Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
Utlönd
Stuttar fréttir dv
Evrópusambandiö um neyð milljón flóttamanna í Saír:
Engin hjálp að ráði fyrr
en vopnahlé kemst á
Evrópusambandið lýsti því yfir í
gær að vopnahlé yrði að komast á í
Saír áður en hægt yrði að koma yfir
milljón flóttamönnum til einhverrar
hjálpar að ráði. í yfirlýsingu sam-
bandsins sagði að sendifulltrúar þess
gerðu nú allt sem í þeirra valdi stæði
til þess að reyna að koma á vopna-
hléi miUi uppreisnarmanna tútsa og
hersins í Saír. Franskur þingmaður
hvatti í gær Evrópuriki til þess að
vera viðbúin að grípa inn í til að
koma í veg fyrir miklar hörmungar í
Saír en tók það jafnframt fram að
Frakkar þyrftu liðsinni.
Emma Bonino, sem meðal annars
fer með mannúðarmál hjá Evrópu-
sambandinu, gaf út séryfirlýsingu í
gær þar sem hún tók undir kröfur
um að opnaðar yrðu leiðir til að hægt
yrði að senda birgðir til flóttamann-
anna. „Átta hundruð þúsund manns,
þar af helmingurinn böm undir 15
ára aldri, hafa sest niður til að deyja.
Fólkið er án matar, hreins vatns og
læknishjálpar,“ sagði Bonino meðal
annars. Hún hvatti stjórnina í Rú-
anda til að tryggja örugga flutninga
til Mugunga-flóttamannabúðanna.
Búist er við að leiðtogar sjö grann-
ríkja Saír, þar á meðal Rúanda, haldi
fund í Nairobi á morgun til að rejma
að flnna einhverja lausn. En forsæt-
isráðherra Saír, Kengo wa Dondo,
hefur lýst því yfir að á meðan her-
menn frá Rúanda taki þátt í bardög-
unum i Saír geti friðarviðræður ekki
farið fram. Yfirvöld í Rúanda vísa
því á bug að hermenn þeirra hafi far-
ið yfir landamærin til þess að hjálpa
uppreisnarmönnum tútsa.
Skothríð heyrðist í austurhluta
Saír í gær og þykir það benda til að
uppreisnarmenn tútsa hafl mætt
mótspyrnu þrátt fyrir aðstoð her-
manna frá Rúanda í borginni Goma.
Reuter
Mohamad Dana faðmar litlu systur sína, Baraa’ah, á heimili þeirra sem eyðilagðist í fyrrinótt er bensínsprengjum var varpað inn um glugga. Frændi barn-
anna segist hafa séð ísraelska landnema hlaupa frá húsinu sem er,í Hebron á Vesturbakkanum. Fimm manns særðust í eldinum, þar á meðal faðir barn-
anna. Utanríkisráðherra Bretlands, Malcolm Rifkind, sagði í heimsókn sinni til Hebron í gær að landnám gyðinga á svæðum Palestínumanna væri ólöglegt.
Símamynd Reuter
Höll Kleópötru
og vitinn á
Faros fundin
Fomleifafræðingar lýstu því yfir
í gær að þeir hefðu fúndið rústir
hallar Kleópötru Egyptalands-
drottningar í hinni fomu Alexandr-
íu þar sem hún giftist rómverska
hershöfðingjanum Antoníusi. Kaf-
arar hafa mánuðum saman teiknað
kort af svæðinu. Þeir telja sig
einnig hafa fundið rústir vitans á
eynni Faros sem var eitt af sjö
undmm veraldar.
Reuter
Kafari skoðar áletrun á steini.
Símamynd Reuter
UIUKI
Vinningar sem dregnir voru út í HAPPI í HENDI síðastliðið
föstudagskvöld komu í hlut eftirtalinna aðila.
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Ásta Bjarnason,
Laufási, Blesugróf, Reykjavík
Ástríður Hartmannsdóttir,
Skúlaskeiði 40, Hafnarfirði
Björg Hafsteinsdótir,
Austurströnd 12, Seltjamamesi
Bæring Cecilsson,
Fellaskjóli, Grundarfirði
Finnur Baldursson,
Lynghrauni 5, Reykjahlíð
Guðmundur Magnússon,
Víkurbakka 34, Reykjavík
Guðrún Bóasdóttir,
Grímsstöðum, Reyðarfirði
Guðrún Guðmundsdóttir,
Lyngholti 22, Keflavík
Gunnar Bergþórsson,
Nökkvavogi 1, Reykjavík
Hildigunnur Haildórsdótir,
Hagamel 26, Reykjavík
Hólmkell Ögmundsson,
Brautarholti 2, Ólafsvík
Ingibjörg Jónsdóttir,
Rauðsgili, Reykholti
Jóhannes H. Ríkharðsson,
Keldulandi, Sauðárkróki
Díana ástfangin
af múslímskum lækni
Díana prinsessa er ástfangin af 36
ára gömlum múslímskum hjarta-
skurðlækni sem á ættir að rekja til
Pakistans, að því er breska blaðið
Sunday Mirror fúllyrti í gær.
