Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Side 35
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
„Ég veit ekki hvað menn eiga við
þegar þeir segja að við Vestfirðing-
ar séum farnir að dansa með í
kvótakerfinu. En fyrst það er kvóta-
kerfi í landinu þá sér hver maður
að ekki er um annað að gera fyrir
okkur Vestfirðinga en að taka þátt í
því, enda þótt við séum því andvíg-
ir...,“ sagði Einar Oddur Kristjáns-
son, alþingismaður og útgerðarmað-
ur á Flateyri, í samtali við DV í lið-
inni viku. Hann var þá spurður
hvers vegna Vestfirðingar hefðu
ekki mótmælt kvótanum á steinbít
og afnámi línutvöföldunarinnar og
kvótasetninu á 60 prósent aukaafl-
ans.
Um leið og Vestfirðingar hætta að
mótmæla kvótakerfinu og taka við
kvóta á steinbít án nokkurra and-
mæla er ljóst að kvótakerflð hefur
endanlega fest sig í sessi. Vestfirð-
ingar hafa allar götur frá því kvóta-
kerflð var sett á 1983 verið þvi and-
vígir og mótmælt því hvar sem þeir
hafa komið því við þar til nú.
„Nánast dauðadómur"
Árið 1990 stóð til að setja kvóta á
steinbítsveiðamar. í viðtali við DV í
október það ár sagði Hinrik Krist-
jánsson, þáverandi útgerðarmaður
en núverandi framkvæmdastjóri
Fiskverkunarinnar Hafnar hf. á
Flateyri, sem er stærsta fyrirtækið
þar:
„Það er nánast dauðadómur fyrir
okkar útgerð ef steinbítur fer undir
kvóta um næstu áramót." Hann hef-
ur ekki mótmælt núna.
Einar Oddur Kristjánsson sagði í
samtali við DV í nóvember 1991 að
öll útgerðarfyrirtæki á Vestflörðum
riðuðu til falls:
„Kvótakerfið hefur leikið okkur
svona.“
í apríl 1995 sagði hann í samtali
við DV:
„Það hefur verið tekist á um sjáv-
arútvegsmálin innan Sjálfstæðis-
flokksins frá því að þessi óskapnað-
ur, kvótinn, var loginn inn á Al-
þingi og við teljum okkur vita og
þekkja það að það sé lífsnauðsynlegt
fyrir þjóðina í heild að við komumst
út úr þessari endemis vitleysu."
Einar K. Guðfinnsson alþingism-
aður sagði i apríl 1995 í samtali við
DV:
„Við getum ekki, munum ekki og
viljum ekki styðja þá ríkisstjórn
sem ekki breytir þessu kvótakerfi."
Þess vegna hlýtur sú spurning að
vakna nú hvers vegna þessi stefnu-
breyting hefur átt sér stað hjá Vest-
firðingum.
Hundruð milljóna til útgerðarfyr-
irtækjanna
Það er engin spurning að Einar
Oddur Kristjánsson á stærstan þátt
i því að línutvöföldunin er afnumin
og línubátar fá 60 prósent af auka-
afla nú sem aukinn kvóta og að
steinbíturinn er settur inn í kvóta-
kerfið. Eins og kemur fram í orðum
hans í upphafi þessa fréttaljóss
verða menn að taka þátt í kvótakerf-
inu fyrst það er til staðar í landinu.
Um leið og hann viðurkenndi þessa
staðreynd sá hann líka nauðsyn
þess að koma steinbítnum inn í
kvóta, sem að mestu leyti fer til
báta á Vestflörðum. Einnig fá bátar
þar stóran hluta kvótans við afnám
línútvöfóldunar. Einar Oddur vissi
því alveg hvað hann var að gera
Afnám línutvöföldunar er mikill fengur fyrir þá báta sem hafa stundað línuveiöarnar undanfarin ár. Þeir fá nú sem varanlegan kvóta 60 prósent af þeim afla
sem fékkst viö tvöföldunina. Þaö magn er rúmar 10 þúsund lestir að viröi rúmlega 6 milljarðar króna. DV-mynd BG
fréttaljós
á laugardegi
Sigurdór Sigurdórsson
eins og svo oft áður.
