Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Page 14
14
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 ■ >'\7'
óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aöstoöarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI 14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deíldir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerö: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Líf þitt er opin bók
Alls óþekktum tölvuáhugamanni með sjaldgæfú nafni
í Bandaríkjunum, nýkomnum á Internetið, datt nýlega í
hug að nota eitt öflugasta leitarforritið á netinu til að
finna nafnið sitt. Það tók forritið fimm sekúndur að
finna nafn hans 32svar sinnum í óravíddum netsins.
Hann fékk skrá yfir margt af því, sem hann hafði ver-
ið að gera á netinu, t.d. lesendabréf, sem hafði birzt í net-
tímariti, og athugasemdir, sem hann hafði sent inn í lok-
aða umræðuhópa á netinu. AUar þessar upplýsingar um
sjálfan hann komu eins og hendi væri veifað.
Þetta segir margar sögur í senn. Annars vegar er
greinilegt, að netið er nú þegar í stakk búið til að útvega
fólki leifturskjótar upplýsingar um hvaðeina, sem það
vill vita. Hins vegar er líka greinilegt, að óhjákvæmilega
þrengir netið töluvert einkalífshjúp notenda þess.
Þeir, sem af ungæðishætti ramba um netið og leggja
orð í belg í vafasömum umræðuhópum, t.d. um afbrigði-
leg kynferðismál, geta sem hægast átt það á hættu, að
leitarforrit séu notuð til að rifla fortíðina upp, ef þeir
fara löngu síðar í framboð sem meintir góðborgarar.
Sömuleiðis geta menn komið á fót njósnastofum, er
nota leitarforrit til að búa til mynd af fortíð þeirra, sem
hafa slysazt inn í vafasama umræðu á netinu; og hótað
að senda upplýsingarnar til makans, nema hæfileg flár-
upphæð sé notuð til að liðka fyrir málinu.
Að þessu leyti heggur netið nær einkalífi fólks heldur
en síminn, því að altækar hleranir alls símakerfisins
mundu ekki nýtast á sama hátt, þótt einhver vildi og
gæti stundað þær. Það er til dæmis mun erfiðara að
flokka hleruð símtöl eftir ákveðnum lykilorðum.
Tölvutækni nútímans er að breyta einkalífi fólks á
fleiri sviðum. Greiðslukort eru orðin að helzta gjaldmiðli
fíölda fólks og gefa því mánaðarlega upplýsingar um
reksturinn. Allar þessar upplýsingar liggja áfrarn í
tölvukerfum og sýna neyzlumynztur einstakra borgara.
Fólk verður að átta sig á þessu og læra á þetta, ef það
vill vernda það, sem það telur vera einkalíf sitt. Það get-
ur forðast greiðslukort og notað heldur peningaseðla eða
væntanleg myntkort. Það getur forðast internet og síma
og notað heldur samskipti á staðnum í gamla stílnum.
Að öðrum kosti þarf viðkvæmt fólk að venjast því að
haga sér á neti, í kortum og í síma eins og það mundi
gera á opinberum vettvangi, svo að ekki sé hægt að hafa
neitt eftir því, sem vansæmd sé að. Raunar hafa margir
vanið sig á að umgangast þessi tól af varfærni.
Tölvutæknin þvingar fólk til að skilgreina einkalíf sitt
á nýjan leik og setja sér umgengnisreglur á fleiri sviðum
en áður. Fyrri tilraunir til að vernda hefðbundnar skil-
greiningar á einkalífi fólks verða hjákátlegar í saman-
burði við þau verkefni, sem nú steðja að.
Við slíkar aðstæður er úrelt að hafa sérstaka Tölvu-
nefnd til að koma í veg fyrir, að fólk geti séð á síma-
reikningum, hvert það hafi verið að hringja; að fólk geti
séð í bifreiðaskrá, hvort bíll í sölu hafi lent í tjóni; að
fólk geti lagt saman tvo og tvo við lestur skattskrár.
