Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1996, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 1996
37
Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur
aðalhlutverkið.
Taktu lagið Lóa
Eina leikritiö sem nú er á fjöl-
um ÞjóðleikMssins er hiö vin-
sæla verk Jims Carthwrights,
Taktu lagið Lóa, en nokkrar
sýningar eru á verkinu þessa
dagana í tilefni þess að nú er
verið að leggja upp í leikferð
með verkið.
Taktu lagið Lóa, sem fjallar
um unga óframfærna stúlku
sem hefur fallega söngrödd sem
margir ætla sér að græða á, fékk
frábæra dóma og mikla aðsókn
og það sama má í raun segja um
Leikhús
öll þrjú leikrit eftir Jim
Cartwright sem sýnd hafa verið
hér á landi en þau eru Strætið
og BarPar og nú styttist í að
nýjasta leikrit Cartwrights, Sto-
ne Fi-ee, verði framsýnt í Borg-
arleikhúsinu en um heimsfrum-
sýningu á þessu verki er að
ræða.
Á meðan beðið er geta þeir
sem enn hafa ekki séð Lóu
brugðið sér í Þjóðleikhúsiö í
kvöld en leikferðin hefst síðan
næstkomandi fimmtudag á Ak-
ureyri.
Næturganga á
sumarsólstöðum
í tilefni af sumarsólstöðum kl.
2.24 í nótt stendur hafnargönguhóp-
urinn fyrir næturgöngu. Gangan
hefst um miðnætti við Nesti í Foss-
vogi. Gengið verður samfellt með
ströndinni vestur á Seltjarnarnes og
að Reykjavíkurhöfn - síðan um
Skildinganesmela og Öskjuhlíð að
Nesti. Göngunni lýkur milli kl. 7 og
8 um morguninn, en öllum er í
sjálfsvald sett að fara úr göngunni
Útivera
hvar sem er.
Á leiðinni verður kveikt lítið
fjörubál kl. 1.30, horft á sólarupprás
og að öðra leyti notið kyrrðarinnar
og birtubreytinganna. Kaffiveiting-
ar verða í boði árla morguns og gef-
inn verður kostur á stuttri sjóferð ef
veður leyfir. Allir eru velkomnir.
Eiríkur og
Endurvinnslan
Eiríkur Hauksson og hljóm-
sveit hans Endurvinnslan
skemmta í Rósenbergkjallaran-
um í kvöld. Munu þeir meðal
annars leika lög af nýrri plötu
sem komin er út með hljóm-
sveitinni.
Samkomur
Havana á Kaffi Króki
Hljómsveitin Havana leikur
fyrir dansi á KafFi Króki, Sauð-
árkróki, i kvöld. í hljómsveit-
inni eru Edda Borg, Kjartan
Valdemarsson, Bjarni Svein-
bjömsson, Pétur Grétarsson og
Siguröur Flosason.
Félagsvist
Spiluð verður félagsvist í Gjá-
bakka, Fannborg 8, í kvöld kl.
20.30.
Reggae on Ice á Hótel íslandi:
Sumarsólstöðuball
Hljómsveitin Reggae on Ice, sem
gaf út í síðustu viku geislaplötuna I
berjamó, verður með sumarsól-
stöðuball á Hótel íslandi í kvöld og
er yflrskrift skemmtunarinnar Sól-
in fer upp, en kemur ekki aftur nið-
ur. Hljómsveitin mun að sjálfsögðu
leika lög af nýju plötunni, enda má
segja að ballið sé um leið nokkurs
konar útgáfutónleikar. Á plötu
Reggae On Ice er að finna bæði
frumsamin lög og eldri lög og má
meðal annars heyra á plötunni end-
Skemmtarúr
urútsetningar á lögunum Lóan er
komin, Uppí sveit og Hvers vegna
varst’ ekki kyrr.
Sérstakur gestaplötusnúður
kvöldsins er sjálfur Páll Óskar
Hjálmtýsson, sem ekki á í vandræð-
um með að bregða sér úr söngvara-
hlutverkinu yfir i plötusnúð. Húsið
verður opnað kl. 23. Á morgun verð-
ur síðan Reggae On Ice á Duggunni,
Færð er góð
á þjóðveg-
um landsins
Færð er víðast hvar góð á helstu
þjóðvegum landsins.
Vegir á hálendinu eru enn marg-
ir hverjir blautir og ekki búið að
opna nema lítinn hluta og þá fyrir
jeppa og fjallabíla.
