Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Síða 23
33"V LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
23
Oryggi dómsins lykilatriði
- tel nýja kerfið of dýrt, segir Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur
„Viö voauðumst eftir að
metið frá árinu 1994 yrði
slegið og miðuðum við sýn-
ingahald á Suðurlandi í
vor,“ segir Kristinn Huga-
son kynbótahrossaræktar-
ráðunautur.
„Árið 1994 var búið að
sýna 1319 hross á sama
tíma, en nú hafa verið sýnd
1147 hross.
Á Suðurlandi hefur sýn-
ingarhrossum fjölgað mjög,
úr 677 í 727, en fækkað að
sama skapi annars staðar,
sérstaklega á Norðurlandi.
Hluti af aukningunni á
Suðurlandi kemur frá úr-
valsræktendum á Norður-
landi sem hafa sent hross
suður fyrir heiðar.
Flestir bestu tamninga-
mennirnir eru á Suður-
landi, en auðvitað eru
margir snjallir knapar ann-
ars staðar, en það er eðli-
legt að hross séu send suð-
ur.
Ég hef verið að benda á
að sýningar eru undirstaða
mats á ræktuninni og rækt- Kristinn Hugason hrossaræktarráðunautur.
endur fyrir norðan verða að
taka sig á hvað varðar sýningar.
Sunnlendingar sækja sig
Ég hef farið um mestallt land
nema Eyjaijörð, Skagafjörð og Vest-
urland, en hef vitneskju um rækt-
unina þar og líst mjög vel á stöðu
mála í hrossaræktuninni.
Sunnlendingar eru að sækja í sig
veðrið, jafnt hvað varðar ræktunina
og sýningarhald almennt, sem er til
fyrirmyndar, og ég skora á alla
hestamenn að mæta á fjórðungsmó-
tið og sjá árangurinn.
Þá vil ég lýsa yfir ánægju minni
með útkomuna á Héraði. Þar var
ótrúleg frammistaða ári eftir fjórð-
ungsmót. Framfarirnar sýndu sig
glögglega í fyrra og aftur nú.
Það er sérstaklega töltið sem vek-
ur athygli. Allar fimm vetra hryss-
urnar voru með afbragðs tölt. Vald-
ir hafa verið góðir feður að hryssun-
um sem sjálfar eru úr góðum stofni.
Vildi ganga skemmra
í vor var tekið í notkun nýtt
form á dómum, samkvæmt vilja
fulltrúa bænda í hrossaræktar-
nefnd, en nú dæma þrir dómarar
sjálfstætt, en ekki í sameiginlegri
dómnefnd.
Ég vildi ganga skemmra, að unn-
ið yrði í dómnefnd, en hver dómari
dæmdi fyrir sig og að því loknu
væri samráðsfundur þar sem rök-
rætt yrði um dómana og fengin nið-
urstaða um eina tölu. Ef ekki væru
allir sammála réði meðaltal.
Villuhætta meiri
Nýja kerfið hefur sýnt fram á
ákveðna veikleika. Villuhætta er
mun meiri. Það er mannlegt að gera
skyssur og þegar dómarar geta ekki
stuðst hver við annan er meiri
hætta á að rangar tölur séu færðar
inn. Það er regla að dómarar geta
ekki breytt tölum eftir á þó að þeir
sjái að þeir hafi gert vit-
leysu.
Þá er það ljóst að dómar
verða öruggari ef menn
rökræða um þá. Menn
heyra skoðanir annarra og
geta betur metið hvað sé
rétt. Þegar dómnefndir
starfa fá dómarar stuðning
hver af öðrum sem er
mjög mikilvægt.
’Sumir dómaranna eru
ekki í mikilli þjálfun og
hætta á mistökum er
minni ef menn starfa sam-
an. Til dæmis voru í sum-
ar þrjár dómnefndir að
störfum í einu. Það er allt
gott fólk, en misjafnlega
vant og æft.
Öryggi dómsins er lykil-
atriði og eigendur hrossa
sem kosta milljónir eiga
kröfu á að reynslan nýtist
sem best.
Þá má nefna að dregið
hefur úr afköstum um
20%. Við dæmum um 40
hross á dag en gátum áður
með góðu móti dæmt 50
DV-mynd E.J.hross og árið 1994 dæmd-
um við 60 hross á dag. Þá
var hiklaust minna álag en nú.
Minnkandi afköst kosta peninga.
Sem dæmi má nefna að á Hellu í
sumar voru um 6,5 manns að vinna
á hverjum degi, þrír dómarar, sýn-
ingarstjóri, mælingamaður og skrif-
stofuvinna að meðaltali 1,5 dags-
verk.
Ég tel þetta kerfi alF of dýrt mið-
að við öryggi og tel að hægt sé að
nota kerfi sem er 30% ódýrara og
öruggara um leið.
Ein afleiðing nýja dómkerfisins
er að einkunnateygni er orðin mið-
læg á ný. Það er enginn vafi á því.
Það er mikill vandi að dæma sam-
kvæmt teygniskalanum. Dómararn-
ir sem eru minnst vanir eru mið-
lægastir. Það er eðlilegt.
Þó að tilraunir séu alltaf nokkurs
virði tel ég að þessi ferð hafi ekki
verið til fjár. En það er mikilvægt
að sátt náist um friðsamlega lausn á
dómaramálunum í vetur og mikið
er til af spennandi gögnum til við-
miðunar, segir Kristinn Hugason.
E.J.
„Eg fæ allar rekstrar-
og hreinlætisvörur
hjá Rekstrarvörum"
Jón Grétar hótelstjóri Hótel Eddu Skógum
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík
Sími 587 5554, Fax 587 7116
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22
Júlísprengja
Heimsferða
FRffiARVAKA
á Selfossi
, Mánudaginn24.júníkl20:30. halda
Astþór Magnússon ogstuðningsmmn jriðar
Friöarvoku íFramsóknamnum Eyranm 15 2. hœð.
BfysfórverðuraðSelfosskirkju ogstmamöfn
þaraðfundiíohum.
Kaffi á könnunni, allir hjartanlega velkomnir.
, Vestfirðinm, Isfirðingar!
Astþór Magnússon ogstuöningsmmnfi&irhafaoþ
kostningaskrifstofu á veitingahúsinuA EYRINNl
Erum léfrakl. 16:00 til B:00 og 20:00 til 22:00
virkadaga.
Umhelgjnafrákl. 13:00 til 20:00
Komið og rceðið máliö ytir kafibolla!
Smi:456-5Ö91
^sa st ^
Wfffi
tii Benidorm
frá 39.932
Heimsferðir bjóða nú glæsilegt kynningartilboð í júlí til
Benidorm, en nú er uppselt í nánast allar ferðir fram í júlí-
mánuð. Hér eru í boði afbragðs gististaðir og nú bjóðum við
sérstakt kynningartilboð á Central Park, góðum íbúðum með
frábærri staðsetningu í hjarta Benidorm.
Verð kr. 39.932
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 2l9U6.júlí,
El FarolCentral Park.
Verð kr. 49.960
’. 2 í íbúð, El FarolCentral Park, 219116. júlí.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600 WSH
Stökktu tii Benidorm
2. júlí frá 29.932
Fyrir þá sem vilja taka sénsinn
þá geta þeír tryggt sér ferðina á
ótrúlegu verði.
Þú bókar í 2 eða 3 vikur og
4 dögum fyrir brottför færðu
að vita hvar þú gistir í fn'inu.
Verð kr. 29.932
rn.v. hjón með 2 böm
Verð kr. 39.960