Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1996, Page 27
MÁNUDAGUR 15. JÚLÍ 1996
39
Hringiðan
Á Café au lait var haldinn grímudansleikur á laugardag-
inn. Þar voru þeir Magnús Unnar Jónsson og Gústaf Jó-
hannsson í gervi Tinna og Kolbeins kafteins. Þarna var
líka nunnan Karl Bergmann.
DV-myndir Hari
Feðgarnir Elías Péturs-
son og Pétur Elíasson
fóru í tívolíió við höfnina
á laugardaginn. Þá var
ekkert annað en að
skella sér beint i klessu-
bílana enda standa þeir
alltaf fyrir sínu.
Það var sett upp tívolí á
hafnarbakkanum um helg-
ina. Þar var hægt að fara í
tæki eða reyna við mis-
flóknar þrautir. Alexander
Örn Tómasson fór í þetta
skemmtilega tæki með mömmu
sinni, Berglindi Noröfjörð.
Björn Darri Sigurðsson, Ásbjörg Magnúsdóttir, Krlstín Þ. Valdimarsdóttir og
Ágúst Hólm Haraldsson stóðu fyrir vel heppnuðu partíi sumarstarfsmanna
kirkjugarðslns í Fossvogi á föstudagskvöldið.
Það var haldinn \
grímudansleikur W
fyrir fastagesti og T
starfsfólk Café au lait \
á laugardagskvöldið.
Þðrður læknir og Lára
trúður voru meðal gesta
á Café au lait.
Leikritið Stone Free var frumsýnt í
Borgarleikhúsinu á föstudaginn.
Umgjörð leikritsins er öðruvísi en
gengur og gerist því að áhorfendur
sitja á sviðinu og leikarar blanda
geði við gesti í hléi.
Félagarnir Olafur Elí Newman og
Témas Helgi Svavarsson fóru í
ökuferð í tívolíinu á hafnarbakkan-
um á laugardaginn enda báðir hin-
ir mestu ökuþórar.
Brettafélag Reykjavíkur
var stofnað á laugardag-
inn. Á sama tíma var nýr
hjólbrettagarður opnaður
uppi á Faxaskála. Ágúst
Geir Torfason sýndi að
hann kann svolítið fyrir sér
á hjólabretti.
iris Ragnarsdóttir og Linda Stefáns-
dóttir skemmtu sér vel í Ingólfskaffi
á laugardagskvöldið þegar Ijós-
myndara DV bar að garði.
'fgj Vel fór á með þeim Daníel
|Wj Magnússyni myndlistar-
W manni og Eggert Þorleifs-
¥ syni leikara á opnun sýning-
ar Daníels í Nýlistasafninu á
laugardaginn.