Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Side 24
32
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1996
Sviðsljós
Marlon Brando
fær myndarbúta
til umsagnar
Marlon Brando fékk heldur
óvenjulegan póst um tíma, spólur
meö klipptum atriðum úr myndinni
Eyju dr. Moreaus sem hann leikur
eitt aöalhlutverkanna i. Sendandinn
var leikstjórinn, John Frankenhei-
mer. „Hann er snillingur. Af hverju
skyldi maður ekki vilja leita eftir
áliti hans?“ segir Frankenheimer.
Og allt bendir til að það sem Brando
hafði til málanna að leggja hafi gef-
ið góða raun. Myndin fékk að
minnsta kosti góðar viðtökur þegar
hún var sýnd þröngum hópi um
daginn.
DV
Forsetinn og filmstjarnan mest umtalaða parið í París:
Chirac og Cardinale neita
að eiga í ástarsambandi
Jacques Chirac Frakklandsforseti
og ítalska kynbomban og leikkonan
Claudia Cardinale eru nýjasta
kærustuparið, eða svo segja að
minnsta kosti sléfberarnir í París.
„Allir vita að þau eru orðin mjög
náin en enginn vogar sér að setja það
á prent,“ segir traustur heimildar-
maður meðal fina fólksins í frönsku
höfuðborginni, „les happy few“, eins
og Fransmenn kalla þennan hóp
spjátrunga og oflátunga. Oh, la, la!
Chirac og Cardinale, sem margir
muna úr kvikmyndunum um bleika
pardusinn, hittust fyrst í veislu hjá
Francois Pinaut, eiganda verslanak-
eðjunnar Printemps. Það var
snemma árs 1993. Vinir auðkýfings-
ins segja að forsetinn og filmstjaman
hafi umsvifalaust heillað hvort ann-
að upp úr skónum.
„Hann er sjarmerandi og skemmti-
legur; hún er dæmigerður ítali, full
lífsgleði,“ segir enn einn heimildar-
maðurinn í París
Þau Chirac og Cardinale sáust
fyrst saman opinberlega þegar hann bauð henni
að vera við setningu áttundu alþjóðlegu kvik-
myndahátíðarinnar í París fyrir rúmum þremur
árum. Allar götur síðan hefur Claudia sést við
Claudia Cardinale.
Jacques Chirac.
ýmsar opinberar uppákomur sem Chirac hefur
staðið fyrir, bæði sem borgarstjóri Parísar og nú
siðast sem forseti Frakklands. Ög hún var fremst
í flokki þekktra listamanna sem börðust ötullega
fyrir kosningu hans í fyrra.
Einn hængur er á sambandi þeirra
Chiracs og Claudiu, nefnilega sá að
bæði eru gift. Chirac hefur verið
kvæntur eiginkonu sinni, Bemad-
ette, í bráðum 40 ár. Hann er sonur
bankastarfsmanns og sonarsonur
kennara en hún er af aðalsfólki kom-
in, enda með forsetningu milli ættar-
nafnanna tveggja, og getur rekið ætt-
ir sínar langt aftur í aldir til valda-
mikilla manna innan kirkjunnar.
Bernadette er hlédræg kona, ákaflega
trúuð og ímynd hinnar trúu og dyggu
eiginkonu.
Claudia Cardinale, sem hefur við-
haldið æskufegurð sinni að miklu
leyti, er aftur á móti opin og hressileg
eins og landar hennar eru gjarnan.
Claudia ber til baka sögusagnir
um að hún eigi í ástarævintýri með
Chirac og hefur hótað að fara í mál
við ítölsku dagblöðin sem birtu frétt-
ir þar um. Talsmaður Chiracs hefur
einnig vísað þessu á bug og segir
þetta helberan sögurburð.
Hinu verður þó ekki í móti mælt að Chirac hef-
ur greinilega verið hamingjusamari og afslapp-
aðri undanfarna tólf mánuði en áður, að sögn
kunnugra.
LAUGARDEGI
OG SAMA DAG ER HANN FRUMFLUTTUR Á BYGLJUNNI FRÁ
KL. 16-18. BYLGJAN ENDURFLYTUR LISTANN Á MÁNUDAGS-
KVÖLDUM MILLI KL. 20 OG 22.
Kynnir: Jon Axeíl Olafsson
I BODI COCA-COLA
(SLENSKI USTINN ER SAMVINNUVERKEFNI BYLGJUNNAR, DV OG COCA-COLA A (SLANDI. USTINN ER NIÐURSTAÐA SKOÐANAKÖNNUNAR SEM ER FRAM-
KVÆMD AF MARKAÐSDEILD DV í HVERRIVIKU. FJÖLDI SVARENDA ER A BILINU 30CM00, A ALDRINUM14-35 ARAAF ÖLLU LANDINU. JAFNFRAMT ER TEK-
IÐ MK> AF SPILUN A ISLENSKUM ÚTVARPSSTÖÐVUM. (SLENSKI LISTINN BIRTIST A HVERJUM LAUGARDEGII DV OG ER FRUMFLUTTUR A BYGJUNNI A
LAUGARDÖGUM KL16-18. USTINN ER BIRTUR AÐ HLUTAI TEXTAVARPIMTV SJÓNVARPSSTÖÐVARINNAR. (SLENSKIUSTINN TEKUR ÞATT í VAU „WORLD
CART" SEM FRAMLEIDDUR ER AF RADIO EXPRESSI LOS ANGELES. EINNIG HEFUR HANN AHRIF A EVRÓPUUSTANN SEM BIRTUR ER f TÓNLISTARBLAÐ-
INU MUSIC & MEDIA SEM ER REKIÐ AF BANDARISKA TÓNUSTARBLADINU ÐILLBOARD.
Robin Wright lét
stela af sér bílnum
Leikkonan unga Liv Tyler er einhver umtalaðasta konan í Hollywood þessa
dagana. Hún leikur aðalhlutverkið í Stealing Beauty, nýjustu mynd ítalska
snillingsins Bernardos Bertoluccis. Myndin var frumsýnd í Los Angeles á
kvennadaginn 19. júní. Þess má geta að Liv, sem er 18 ára, er dóttir poppar-
ans Steves Tylers úr Aerosmith. Símamynd Reuter
Fræga fólkið lendir ekkert síður í
vandræðum en sauðsvartur almúg-
inn. Leikkonan Robin Wright, eigin-
kona leikarans og ólátabelgsins
Seans Penns, er ágætt dæmi þar um.
Robin lenti í því fyrir skömmu að
tveir unglingar komu að henni og
bömunum hennar tveimur fyrir ut-
an heimili hennar í Santa Monica,
hrifsuðu af henni bíllyklana og óku
burt á kagganum, amerískum
slyddujeppa, eins og byssubrenndir.
Robin hringdi hið snarasta í lögregl-
una og kærði atburðinn og piltamir
voru handteknir skömmu síðar.
Annar piltanna, 16 ára gamall,
gekkst við glæpnum og hefur nú
verið dæmdur til sex mánaða vistar
í betrunarbúðum. Félagi hans, sem
er 18 ára, þrætti fyrir allt og verður
að mæta aftur fyrir rétt.
Robin og Sean voru viðstödd þeg-
ar dómur í máli piltsins féll í vik-
unni.