Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Síða 19
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
/féff/r,
Sameiningarmál:
Draumur um R-lista sam-
starf á landsmælikvarða
- segir Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona Kvennalista
„Auðvitað er til staðar draumur
um R-lista samstarf á landsmæli-
kvarða. En það er bara alltaf byrjað
á vitlausum enda. Menn byrja alltaf
á yfirlýsingum og tilboðum í stað
þess að kanna grunninn almennt og
að ræða um pólitík. Hvað eigum við
sameiginlegt, hvað viljum við og
hvað er fram undan? Hvað um
verkalýðsmál, hvað um velferðar-
kerfið og svo framvegis. Mér þykir
að það sé of mikiö verið að sýnast
og að þetta komi allt ofan frá,“ sagði
Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona
Kvennalista, um bréf það um sam-
vinnu vinstriflokkanna sem Mar-
grét Frimannsdóttir hefur sent út.
Hún ritaði bréf til formanna Al-
þýðuflokks, Þjóðvaka og formanns
þingflokks Kvennalistans, þar sem
óskað er eftir viðræðum um frekara
og víðtækt samstarf þessara flokka.
„Ég held að fólk sé tilbúið til að
ræða um samstarf innan þingsins,
en ég efast um að það sé raunveru-
legur vilji til frekara samstarfs
flokkanna," sagði Kristín.
„Ég er ekki viss um að vilji sé fyr-
ir frekara samstarfi, hvorki innan
Alþýðuflokksins né Alþýðubanda-
lagsins. Og við í Kvennalistanum
höfum ákveðna sérstöðu í þessum
málum,“ sagði Kristín Ástgeirsdótt-
ir.
-S.dór
Akureyri:
Viðurkenndi
fjárdrátt
DVi Akureyri:
Karlmaður, sem kærður var
til lögreglunnar á Akureyri,
viðurkenndi við yfirheyrslur
hjá rannsóknarlögreglunni að
l hafa dregið sér um 700 þúsund
■ krónur.
Maðurinn var starfsmaður
. verslunar í miðbænum og var í
1 fyrstu talið að fjárdrátturinn
I hefði numið milljónum króna
en siðar kom í ljós að um lægri
| upphæð var að ræða. Rannsókn
málsins mun vera á lokastigi.
-gk
Rússneski togarinn Makeyevka landar á Vopnafiröi.
DV-mynd Ari
Ársreikningar Reykjavíkur 1995:
Staðan versnaði
Peningaleg staða borgarsjóðs
versnaði um 1.115 milljónir króna á
árinu 1995 að því er fram kemur í
ársreikningum borgarinnar fyrir
árið 1995. Raunbreytingin til hins
verra er 852 milljónir kr. en verð-
breytingaþáttur ársins er 263 millj-
ónir kr. Ársreikningarnir voru til
fyrri umræðu á fundi borgarstjórnar
í gærkvöldi og síðari umræðan fer
fram á fundi borgarstjórnar eftir
viku. -SÁ
Eru stjóniraálaöfl og valdálikur í landinu að höndla
máforsetakœningamar tilað tryggja sér þægan forseta sem
undirritar hver þau ólögsem þeira dettur í hug að leiða yfir þjóðina?
Nú gptur þú valið forseta sem þorir að tala mffl þínu
ogverjahagsmuni fólksins ílandinu
Ástþór Magnússon
Maður sem gerir þín baráttumól að sínum
staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur
og stighækkandi birtingarafsláttur
55ð5000 A anfcigsg
Vopnaflörður:
Rússar landa ísfiski
DV, Vopnafirði:
Samningur hefur verið gerður
milli Tanga hf. hér á Vopnafirði og
rússnesks útgerðarfyrirtækis í Múr-
mansk um að skip frá Rússunum
landi hér isuðum fiski. Fram að
þessu hefur allur Rússafiskur, sem
hingað hefur komið, verið frosinn.
Fyrsti farmurinn kom í maílok.
Það var togarinn Makeyevka sem
landaði rúmlega 50 tonnum af Fiski
sem ísaður var í stíur. Þetta var að
langmestu leyti þorskur og alveg
þokkalegasta hráefni.
Togarinn tók hér kassa og ís og
einnig fór með honum íslendingur,
sem leiðbeinir rússnesku sjómönn-
unum um handbrögðin. Togarinn
landaði aftur 14. júni og var þá með
75 tonn af fallegum þorski sem að
mestu var veiddur suðaustur af
Bjarnarey. Togarinn tók aftur kassa
og ís og hélt á veiðar samdægurs.
Árangurinn af þessari tilraun
verður nú metinn með tilliti til
áframhaldandi veiða fyrir Tanga.
Svipuð tilraun var gerð 1994 en
gekk þá ekki upp. -AH
VUÞÚ
NE.GAN FORSHA?
Hverfisgötu og Hafnarstræti lokað vegna breytinga:
Tilraunaakstur strætó og
leigubíla vestur Hverfisgötu
Nú eru að hefjast framkvæmdir
við Hverfisgötu og Hafnarstræti.
Eftir breytingarnar verður strætis-
vögnum og leigubílum heimilaður
akstur eftir Hverfisgötu í vesturátt í
tilraunaskyni í eitt ár en almenn
umferð heldur áfram í austurátt
eins og verið hefur. Töluvert verður
að henni þrengt til þess að hægja á
henni. Við Þjóðleikhúsið verður
með þrengingum og steinlögn,
ásamt gróðri og lágri lýsingu, lögð
áhersla á mjög hæga umferð. Þar
verður reynt að laða fram torg-
myndun þótt akandi umferð komist
þar i gegn.
Vegna framkvæmdanna verður
Hverfisgötu lokað við Þjóðleikhúsið
og við Vitatorg en opið verður fyrir
akstur að þessum stöðum og á milli
þeirra. Allar þvergötur að götunni
verða opnar sem hingað til.
Hafnarstræti verður lokað til
frambúðar fyrir allri almennri um-
ferð milli Pósthússtrætis og Lækjar-
götu og er þessi aðgerð hugsuð til
þess strætisvagnar og leigubílar eigi
þar greiðari leið. Enn fremur er
meiningin að beina stærstum hluta
umferðarinnar af Hverfisgötu og
inn á Geirsgötu og Sæbraut.
Við Hafnarstræti verður opnuð
ný skiptistöð SVR, miðstöð þjónustu
í miðborginni. Við staðsetningu
vagnanna og frágang svæðisins
mun verða lögð áhersla á þjónustu-
hlutverk strætisvagnanna.
Heildarfjármagn til þessara fram-
kvæmda nemur 78 milljónum
króna. -sv
< ^
I- Q
</> U
kO s
<o
Einstaklingar, starfsmannafélög,
hópar.
Bjóöum upp á 3-4 tíma veiðiferð,
aflinn grillaður og meðlæti með.
Einnig útsýnis- og kvöldferðir.
Upplýsingar í síma 555 4630
eða 897 3430.