Færð á vegum
Á nokkrum leiðum eru vega-
vinnuflokkar að störfum við lagfær-
ingar og eru bílstjórar beðnir um að
virða hraðatakmarkanir sem þar
era, þá eru bílstjórar einnig beðnir
að fara varlega þar sem ný klæðing
er, en hún getur valdið steinkasti.
Ástand vega
Qd
0 Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokað
0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir
Œl Þungfært © Fært fjallabílum
V. ÆqÆÞ Systir Róberts Þórs Myndarlega stúlkan á myndinni 3760 grömm aö þyngd og 51 sentí- fæddist á fæðingardeild Landspítal- metra löng. Foreldrar hennar eru ans 3. júní. Hún var við fæðingu Ragnheiður Sigurðardóttir og Helgi Ragnarsson. Hún á einn bróður, daasins Róbert Þór, sem er átta ára gamall.
Richard Gere leikur verjandann
Martin Veil, með honum á mynd-
inni er skjólstæðingur hans sem
Edward Norton leikur.
Innsti ótti
Háskólabíó sýnir um þessar
mundir spennumyndina, Innsti
ótti (Primal Fear). í henni segir
frá hinum hrokafulla, snjalla og
vinsæla lögfræðingi, Martin
Veil, sem veit ekkert skemmti-
legra en að eiga í átökum í rétt-
arsalnum og vera um leið í
sviðsljósinu. Með þetta í huga
býðst hann til að verja bláfátæk-
an ungan mann sem ásakaður er
fyrir að hafa myrt virtan og
þekktan mann í Chicago. Lög-
reglan telur sig hafa næg sönn-
unargögn til að sakfella unga
manninn. Fyrir Vail skiptir það
engu máli hvort skjólstæðingur
hans sé sekur eða saklaus. Það
Kvikmyndir
sem er honum efst í huga er að
selja sína útgáfu af sannleikan-
um og sigra.
Þessi vörn verður þó ekki eins
glæsileg og gefandi fyrir Vail
eins og hann ætlaði í byrjun.
Richards Gere leikur lögfræðing-
inn en auk hans leika í mynd-
inni Laura Linney, John Mahon-
ey, Alfre Woodward, Frances
McDormand og Edward Norton.
Nýjar myndir
Háskólabíó:lnnsti ótti
Laugarásbíó: Á síðustu stundu
Saga-bíó: Allir í boltanum
Bíóhöllin: Á hæpnasta svaði
Bíóborgin: Trainspotting
Regnboginn: Skítseiði jarðar
Stjörnubíó: Einum of mikið
Krossgátan
1 Z 5 4 s1 L
I Ó 4
10 ir
II vr
té TT'
IF TT i
14 ío
Lárétt: 1 krabbadýr, 8 gagna, 9 ryk-
korn, 10 söguburður, 11 naumu, 12
reykjarsvæla, 14 fæðu, 15 fjas, 17 íl-
át, 19 ástundunarsama, 20 sjór.
Lóðrétt: 1 stærst, 2 viðmótið, 3 fugl-
ar, 4 fæða, 5 endaði, 6 óttast, 7 pár-
ar, 13 peninga, 14 karlmannsnafn, 16
viðkvæm, 18 átt.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 dómstól, 7 álit, 8 ýsa, 10
raðir, 11 ás, 12 agg, 14 laus, 16 raul,
18 næm, 20 ók, 21 stapi, 23 pat, 24
hlið.
Lóðrétt: 1 dárar, 2 ólag, 3 mið, 4
stillt, 5 týran, 6 las, 9 sáu, 13 gust, 15
smið, 17 aka, 19 æpi, 20 óp, 22 al.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 124 21.06.1996 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 66,990 67,330 67,990
Pund 103,080 103,600 102,760
Kan. dollar 48,990 49,290 49,490
Dönsk kr. 11,3950 11,4550 11,3860
Norsk kr 10,2520 10,3080 10,2800
Sænsk kr. 10,1020 10,1570 9,9710
Fi. mark 14,4130 14,4980 14,2690
Fra. franki 12,9490 13,0230 13,0010
Belg. franki 2,1322 2,1450 2,1398
Sviss. franki 53,3000 53,6000 53,5000
Holl. gyllini 39,1500 39,3800 39,3100
Þýskt mark 43,9000 44,1200 43,9600
It. líra 0,04357 0,04385 0,04368
Aust. sch. “6,2350 6,2730 6,2510
Port. escudo 0,4274 0,4300 0,4287
Spá. peseti 0,5216 0,5248 0,5283
Jap. yen 0,61610 0,61980 0,62670
írskt pund 106,050 106,710 105,990
SDR 96,49000 97,07000 97,60000
ECU 83,1300 83,6300 83,21000
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270