Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 27
JLÞ^ LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
tónlist 27
ísland
— plötur og diskar-
Bítillinn Pete Best fær
t 1. ( - ) Load
Mctallica
I 2. (1 ) Qskalög sjómanna
Ýmsir
I 3. ( 2 ) The Score
Fugees
t 4. ( 6 ) Jagged little Pill
Alanis Morisette
t 5. (3 ) Older
George Michael
t 6. ( 5 ) Down on the Upside
Soundgarden
t 7. ( 4 ) Ástfangnir
Sixties
t 8. ( 7 ) Rokkveisla aldarinnar
Ýmsir
t 9. ( 8 ) Evil Empire
Rage against the Machine
110. ( 9 ) To the Faithful Departed
The Cranberries
111. (13) Outside
David Bowie
J 12. (12) Reif í botn
Ýmsir
113. (Al) (Whats the Story) Morning Glory?
Oasis
J 14. (14) Falling into You
Celine Dion
115. (18) GlingGló
Björk & Tríó Guómundar Ingólfss.
116. (- ) Trainspotting
Úr kvikmynd
117. (11) Gangsta's Paradise
Coolio
118. (- ) Pjók
Ýmsir
119- (10) Sunburned & Paranoid
Skunk Anansie
J 20. (20) Wild Mood Swings
Cure
London
-lög-
t 1. (-) Killing Me softly
Fugees
J 2. ( 2 ) Three Lions
Baddiel & Skinner & Lightning S...
J 3. ( 3 ) Mysterious Girl
Peter Andre featuring Bubbler R...
t 4. (- ) The Day We caught the Train
Ocean Color Scene
t 5. (- ) Don't Stop Movin'
Livin' Joy
t 6. (- ) Blurred
Pianoman
t 7. ( - ) Theme from Mission Impossible
Adam Clayton & Larry Mullen
J 8. ( 8 ) Because Ýou Loved Me
Celine Dion
t 9. ( 6 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
t 10. ( 5 ) Naked
Louise
NewYork
J 1.(1) The Crossroads
Bone Thugs-N-Harmony
J 2. ( 2 ) Always Be My Baby
Mariah Carey
t 3. ( 4 ) Give Me one Reason
Tracy Chapman
t 4. ( 7 ) You're Makin' Me High/Let It Flow
Toni Braxton
t 5. ( 3 ) Bocause You Loved Me
Celine Dion
t 6. ( 5 ) You're the One
SWV
t 7. ( 6 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
t 8. ( 9 ) Ironic
Alanis Morisette
t 9. ( 8 ) Fast Love
George Michael
t 10.(11) Theme from Mission Ipossible
Adam Clayton & Larry Mullen
Bretland
— plötur og diskar-
t
t
t
t
t
t
t
t
t
1. ( - ) Load
Metallica
2. ( 1 ) Older
George Michael
3. ( 2 ) Jagged little Pill
Alanis Morisette
4. ( 3 ) The Score
Fugees
5. ( 6 ) Falling into You
Celine Dion
6. ( 7 ) Moseley Shoals
Ocean Color Scene
7. (10) Ocean Drive
Lighthouse Family
8. ( 4 ) (What’s the Story) Morning G...
Oasis
9. ( 5 ) Everything Must Go
Manic Street Preachers
t 10. ( 8 ) 1977
Ash
Bandaríkin
— plötur og diskar—
I
J 1. (1 ) The Score
Fugees
t 2.(4) Jagged little Pill
Alanis Morissette
t 3. ( 5 ) Falling into You
Celine Dion
t 4. ( 6 ) New Beginning
Tracy Chapman
t 5. ( 2 ) Down on the Upside
Soundgarden
t 6. ( 3 ) Gettin' It
Too Short
t 7. ( 8 ) Crash
The Dave Matthew Band
t 8. ( 7 ) Fairweather Johnson
Hootie & the Blowfish
t 9. (15) E. 1999 Eternal
Bone Thugs-N-Harmony
|10. (10) To the Faithful Departed
The Cranberries
uppreisn æru - og peninga
Pete Best er hér lengst til hægri. Myndin er tekin um það leyti sem hann var rekinn úr hljómsveitinni The Beatles.
Hann erfir ekki gamlar misgjörðir viö sína fornu félaga.
Pete Best er almennt álitinn
óheppnasti dægurtónlistarmaður
allra tíma. Hann var rekinn úr
hljómsveitinni The Beatles fáeinum
dögum áður en hún skaust upp á
stjörnuhimininn síðla árs 1962 og er
þar ennþá, tuttugu og sex árum eft-
ir að hún hætti. Pete Best segir hins
vegar núna að hann sé alls ekki bit-
ur vegna hremminga sinna og að
hann sé loksins farinn að njóta þess
sem honum bar: viðurkenningar og
greiðslna fyrir hljóðritanir sem
hann tók þátt í.
Pete Best er kominn á miðjan sex-
tugsaldurinn og er enn að spila.
Með honum í The Pete Best Band
eru fimm ungir menn sem voru enn
ófæddir þegar Bítlamir hættu sam-
starfi árið 1970. Þeir spila hefðbund-
ið rokk og þar á meðal nokkur göm-
ul Bítlalög með sínum hætti.
Umdeildur brottrekstur
Brottrekstur Petes Bests úr fræg-
ustu hljómsveit allra tíma hefur alla
tíð veriö umdeildur og skýringar á
honum verið misvísandi. Margir
fullyrða að upptökustjóri The Beat-
les, George Martin, hafi krafist þess
að Best yrði látinn fara og betri
trommuleikari fenginn í staðinn.
