. -ÞoGu
Úr leik Víöis og Göte frá Færeyjum í keppni 4. flokks A-liöa. Víöisstelpan til
vinstri á hér skot aö marki andstæðinganna.
Vonbrigöin leyna sér ekki. KR-stelpurnar í 4. flokki B eru hér að fylgjast meö
vítaspyrnukeppninni gegn ÍBV sem þær töpuöu.
Kristinn Björnsson, þjálfari kvennalandsliösins, afhendir Tinnu Tómasdóttir, markveröi og hetju ÍBV í 4. flokki B-liöa,
silfurverölaunin en Tinna varöi 3 vítaspyrnur í úrslitaleiknum gegn KR. DV-myndir ÞoGu
Úrslit
3. flokkur - A-lið:
Pæjumeistari: Valur, 2. Grindavík,
3. KR. Prúðasta liðið: Leiknir.
Besti leikmaðurinn: Laufey Ólafs-
dóttir, Val. Markahæst: Laufey
Ólafsdóttir, Val, 10 mörk. Prúðasti
leikmaðurinn: Þóra Kristín
Kristjánsdóttir, UMFA.
3. flokkur - B-lið:
Pæjumeistari: Grindavík, 2. Valur,
3. Haukar. Prúðasta liðið: Keflavík.
Besti leikmaðurinn: Sólveig Gunn-
laugsd., Grindavík. Markahæst:
Bergdís Guðnad., Val, 13 mörk.
Prúðasti . leikmaðurinn: Hjördis
Gregersen, Göta.
4. flokkur - A-lið:
Pæjumeistari: Fjölnir, 2.
Breiðablik, 3. Stjarnan. Prúðasta
liðið: Göta. Besti leikmaðurinn:
Ragnheiður Hallsd., Fjölni. Marka-
hæst: Heiðrún Garðarsd., ÍA, 10
mörk. Prúðasti leikmaðurinn:
Guð-laug Hilmarsd., Haukum.
4. flokkur - B-lið:
Pæjumeistari: ÍBV, 2. KR, 3.
Stjarnan. Prúðasta liðið: KR. Besti
leikmaðurinn: Anna Úrsula Guð-
mundsd., KR. Markahæst: Margrét
H. Ríkharðsd., Fjölni, 12 mörk.
Prúðasti leikmaðurinn: Ágústa
Tryggvad., Selfossi.
5. flokkur - A-lið:
Pæjumeistari: Týr, V„ 2. Valur, 3.
FH. Prúðasta liðið: Þróttur. Besti
leikmaðurinn: Margrét Viðarsd.,
Tý. Markahæst: Margrét Lára
Viðarsd., Tý, 14 mörk. Prúðasti
leikmaðurinn: Guðný Lára Ámad.,
UMFA.
5. flokkur - B-lið:
Pæjumeistari: Fjölnir, 2. FH, 3.
Fylkir. Prúðasta liðið: Fylkir. Besti
leikmaðurinn: Hjördís Olafsd., FH.
Markahæst: Ragna Björg Einarsd.,
Breiðabliki, 7 mörk. Prúðasti leik-
maðurinn: Bjarnfríður Leósd., ÍA.
6. flokkur:
Pæjumeistari: Breiðablik, 2. Þór,
V., 3. Haukar. Prúðasta liðið: Víðir.
Besti leikmaðurinn: Melkorka
Helgad. Markahæst: Greta Mjöll
Samúelsd., Breiðabliki, 18 mörk.
Prúðasti leikmaðurinn: Helga Þor-
steinsd., Þór, V. Efnilegasti lcik-
maðurinn: Laufey Ólafsd., Val. Hún
hlaut Lárusarbikarinn.
Stelpurnar í 4. flokki ÍBV, B-liöi, sigruðu KR í úrslitaleik eftir
vítaspyrnukeppni. Fleiri myndir frá mótinu veröa birtar á næstunni.
Grindavíkurstelpurnar í B-liöi 3. flokks uröu pæjumótsmeistarar 1996 eftir
úrslitaleik gegn Val.
Besti leikmaöur mótsins, Laufey Fjölnisstúlkurnar í 4. flokki A sigruöu Val í úrslitaleik og uröu því
Ólafsdóttir úr 3. flokki Vals, A-liöi. pæjumeistarar.