Blaðið hefur þaö eftir vini
prinsessunnar að hún sé yfir sig ást-
fangin af lækninum, Hasnat Khan,
og að hún vonist til að eignast dótt-
ur með honum.
Að því er greint er frá í Sunday
Mirror hitti prinsessan Khan fyrir
rúmu ári. Hann var einn þriggja
lækna sem gerðu aðgerð á eigin-
manni nálastungulæknis hennar.
Tilfinningar Díönu í garð læknisins
þykja útskýra reglulegar kvöld-
heimsóknir hennar til sjúklinga á
konunglega Brompton sjúkrahúsinu
og ferðir hennar til Pakistans og
Ástralíu.
í febrúar síðastliðnum heimsótti
Díana krabbameinssjúkrahús í Pa-
kistan. Samkvæmt Sunday Mirror
er nú talið að hún hafi notað tæki-
færið til að heimsækja fjölskyldu
Hasnats Khans sem á að hafa sam-
þykkt hjónaband, jafnvel þó Díana
taki ekki íslamstrú. Reuter
Díana prinsessa tekur við blómum af Sydneybúum. Prinsessan hefur verið
í Sydney í nokkra daga þar sem hún hefur meðal annars farið í heimsóknir
á sjúkrahús. Símamynd Reuter
Sfjórn Nyrups í hættu
Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, baðst
í gær afsökunar á því hvemig
rithöfimdinum Salman Rushdie
var greint frá því að Danir teldu
sig ekki geta veitt honum næga
vernd í Kaupmannahöfn. Stjóm-
arandstcéðingar í Danmörku
hafa hótað að bera upp van-
trauststillögu gegn minnihluta-
stjóminni vegna málsins.
ísraelar undirbúi stríð
Israelski ráðherrann Natan
Sharansky hvetur stjórn sína til að
búa almenning undir stríð við Sýr-
land vegna hótana Sýrlendinga.
Ciinton sigurviss
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
er viss um að
sigra í for-
setakosning-
unum á
morgun þó
skoðanakann-
anir sýni að
forskot hans
á Bob Dole,
frambjóðanda
repúblikana,
fari minnk-
andi. Samkvæmt skoðanakönn-
un Reuterfréttastofunnar var
forskot Clintons í gær 3,8 pró-
sent. Forskotið var 10 prósent
samkvæmt könnun ABC-sjón-
varpsstöðvarinnar en 13 prósent
samkvæmt Gallupkönnun.
Fundu tonn af kókaíni
Spænskir tollverðir fundu
tonn af kókaíni um borö í báti
sem var að koma frá Barbados.
Hættulegur úrgangur
Yfirvöld í Ungverjalandi hafa
beðið þýsk yfirvöld að sækja 380
tonn af efhaúrgangi sem Ung-
veijar telja að sé ólögleg sending
af hættulegum úrgangi. Efnin
vora merkt sem hráefni og áttu
að fara til Kína, í gegnum Ung-
verjaland og Króatíu.
Stoyanov lýsir yfir sigri
Frambjóðandi stjómarand-
stöðunnar í Búlgaríu, Petar Sto-
yanov, lýsti
yfir sigri í
forsetakosn-
ingunum í
gær. Hann
heitir þvi að
færa land sitt
nær Evrópu-
sambandinu
og Atlants-
hafsbanda-
laginu.
Tók aftur barn sitt
Bresk kona, er gefið hafði
barnlausri vinkonu sinni sjö-
unda barn sitt sem fæddist í júlí,
hefur tekið það aftur til sín. Seg-
ir hún vinkonuna ekki ráða við
móðurhlutverkið.
Traktor fyrir að kjósa
Rúmenska ríkissjónvarpið,
sem stjórnarandstaðan segir
undir stjórn flokks Iliescus for-
seta, bauð þeim svæðum þar sem
kjörsókn reynist mest í þing-
kosningum traktor. Einkasjón-
varpsstöð bauð kjósendum sjón-
varpstæki í happdrættisvinning.
Milosevic spáð sigri
Samsteypustjórn Slobodans
Milosevics Serbíuforeta var í
gær spáð sigri
yfir stjómar-
andstæðing-
um í kosning-
unum í
Serbíu og
Svartfjalla-
landi. Eftir-
litsmenn frá
Bandaríkjun-
um og Evrópu
fylgdust með kosningunum.
Jeltsín bjartsýnn
Eiginkona Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta, Naína, segir eigin-
mann sinn bjartsýnan á að vænt-
anleg hjartaaðgerð gangi vel.
Reuter