Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1996 Fréttir DV Fljótsdalsvirkjun enn inni í myndinni - ekki þörf á svo mikilli orku „Þeir valkostir sem nú er verið að skoða í stóriðju eru ekki það stórir að til byggingar Fljótsdalsvirkjunar þurfl að koma. Atlantsál- hópurinn hefur verið að skoða þessi mál. Ef álver af sömu stærðargráðu og hann hefur verið að spá í kæmi hingað yrði Fljótsdalsvirkjun sennilega byggð,“ segir Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Fljótsdalsvirkjun hefur verið i deiglunni um nokkurt skeið. Um tíma leit út fyrir að af framkvæmd- um yrði en upp á síðkastið hefur hún lítið verið í umræðunni. Forgangsröð í framkvæmd- um „Röð virkjunarframkvæmda byggist á stærð hins nýja markaðar sem ætlunin er sjá fyrir rafmagni og tímaþættinum. Forsendan fyrir þeim framkvæmdum við jarðhita- virkjanir sem nú er ráðgert að fara út í er Columbia-álverið. Þeim hjá Columbia liggur mikið á að fá ork- una og vilja fá hana á 1V2 til 2 árum. Brugðist er við þvi með þeirri upp- byggingu sem er fljótlegust en ekki endilega hagkvæmust. Ef Columbia- menn þyrftu ekki orkuna fyrr en eftir 5 ár myndi allt eins koma til greina að virkja einhverja vatnsafls- virkjun, til dæmis á Þjórsársvæð- inu.“ Þorsteinn segir að á Austfjörðum séu staðir sem menn telja vænlega fyrir stóriðju og þá sérstaklega Reyðarfjörður en ekkert liggur fyrir um fyrirtæki sem vilja fara þangað. „Það er til dæmis vitað að Col- umbia vill vera við Grundartanga. Atlantsálhópurinn skoðaði ýmsa möguleika á sínum tíma og valdi Keilisnes. Hann hefur lagt peninga í undirbúning og rannsóknir á þeim stað þannig að það er ekki til um- ræðu hjá honum að fara eitthvað annað. Öll leyfi til vegna Fljótsdals- línu Nokkur styr hefur staðið um Fljótsdalslínu, m.a. vegna sjón- mengunar í Ódáðahrauni, en þau mál eru leyst. „Þetta er frágengið, sá hluti sem þurfti senda í gegnum umhverfis- mat hefur verið sendur þar í gegn, þannig að öll leyfí eru fyrir hendi til að byggja þá línu. Línan verður þó ekki byggð fyrr en einhver stór virkjun, eins og Fljótsdalsvirkjun, verður byggð á Austurlandi. Þá yrði hún flutningslína fyrir rafmagnið þaðan. Sú lína myndi liggja frá Fljóts- dalsvirkjun, greinast í Bárðardal og tengjast Akureyri annars vegar og Búrfellssvæðinu um Sprengisand. Með henni yrði hægt að flytja raf- magn frá virkjuninni áfram eftir kerfmu, til dæmis til Suðvestur- lands ef til álversframkvæmda kæmi á Keilisnesi." -SF Snorri Sturluson RE: Nýtt skip með gamla sál - eftir endurbætur upp á 330-340 milljónir „Það má segja að skipið sé nú sambærilegt við nýtt frystiskip," sagði Sigurbjörn Svavarsson, út- gerðarstjóri Granda, 1 samtali við DV en Snorri Sturluson RE er ný- kominn frá Vigo á Spáni þar sem gagngerar breytingar og endurbæt- ur voru gerðar á skipinu. „Skipið var lengt um sex metra sem eykur burðargetu þess til muna. Vélarrýmið var allt endur- nýjað svo og brúin, skipt var um að- alvél, gír, skrúfu, skrúfuhring og spil ásamt fleiru. Það má segja að það sem er fyrir aftan borðsal sé allt endurnýjað," sagði Sigurbjörn enn fremur. Breytingarnar kosta 330-340 millj- ónir en að sögn Sigurbjörns kostar nýtt frystiskip einn og hálfan millj- arð þannig að það hafi borgað sig að fara þessa leið því að skrokkur skipsins, sem er frá árinu 1972, sé í mjög góðu lagi. Skipið staldrar stutt við hér því það heldur til veiða í Smugunni eft- ir helgi. -gdt Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda, og Sigurbjörn Svavarsson, útgerðarstjóri Granda, við komu Snorra Sturlu- sonar RE til Reykjavíkur eftir endurbætur á Spáni. Dvalarheimili aldraðra á Suðurnesjum: Fjárveitingar lækka DV, Suðurnesjum: Á aðalfundi Dvalarheimilis aldr- aðra á Suðurnesjum, sem haldinn var nýlega, kom