Við slíkar aðstæður er úrelt að hafa sérstaka Tölvu-
nefnd til að koma í veg fyrir, að fólk geti séð, hver er
skyldur hverjum, með því að fletta upp í prentuðum ætt-
fræðiritum. Allt puð Tölvunefndar er hlægilegt í ljósi
upplýsingasprengingarinnar á alþjóðavettvangi.
Leyndarstjórar tölvunefnda heims munu aldrei geta
hamlað gegn þessari opnun, enda væri þeim nær að við-
urkenna aðstæður og kenna fólki að umgangast þær.
Jónas Kristjánsson
Valdabarátta
innan múra Kremlar
Fyrir rúmum mánuði lagði Al-
exander Korshakof, hershöfðingi
og yfirmaður lífvarðar Borísar
Jeltsín Rússlandsforseta, til í op-
inberri yfirlýsingu að komandi
forsetakosningum yrði frestað um
óákveðinn tíma. Rökstuddi hann
uppástunguna með tilvísun til
hættu á uppnámi og innanlands-
átökum.
Jeltsín vísaði hugmyndinni
jafnharðan á bug og bað þennan
nána samstarfsmann sinn allt frá
upphafi valdaferilsins að hætta að
skipta sér af stjórnmálaákvörðun-
um. Varð þá ljóst að halla tæki
undan fæti hjá þeim manninum
sem kunnugir Rússar hafa talið
valdamestan í Kreml i forsetatíð
Jeltsíns vegna þess hve greiðan
aðgang hann hefur átt að forsetan-
um og getað jafnframt ráðið miklu
um hverjir aðrir ná eyrum hans.
Eftir að Jeltsín varð efstur í
fyrri umferð forsetakosninganna
með þriggja hundraðshluta fylgi
umfram Gennadí Sjúganof, fram-
bjóðanda kommúnista, varð ljóst
að hann yrði að leggja allt kapp á
að vinna á sitt band fyrir síðari
viðureignina milli tveggja efstu
forsetaframbjóðenda sem flesta af
þeim ellefu milljón kjósendum
sem greitt höfðu atkvæði þeim
sem hafnaði í þriðja sæti, Alex-
ander Lebed hershöfðingja.
Vinsældir sínar á Lebed jöfnum
höndum að þakka framgöngu í
herstjórn og harðri gagnrýni á
fjármálspillingu og óreiðu, í yfir-
herstjórninni sér í lagi, en jafn-
framt stjórnkerfinu í heild, frá því
hann óskaði lausnar úr herþjón-
ustu og ákvað að hefja þátttöku í
stjórnmálum.
Daginn eftir að kosningaúrslit
lágu íyrir féllst Lebed á að gerast
öryggismálaráðgjafi Jeltsíns og
taka jafnframt að sér forystu fyrir
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
Þjóðaröryggisráði Rússlands en
það er í rauninni valdameira við
stefnumótun en ríkisstjórnin. Um
leið og Lebed tók við störfum var
Pavel Gratséf hershöfðingja vikið
úr embætti landvarnarráðherra.
Gratséf er tákn alls sem verst
hefur farið í stjórnartið Jeltsíns.
Hann átti mestan þátt í að ota for-
setanum út í ófæruna sem hernað-
urinn í Tsétséníu hefur reynst.
Undir hans stjórn er ástandið i
hernum slíkt að nýliðar haf orðið
hungurmorða í hópum af því for-
ingjar hafa stolið matarpeningun-
um. Hann ónýtti rannsókn á
morði fréttamanns sem var að af-
hjúpa gróðabrall hershöfðinga
með eigur hersins þegar böndin
tóku að berast að leyniþjónustu
hersins sjálfs.
Korshakof hefur líkt orð á sér í
Kreml og Gratséf i herforystunni,
að hafa í sínum höndum þræði
fjármálaspillingar og sjá um það
með bandamönnum I öryggis-
stofnunum að ekkert sem að raun-
verulegu gagni kemur sé gert til
að hefta fjárdráttinn og mútu-
þægnina sem er undirrót glæpa-
öldunnar sem gengur yfir Rúss-
land.
