Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1996
27
H>V
Ósvífinn íslenskur prakkari gleður Austurríkismenn:
Vanþekking kostaði
hann fimm milljónir
- sýning Errós í Vín vekur athygli gagnrýnenda
Menning
Hlín Gylfadóttir við verk sín.
Erró hefur vakið athygli gagnrýnenda í Austurríki fyrir sýningu sem hófst í
Vín á dögunum, einhverja stærstu sýningu sem haldin hefur verið á verkum
hans. DV-mynd GVA
Atli Örvarsson gerði það gott í Berklee:
Heiðurspeningur fýrir
besta skrúðgöngumarsinn
- nemur næst kvikmyndatónlist í N-Karólínu
Berklee College of Music í Boston,
Massachusetts í Bandaríkjunum,
veitti nýlega Atla Örvarssyni, nema
í píanóleik við skólann, heiðurspen-
ing sem sigurvegara í keppni um
skrúðgöngumars við brautskráningu
stúdenta. Það var sérstök nefhd, sem
stofnuð var í tilefni 50 ára afmælis
skólans, sem afhenti Atla heiðurs-
peninginn við sérstaka verðlaunahá-
tíð nemenda sem haldin var í maí og
markaði lok hátíðarhaldanna í til-
efni afmælisins.
Atli er nú að ljúka B.Mus. gráðu
við skólann eftir 3 ára nám og hefur
fengið inngöngu í kvikmyndatón-
listardeild í háskólanum í Norður-
Karólínu í Bandaríkjunum en þar
eru aðeins 6 nemendur teknir inn á
ári.
Atli, sem fullu nafni heitir Örvar
Atli, er Akureyringur og af miklum
tónlistEirættum en foreldrar hans
eru Svava Karlsdóttir og Örvar
Kristjánsson tónlistarmaður. Atli
lauk stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum á Akureyri 1989 og stundaði
síðan nám í FÍH, djassdeild, bæði á
píanó og trompet sem var lengi
hans aðalhljóðfæri. Hann hefur leik-
ið í fjölmörgum popphljómsveitum
og nægir þar að nefna Stuðkompaní-
ið, en þar spilaði hann með bræðr-
um sínum, Karli og Grétari Örvars-
sonum, Sálina hans Jóns míns og
SSSól. í dag er Atli á hljómleika-
ferðalagi um Kýpur ásamt banda-
rískri hljómsveit sem hann leikur
með.
-ggá
Myndlistarnem-
ar í Búnað-
arbankanum
Með tilkomu nýrrar innrétt-
ingar í Búnaðarbankann við
Hlemm kom upp sú hugmynd aö
myndlistarnemendur MHÍ sæju
um sýningu í sýningarglugga
útibúsins. í Myndlista- og hand-
íðaskólanum eru 7 sérdeildir;
fjöltækni, skúlptúr, grafík, mál-
un, textil, leirlist og grafisk
hönnun og gefst nemendum
hverrar deildar fyrir sig kostur á
að sjá um sýningu í glugganum,
einn mánuð í senn. Um júnísýn-
inguna sér Hlin Gylfadóttir,
nemandi í fjöltækni, en hún sýn-
ir tölvugrafíkmyndir sem hlotið
hafa mjög sérstaka meðferð.
Grínmyndabók
um forseta-
kosningar
Fjölvaútgáfan hefur sent frá
sér sérkennilega spébók um for-
setakosningarnar á íslandi. Hún
kallast Forsetaslagurinn og þar
er gert óspart grín að öllu til-
standinu. Nýja bókin er eins
konar teiknisögukómidía eftir
Kjamó (Kjartan Amórsson) sem
hefur á undanfórnum árum
dvalist í Bandaríkjunum og
starfað að teiknimyndagerð.
Bókin er litprentuð með miklum
fjölda teikninga en venjulegur
texti fylgir þeim.
Ævisaga Jóns
forseta á ensku
ogdönsku
Á lýðveldisdaginn 17. júni, af-
mælisdegi Jóns Sigurðssonar,
kom út ævisaga hans á ensku og
dönsku. Eftir því sem best er vit-
að eru þetta fyrstu útgáfumar á
erlendum málum þar sem fjallað
er um Jón Sigurðsson og sögu
hans í bókarformi, fyrir utan
stutta æviminningu sem Þorlák-
ur Ó. Johnson gaf út á ensku
árið 1887.
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, skrifar formála að
báðum verkunum, en þar fjallar
hún meðal annars um stöðu
Jóns Sigurðssonar í hugum ís-
lendinga og afstöðu Dana til
hans. Hallgrímur Sveinsson á
Hrafnseyri tók saman en útgef-
andi er Vestfirska forlagið.