fram í máli Jór- unnar Guðmundsdóttur, formanns stjórnar, að á Garðvangi í Garði dvelja að jafnaði 38 vistmenn. Með- alaldur þeirra er 85,3 ár, legudagar í fyrra voru 13.496. Hún segir að ijárveitingar hafi lækkað á sama tíma og umönnun verði erfiðari. Lengra verður ekki gengið í niðurskurði án þess að það komi niður á þeirri þjónustu sem þau vilja veita. Hún segir að það sé sérstök ánægja að geta tekið nýja áfangann í notkun við Garðvang á 20 ára afmælisári heimilisins en hann mun gjörbreyta allri aðstöðu til hins betra. Hún segir að nú liggi fyrir að útbúa vísi að hálflokaðri deild fyrir heilabilaða á Garðvangi. Á Hlévangi í Keflavjk voru legu- dagar 11.240 og vistmenn um 31 og segir Jórunn að boðið hafi verið upp á hvíldarinnlagnir. Meðalaldur fólksins var í mars sl. 84,3 ár. Hún segir að 16 aðilar séu á biðlista. Fram kom i máli Finnboga Björns- sonar, framkvæmdastjóra D.S., að rekstrartekjur Garðvangs námu rúmlega 105 milljónum og varð tæp- lega 231 þúsund króna rekstraraf- gangur. Ójafnaður halli er nú rúm- lega 764 þúsund. Rekstrartekjur Hlé- vangs námu tæpum 40 milljónum og varð 4,3 milljóna króna halli. -ÆMK Tónlistarskóli Borgarfjarðar: Lág skólagjöld DV, Akranesi Á aðalfundi samráðsnefndar um tónlistarfræðslu í Borgarfirði, sem fram fór fyrir skömmu, kom fram að nemendur við Tónlistarskóla Borgarfjarðar voru 189 sl. vetur. Flestir eru að læra á píanó og er mikil aðsókn í skólann og margir á biðlista. Heildartekjur skólans á síðasta ári voru 14,8 milljónir og heildar- útgjöld 14,6 milljónir. í tillögu að fjárhagsáætlun fyrir skólann á þessu ári er gert ráð fyrir að fram- lag sveitarfélaga verði 3.950 kr. á hvern íbúa og að tekjur verði svip- aðar. Nokkur umræða varö um skólagjöld á fundinum og var sam- þykkt að beina því til skólanefnd- ar að hækka þau og hafa til hlið- sjónar skólagjöld í sambærilegum skólum á Vesturlandi en gjöldin í Tónlistarskóla Borgarfjarðar eru með þeim lægstu á landinu. -DÓ Mikilvægt aö sveitarfé- lögin eigi gott samstarf DV, Suðurnesjum: „Það hefur verið ákveöið að Gerðahreppur, Vatnsleysustrand- arhreppur og Sandgerðisbær muni kaupa þjónustu af skólamálaskrif- stofu Reykjanesbæjar. Grindvík- ingar vilja halda sínum málum fyrir utan. Ég hefði hins vegar kos- ið að þeir hefðu verið með,“ sagði Sigurður Jónsson, sveitarstjóri Gerðahrepps, við DV. Skólamálaskrifstofa Reykjanes- bæjar, sem er rekin af Reykjanes- bæ, mun selja öllum sveitarfélög- um á Suöurnesjum þjónustu sína nema Grindvíkingum. „Öll sveitarfélögin á Suðurnesj- um reka sameiginlega Fjölbrauta- skóla Suðumesja. Það er því mjög mikilvægt að þau eigi gott sam- starf og aögeröir séu samræmdar í þeim málurn," sagði Sigurður Jónsson. -ÆMK Dvergasteinn á Seyðisfirði: Engar sumarlokanir - segir Finnur H. Sigurgeirsson framkvæmdastjóri DV, Seyðisfirði: Undanfamar vikur hefur verið rætt um lengri og meiri sumarlok- anir 1 fiskvinnslustöðvum á Austur- landi en verið hefur undanfarin sumur. Almennt tala menn einkum um að vöntun veiðiheimilda sé höf- uðorsökin - breytilegt þó frá einum stað til annars. Finnur H. Sigurgeirsson fram- kvæmdastjóri fiskvinnslunnar Dvergasteins, segir að verði ekki einhver óvænt breyting á aflasam- setningu verði engin lokun þar. Togarinn Gullver landar vikulega hjá Dvergasteini og hefur fiskað vel undanfarið. Ýsa og ufsi uppistaðan Ýsa og ufsi em uppistaða í aflan- um, þorskur tæpur fimmtungur. Kvótastaðan er þokkaleg og með svipuðu hlutfalli gengur þetta út veiðitímabilið. Verði um einhverja lokun að ræða stendur hún stutt. Hjá fyrirtækinu starfa að jafnaði 50 manns. Skólafólk hefur sótt í störf þar á sumrin og er það nú miklu ör- uggara um sinn hag en annars væri. JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.