Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Síða 34
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 iO %}
•. 'JLmm!gmm mmm
42 mnmm
Langamma á fullri ferð:
Blés eins og
smiðjubelgur
- áður en ég hætti að reykja
Alda Siguröardóttir, lengst til hægri, á ferö í
Seltjanarness.
góöa verðinu fyrr í vikunni meö félögum sínum í Trimmklúbbi
DVmynd Pjétur
Alda Sigurðardóttir hleypur 30 til 60 km á
viku og segir það allra meina bót
Þær eru ekki margar langömmumar sem
skeiða um götur og gangstíga Seltjarnarness
og Reykjavíkur og það eina 10 til 15 kílómetra
þrisvar til fjórum sinnum í viku. Við kynnum
hér þó fyrir lesendum DV eina langömmuna
sem þetta gerir. Hún heitir Alda Sigurðardótt-
ir, er sjúkraliði og ættuð vestan af ísafirði.
Hún er sjö barna móðir, á 12 barnaböm og
auk þess tvö barnabarnabörn.
Alda flutti árið 1956 til Hafnarfjarðar með
fjölskyldu sinni og tók þar þátt í fimleikum og
handbolta með Fimleikafélagi Hafnarfjarðar,
FH. Síðan tók við langt hlé frá
öllum íþróttaiðkunum, börnin
fæddust og fjölskyldan tók allan
tímann.
„Það var síðan fyrir rúmum
fimm árum að ég ákvað að byrja
að hlaupa," segir Alda. „Ég
reykti á þeim tíma og bara
þónokkuð mikið. Fljótlega kom í
ljós að reykingarnar og skokkið
fór ekki saman. Ég blés eins og
smiðjubelgur og tók andköf og
var aldrei ánægð með ástandið, þó svo ég væri
nokkuð dugleg við skokkið.
Ég fann að ég varð að hætta að reykja og
reyndar hafði ég svo sem vitað að það var
löngu tímabært. Auðvitað hafði ég heyrt að
hætt væri við að maður fitnaði heil ósköp við
að hætta að reykja og þannig byrjaði það líka
hjá mér. Þá greip ég til þess ráðs að hlaupa
langhlaupin og það var eins og við manninn
mælt, mér tókst að halda kílóunum í skefjum.
Reyndar hafa hlaupin reynst mér allra meina
bót. Ef eitthvað bjátar á, hvort sem það er eitt-
hvað i vinnunni, saumaskapnum, sem ég
stunda töluvert, eða þá ég er þung í skapi fer
ég út að hlaupa. Þá léttist lundin fljótt og
lausn á vandamálum kemur upp í hugann.“
Alda segist vita það nú að stundum hafi
hún farið heldur geyst í hlaupin í byrjun.
Kappið hafi verið mikið og hún hafi ekki
alltaf gætt hófs. Hún hleypur yfirleitt með fé-
lögum sínum í TKS á Seltjamarnesi. En vegna
þess að hún stundar vaktavinnu verður að að-
laga hlaupin því og þá hleypur hún ein.
„Hvort tveggja er ágætt en félagsskapurinn er
nauðsynlegur," segir Alda Sigurðardóttir, hin
58 ára langamma að lokum.
fram undan.
Öshlíðarhlaup á milli Bolungarvíkur
og ísafjarðar fer fram í dag. Hlaupiö er
4 km, 10 km og hálfmaraþon.
Þorvaldsdalsskokk verður 29 þ.m.
og hefst við Fornhaga í Hörgárdal í
Eyjafiröi og endar við Árskógsskóla.
Skokkiö, sem reyndar er ekkert venju-
legt skokk heldur 26 km metra vega-
lengd um erfiða leið, er ætlað bæði
fyrir hlaupara og göngufólk. Tímatöku
verður hætt 6 klukkustundum eftir að
hlaupið hefst. Þátttöku á að tilkynna
til Bjarna Guðmundssonar í síma 462
4477.
Skúlaskeið, 3 km fjölskylduhlaup,
veröur í -Viðey 29. þ.m. Það hefst
klukkan 14.00. Allir sem Ijúka hlaup-
inu fá verölaunapening. Upplýsingar á
skrifstofu Reykjavíkurmaraþons í
sima 588 3399.
Suðurnesjamaraþon, sem nýtur
vaxandi vinsælda, á að hefjast viö
Gleraugnaverslun Keflavíkur viö Hafn-
argötu 30. júní nk. klukkan 14.00.
Vegalengdir veröa 3 km
skemmtiskokk, 7 km og 25 km.
Egllsstaðamaraþon veröur líka 30.
júní nk. en það á aö hefjast við sölu-
skála ESS0 kl. 12.00. í hálfmaraþoni
veröur flokkaskipting fyrir þæöi kynin:
16-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára og
60 ára og eldri. Allir sem Ijúka hlaup-
inu fá verðlaunapening og sérstök
verðlaun verða fyrir fyrstu þrjá í hverj-
um aldursflokki. Upplýsingar á skrif-
stofu UÍA í síma 4711353.