Degi eftir að Lebed skýrði frá
því að fimm hershöfðingjar yrðu
settir á eftirlaun fyrir að reyna að
setja herinn i viðbragðsstöðu til
að afstýra brottvikningu Gratséfs
tilkynnti Jeltsín að hann hefði
vikið úr starfi Korshakof, yfir-
manni öryggislögreglunnar Mik-
hail Barsúkof og fyrsta varafor-
sætistráðherra, Oleg Soskovets,
fyrir að fara út fyrir valdsvið sitt.
Það kom í hlut Lebeds og
Anatólí Tsjúbæs, yfirmanns kosn-
ingastjórnar Jeltsíns, að skýra frá
hvað þeir þremenningar hefðu að-
hafst. Að þeirra undirlagi voru
tveir starfsmenn kosningastjórnar
forsetans handteknir eftir að kom-
ið hafði verið fyrir í töskum
þeirra miklum fjárhæðum í er-
lendum gjaldeyri að þeim sjálfum
óafvitandi. Var síðan reynt að
knýja þá til að undirrita lognar
sakargiftir á æðstu menn kosning-
astjórnar forsetans.
Þessi málatilbúnaður átti svo
að vera átylla til að fá Jeltsín til
að aflýsa síðari umferð forseta-
kosninganna, lýsa yfir neyðará-
standi í Rússlandi og stjórna með
tilskipunum. Með þessu átti að
tryggja til frambúðar völd þeirra
sem notað hafa sér ágalla og veil-
ur gloppótts stjórnkerfis til að
raka saman fé og eignum.
Tsjúbæs orðaði það svo við
fréttamenn að þessi atburður væri
endalok langrar viðureignar milli
þeirra liðsmanna Jeltsíns sem
halda vildu fast við leið lýðræðis-
legra kosninga og þeirra sem
vildu í staðinn beita valdi.
Aleksander Lebed (t.v.) tekur við útnefningarskjali af Jeltsín forseta.
Símamynd Reuter
skoðanir annarra
í leit að nýju kerfi
i „Ljóst var eftir kosningarnar á sunnudag að
Rússland veit varla enn í hvom fótinn það á að
stíga, fót kommúnismans eða kapítalismans, og
í þjóðin er klofin í afstöðu sinni til þess hvort halda
j eigi fram veginn eða aftur á bak. Rússar em að
; þreifa fyrir sér í leit að stjórn- og efnahagskerfi sem
f sameinar stöðugleika kommúnismans og frelsi kap-
1 ítalismans. Til þessa hefúr landið ekki fundið svar-
j: ið né komið sér saman um frambjóðanda."
Úr forustugrein New York Times 19. júní.
I
Að hafna ofbeldi
| „Gerry Adams (leiötogi Sinn Fein, stjómmála-
r arms IRA) hefði fyrir löngu átt að vera búinn að ná
einhverjum árangri innan IRA eða þá að hafna of-
; beldisverkunum og virkja þá innan hreyfingarinn-
: ar sem em reiðubúnir aö fallast á sættir. Slíkt
krefðist hugrekkis þegar eðli og saga IRA em höfð
í huga. En hálfvolg stefna hans nú gengur ekki
upp.“
Úr forustugrein Washington Post 19. júní.
Af góðu fólki í Moskvu
„Margt gott er hægt að segja um úrslit fyrri um-
ferðar rússnesku forsetakosninganna. Maðurinn,
sem um tíma skaut heiminum skelk í bringu með
því að boða, að því er virtist, endurfæðingu fasis-
mans í Rússlandi, Vladimír Zhírínovskí, megnaði
aðeins að ná tuttugasta hluta atkvæðanna. Ef mað-
ur skipar Jeltsín í flokk með lýðræðissinnum, og
þrátt fyrir allt er sanngjarnt að gera það, fengu um-
bótasinnar um 60 prósent atkvæða, traustan meiri-
hluta og meira en í síðustu þingkosningum.“
Úr forustugrein Politiken 18. júní.