Martin hefur hins vegar sagt í við-
tölum að hann hafi engan þátt átt í
brottrekstrinum. Hann hafi að vísu
óskað eftir því að fá utanaðkomandi
trommuleikara til að spila með
hljómsveitinni þegar lögin Love Me
Do og P.S. I Love You voru hljóðrit-
uð sumarið 1962 en það hafi veriö
alvanalegt á þeim tíma. Enda hafi
Ringo Starr síður en svo verið eini
trommuleikarinn í hljóðverinu þeg-
ar lögin voru síðan tekin upp. Sök-
in sé því ekki sín.
Það var Brian Epstein, umboðs-
maður Bítlanna, sem fékk það hlut-
verk, nauðugur, að reka Pete Best
og hann gaf þá ástæðu að hinir þrír,
Paul, John og George, teldu hann
ekki nógu góðan til að vera í hljóm-
sveitinni. Ýmsir sérfræðingar í
Bítlamálefnum telja að þessi skýr-
ing haldi ekki og benda á að Pete
Best hafi síst verið verri hljómlist-
armaður en til dæmis Ringo Starr
eftir gríðarlega skólun á öldurhús-
um Hamborgar. Sjálfur segir Pete
Best að Ringo og raunar flestir aðr-
ir ungir trommuleikarar í Liverpool
hafi hermt eftir þeim stíl sem hann
tileinkaði sér á Hamborgartíman-
um.
Um það leyti sem The Beatles
komu heim til Liverpool úr annarri
ferð sinni til Hamborgar var Pete
Best orðinn vinsælasti liðsmaöur
hljómsveitarinnar meðal stúlkna.
Hann þótti myndarlegastur fjór-
menninganna og jafnframt sá mest
spennandi því að hann brosti aldrei
og sagði fátt. I fyrsta skipti sem æst-
ir aðdáendur gerðu aðsúg að hljóm-
sveitinni á sviði hafði Pete einmitt
verið stillt fremst á sviðið sem er
afar sjaldgæft að gert sé með
trommuleikara. Sú uppstilling var
ekki notuð aftur. Hugsanleg skýring
á brottrekstrinum er talin sú að
trommuleikarinn hafi verið um of
farinn að skyggja á leiðtogana, John
og Paul. Að auki önnuðust hann og
móðir hans, Mona Best, fjármál
hljómsveitarinnar allt þar til Brian
Epstein var ráðinn og ef til vill hef-
ur brottreksturinn jafnframt verið
ein leiðin til að losna við afskipta-
sama móðurina fyrir fullt og allt.
En um þetta verður endalaust velt
vöngum og niðurstaðan fæst víst
aldrei.
Loksins viðurkenndur
Pete Best og gömlu félagarnir í
The Beatles hafa ekki ræðst við síð-
an Pete var rekinn. Hann hefur
löngum verið sagður bitur vegna at-
burðarins en segir nú að svo sé
ekki. Þvert á móti segist hann nú
hafa öðlast þá viðurkenningu sem
honum beri og hún hafi komið eftir
að platan Anthology 1 kom út seint
á síðasta ári. Platan er tvöfóld og
hefur meðal annars að geyma tón-
list sem Bítlarnir hljóðrituðu áður
en þeir slógu í gegn. Pete Best spil-
ar þar á trommur í tíu lögum. Plat-
an hefur selst í milljónum eintaka
og verður gamla trommuleikaran-
um greitt fyrir þátt sinn í gömlu
upptökunum eins og honum ber.
Það munu vera fyrstu peningarnir
sem Pete Best fær fyrir veru sína í
The Beatles þegar frá eru talin laun-
in í Hamborg og á klúbbum í Liver-
pool. Allan Williams, gamall starfs-
maður hljómsveitarinnar frá árun-
um 1959-1961, bendir hins vegar á
að Pete Best hafi í raun og veru spil-
að lengur með The Beatles en Ringo
Starr sé viðveran mæld í vinnu-
stundum. Hann hafi þvi átt veruleg-
an þátt í að leggja grunninn að því
sem síðar varð mesta veldið í popp-
heiminum fyrr og síðar.
Pete Best segist ekki vita hve
mikið hann á eftir að bera úr býtum
vegna Anthology plötunnar. „Sumir
segja mér að ég verði milljónamær-
ingur áður en þetta ár er á enda.
Við skulum bara bíða og sjá. Ef sú
spá rætist verð ég náttúrlega afar
kátur en peningar skipta ekki
mestu máli í lífinu."
Best bendir í því sambandi á að
gamlir félagar hans hafa það vissu-
lega afar gott fjárhagslega. En þeir
eiga ekkert einkalif, hjónabönd
flestra hafa endað með skilnaði og
það er alls ekki að sjá að þeir séu
hamingjan uppmáluð þá sjaldan að
þeir birtast opinberlega.
„Þeir eru í raun og veru eins og
að þeir búi í klaustri," segir Pete
Best. „Það er refsingin fyrir að ná
árangri i lífinu. Ég er ekki reiður
þessum fyrrverandi félögum mínum
fyrir neitt. Frekar að ég vorkenni
þeim. Það sem gerðist fyrir þrjátíu
árum heyrir sögunni til. Ef við hitt-
umst núna færi ég ekki að riija það
upp. Frekar að ég myndi spjalla við
þá um það sem er nú að gerast og
það sem framtíðin ber í skauti sinu.