Með því að setja kvóta á steinbít-
inn og að afnema línutvöföldunina
en láta linubátana fá aukinn kvóta
er verið að færa útgerðarfyrirtækj-
um á Vestflörðum, og raunar þeim
sem stundað hafa veiðar á línu-
tvöldunartímanum, um 6,1 milljarð
króna í þorskkvótaeign og 1,3 millj-
arða í steinbítskvótaeign. Veðhæfni
fyrirtækjanna eykst að sama skapi
við þennan aukna kvóta.
Ástæðan fyrir þögninni
Verð á þorskkvóta er um 600
krónur kílóið en leigugjaldið rúmar
90 krónur. Ekki er vitað hvert verð-
ið verður selji menn steinbítskvóta
sinn. Þó telja kunnugir að það verði
um 100 krónur fyrir kílóið en það
kemur ekki í ljós fyrr en á næstu
steinbítsvertíð.
Steinbítsaflinn í fyrra var 12.500
lestir og afli línubáta á tvöfóldunar-
tímabilinu var 34.400 lestir. Helm-
ingur þess afla er því 17.200 tonn og
60 prósentum af honum verður út-
hlutað sem kvótaeign til línubát-
anna og verður miðað við tvö bestu
ár þeirra af síðustu þremur.
Það er auðvitað vegna þessa að
enginn á Vestflörðum eða annars
staðar mótmælir kvótasetningu á
steinbít og afnámi línutvöfoldunar
núna.
Nú eru allar fisktegundir sem
skipta máli í veiðum okkar íslend-
inga komnar inn í kvótakerfið. Utan
kvóta eru tegundir eins og blálanga,
keila og lúða. Sáralítið er veitt af
þessum fisktegundum, þær slæðast
með öðrum afla.
Kvótaauðurinn
í útreikingum DV, sem birtir
voru fyrir skömmu, kom fram að
leiguverð á hvert kvótakíló af
þorski er um 90 krónur en söluverð
kvóta 540 krónur kílóið en er nú tal-
ið vera um 600 krónur.
Það þýðir að söluverðmæti
þorskkvótans í fyrra var 83 til 85
milljarðar króna. Nú hefur kvótinn
verið aukinn um 30 þúsund lestir og
sú kvótaaukning þýðir 18 milljarða
til viðbótar í kvótasöluverðmæti.
Þar með er kvótaauðurinn kominn
yfir 100 milljarða króna í þorskin-
um einum.
Verð á leigðum úthafsrækjukvóta
hefur verið 85 krónur kílóið og sölu-
verðið 340 krónur.
Karfakvótinn, þ.e. djúpkarfi og
gullkarfi, er leigður á 35 krónur
kilóið en seldur á 160 krónur.
Þar er leiguverð loðnukvóta 0,50
krónur á kUó og söluverð 7,50 krón-
ur.
Leiguverð ýsukvóta er um 10
krónur kUóið og seldur kvóti 110
krónur.
Humarkvótinn hefur verið leigð-
ur á 340 krónur kílóið en seldur á
2.100 krónur hvert kUó. Grálúðu-
kvótinn er leigður á 35 krónur kUó-
ið og seldur á 160 krónur.
Ufsakvótinn hefur verið leigður á
3 krónur en seldur á 60 krónur.
Leigður síldarkvóti hefur farið á
6,90 krónur kílóið en seldur á 28
krónur.
n kvéfi línubáta
Skarkolakvótinn hefur verið
leigður á 18 krónur kílóið en sölu-
verð kvótans er 135 krónur.
Hörpudiskskvóti hefur verið
leigður á 4 krónur kUóið en seldur á
30 krónur.
Haldist góðæri í sjónum og kvót-
inn verði aukinn á hinum ýmsu teg-
undum, og þá alveg sérstaklega á
þorski, lækkar kvótaverðið og leig-
an en þó ekki að marki fyrr en
heildarþorskkvótinn er kominn yfir
230 til 250 þúsund tonn.
-S.dór
Þorskur
Enginn kvóti '95
Steinbítur
13 þúsund
Kvótl í lestum '95
Kvóti í lestum '96
■ Auknlng kvótaverömætis
Aukning kvótaverðmætis:
1,3 milljarðar króna
Auknlng kvótaverðmætis: 18 milljarðar króna
155 þúsund
Afnám línutvöföldunar og steinbítskvóti:
Kvótaeign útgerðarinnar
eykst um rúma 6 milljarða
— Vestfirðingar hættir að mótmæla kvótanum og þar með á hann fáa óvini lengur