1200 manns
hafa gengið
í raðgöngunni
Rétt um 1200 manns hafa nú tek-
ið þátt í raðgöngu Ferðafélags fs-
lands og Útivistar, sem hófst við
Reykjanesvita og á að Ijúka á Þing-
völlum. Fjórði áfanginn, sem farinn
var um síðustu helgi, var frá Skála-
Mælifelli við fsólfsskála nærri
Grindavík og að Djúpavatni. Að
sögn Ólafs Sigurgeirssonar, eins
göngumanna, var veðrið bjart en
svolítið hvasst. Hátt í tvö hundruð
manns tóku þátt í göngunni þennan
dag. „Hópurinn dreifðist nokkuð
enda gengu menn misjafnlega hratt.
Þarna voru líka með í ferð skokkar-
ar sem notuðu tækifærið og tóku
„létta“ æfingu á fjöllum og síðan
var auðvitað misjafnlega hraðfara
fólk,“ sagði Ólafur. „Ég er undrandi
hvað hópurinn sem gengur er orð-
inn stór og fyrir mig eru þetta bæði
forréttindi og ánægja að geta gengið
með svona frísku fólki.“ Ólafur er
reyndar sjálfur vanur göngumaður,
sem tekið hefur þátt í starfi Ferðafé-
lags íslands um árabil.
Fimmti áfangi raðgöngunnar
verður síðan sunnudaginn 30. júní
nk. og verður þá farið frá Kaldárseli
og gengið i skála í Bláfjöllum. Rútur
fara frá Bifreiðastöð íslands.
Hlé verður gert á raðgöngunni í
júlí en hafist aftur handa sunnudag-
inn 11. ágúst og gengið úr Bláfjöll-
um að Draugatjömum rétt við Kol-
viðarhól þar sem gamla sæluhúsið
Styrktaraðili Reykjavíkurmaraþons
stóð og draugagangur er sagður
mikill.
Áttundi og lokaáfangi raðgöng-
unnar er síðan fyrirhugaður hinn 8.
september og verður hann frá
Nesjavöllum að Þingvöllum.
Þátttakendur í þriðja áfanga raðgöngu Feröafélags Islands og Útivistar. I
baksýn sést Stóri hrútur austan Grindavíkur og þar aö baki sér í
Fagradalsfjall. DVmynd ÓlSigurg.
Reykjavegur - gönguleið
Faxaflói
Keflavík
Grindavík
fepsnes||j.s;-:®>sw'
=€1X3=^
4.vika. 23/6-29/6 , JJjO 10 km 21 km Í&jjj 42 km
Sunnudagur 7 km ról. 16 km ról 22 km ról.
Mónudagur Hvild Hvíld Hvild
Þriðjudagur 6 km (Hruðoleikur) Fyrsl 1 km ról. og siðon 1 km hrott lil skiptis. somtols 4x1 km. Siðon 2 km. ról. i lokin 10 km (Hroðoleikur) Fyrst 2 km ról.og siðon 2 km hrott til skiptis somtols 4x 2 km. Síðon 2km ról. ilokin. 10 km (Hraðoleikur). Fyrst 2 km ról.og siðon 2 km hrolt til skiplis somtols 4x 2 km. Siðon 2 km. ról. i lokin.
Miðvikudagur 5 km ról. 12kmról. !5kmról.
Fimmludngur 3 km. jofnt 6 km jafnt 8 km jofnt
Föstudogur 4 km ról lOkm ról lOkmról
Lougordagur Hvfld Hvíld 10 km ról
Somt: 25 km. 54 km 73 km JBH
Miðnæturhlaup
á Jónsmessu
á morgun
Hið árlega Miðnæturhlaup á
Jónsmessu fer fram í fjórða sinn í
Reykjavík á morgun, sunnudag, og
hefst að venju klukkan 23.00. Þetta
sérstæða hlaup hefur öðlast miklar
vinsældir og í fyrra hlupu um 1400
manns og hefur þátttakendum fjölg-
að ár frá ári. Þeir hafa verið víðs
vegar af landinu og einnig hefur
nokkur fjöldi útlendinga mætt til
leiks og svo verður einnig að þessu
sinni. Þykir erlendu gestunum mik-
ið til koma að hlaupa og koma í
mark um miðnætti þegar varla
bregður birtu.
Vegalengdir í Miðnæturhlaupinu
eru tvær, 3 km skemmtiskokk án
tímatöku og síðan 10 km með tíma-
töku, þar sem keppt er i eftirtöldum
flokkum beggja kynja: 18 ára og
yngri, 19-39 ára, 40-49 ára, 50-59 ára
og 60 ára og eldri. Hlaupið er um
Laugardalinn og byrjað og endað
við Sundlaugina. Þar fer skráning
einnig fram. Þátttökugjald er 800
krónur fyrir fullorðna og 600 krón-
ur fyrir 12 ára og yngri. fnnifalið er
verðlaunapeningar, svaladrykkir og
útdráttarverðlaun. Frítt er í sund
fyrir alla þátttakendur að hlaupi
loknu.
er styrktaraðili
Reykjavíkurmaraþonsins
FLUGLEIÐIR
MMrm
0