Heidi sýnir í
Perlunni
Á fjórðu hæð í Perlunni stend-
ur nú yfir textíisýning Heidi
Kristiansen. Sýningin var opnuð
þann fyrsta júní og stendur út
mánuðinn. Hún er opin alla daga
vikunnar á sama tíma og veit-
ingabúðin. Heidi sýnir 18 mynd-
teppi sem unnin em með applík-
asjóns- og quilttækni en það eru
ævafomar og mikið notaðar að-
ferðir bæði til listsköpunar og í
nytjahluti. Myndefnið er sótt í ís-
lenska náttúm og umhverfi og
eru verkin öll unnin á árunum
1995-6. Efnisval er mjög fjöl-
breytt, allt frá gallabuxnaefni og
yfir í silki, roð, heimageröan ull-
arflóka og selskinn og em verk-
in máluö, teiknuð, klippt og
saumuð með margvlslegum að-
feröum. -ggá
Atli Örvarsson gerir það gott í tónlistinni erlendis um þessar mundir.
DV, Austnrríki:
Það var ekki fýrr en Erró opnaði
viðamikla yfirlitssýningu á verkum
sínum í Vínarborg fyrir nokkrum
dögum að hann gerði sér grein fyrir
því að aðalbyggingin á einum mál-
verka hans, „frá kínverska tímabil-
inu“, væri í raun austurríska þing-
ið með rauða kínverska varðliða í
forgranni. Guðmundur Guðfnunds-
son, Erró, leitar svo víða fanga um
myndefni, jafnt á póstkortum, í
hasarblöðum sem á áróðursspjöld-
um, að hann man ekki alltaf hvaðan
fyrirmyndin er komin.
Þegar Erró frétti af þessari „van-
þekkingu" sinni var hann snöggur
að bæta Austurríkismönnum það
upp. Hann var það höfðinglegur að
gefa Nútímalistasafninu í Vín, þar
sem sýningin fer fram, umrætt mál-
verk. Áætlað verðmæti: Tæpar
fimm milljónir króna!
„Þessi vandaða og káta sýning
veitir gott yfirlit yfir verk þessa
mikilvæga popplistamanns," skrif-
aði gagnrýnandi austuríska stór-
blaðsins Kurier í umfjöllun sinni
um sýningu á verkum Errós sem
opnuð var fyrir siðustu helgi og ber
yfirskriftina Frá Maó til Madonnu.
„Spennandi, gáfuleg og athyglis-
verð,“ sagði í listaumfjöllun Kronen
Zeitung en gagnrýnandi stórhlaðs-
ins Standard nefnir Erró „ósvífna
íslenska prakkarann" sem veiti
jafnvel bömum óskammfeilna en þó
athyglisverða leiðsögn um evrópska
málaralist með því að nota þekkt
verk annarra listamanna í sínar
myndir.
„Þessi þjóðsagnakenndi listamað-
ur veður úr einu í annað í list sinni
eins og fréttatími í sjónvarpi,“ segir
í Standard.
Gagnrýnendur austinrísku blað-
anna eru sammála um að Erró sé
meðal virtustu popplistamanna
heims, „þótt frægðarstjarna hans
núna sé nokkuð farin að lækka á
lofti", eins og gagnrýnandi Standard
orðar það.
En Erró lætur þó ekki nýjustu
tæknistrauma fram hjá sér fara.
Þeir sem ekki komast til að skoða
þau 90 málverk sem eru á þessari
viðamiklu yfirlitssýningu í Vín fyr-
ir 8. september nk. geta horft á hana
á geisladiski. Diskurinn um Erró og
verk hans er sá fyrsti sem Nútíma-
listasafnið í Vín gefur út í tengslum
við stórsýningar.
-BH
Nýtt handverksgallerí
Þann 18. júní var opnað nýtt handverksgallerí í Þingholtsstræti 5. Þetta er
handverkshús sem í eru 11 vinnustofur auk þess sem þar er kaffihús. Þar
eru seldar veitingar en í því er sameiginleg sýningaraðstaða. Hér gefur að
líta nokkur þeirra verka sem til sýnis eru. í handverksgalleríinu verður
stöðug sýning í gangi, enda má kalla þetta kaffigallerí. Til að byrja með verð-
ur opið frá kl. 12-18. Kaffigallerflð heitir Amma í Réttarholti, nefnt eftir mik-
illi dugnaðarkonu og ömmu eigandans, Eiríks Rafns Magnússonar, en hún
hefði orðið 100 ára á þessu ári. Mynd af henni prýðir einnig merki staðarins.
-ggá/DV-mynd Pjetur
Sumartónleikar í Stykkishólmi
Mánudaginn 24. júní nk. verða þær Anna Júiíana Sveinsdóttir messósópran
og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari á sumartónleikum i Stykkishólms-
kirkju. Á efnisskrá verða m.a. ísiensk þjóðlög í útsetningu Fjölnis Stefáns-
sonar, þekkt lög eftir íslensk tónskáld, Ijóðaflokkur eftir Schumann við Ijóð
Maríu Stuart Skotadrottningar og verk eftir Richard Strauss. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30. -ggá/DV-mynd Pjetur