Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
Spurmngin
Finnst þér eiga að
vera meira innlent
efni í sjónvarpsstöðv-
unum?
Pálfríður Vilhjálmsdóttir af-
greiðsludama: Já, alls kyns efhi.
Hrafn Thoroddsen hafharverka-
maður: Nei!
Sigríður Másdóttir húsmóðir: Já,
mér finnst það.
Karl Kristjánsson nemi: Já, mér
finnst vanta íslenskt efhi.
Þórunn Hermannsdóttir matráð-
ur: Mér finnst það mætti vera
meira. En ekki eins og margt af því
gríni sem hefur verið undanfarið.
Björgvin Skarphéðinsson húsa-
smiður: Já, mér finnst það ætti að
leggja meiri áherslu á íslenska
skemmtiþætti.
Lesendur__________________
Saga úr flæðarmálinu
Jón Guðlaugsson skrifar:
Ég var æfa hlaup mánudaginn 28.
október sl. Ég var staddur vestur í
Skerjafirði þegar ég heyrði böm
gráta. Ekki sást af hlaupabrautinni
til neinna bama og heldur ekki út á
skerin sem upp úr stóðu í flæðar-
málinu. Ég tók stefnuna að steypt-
um sjóvamargarði og skömmu síð-
ar sá ég hvar tvö böm stóðu á skeri
einu og vora á kafi i sjó upp að
hnjám.
Ég stökk fram af garðinum án
frekari athugunar, því það var stór-
streymt og líf bamanna í hættu. Það
dýpkaði óðum, komið hyldýpi víða í
kring og sjórinn ískaldur. Ég óð eft-
ir bömunum sem vora um 40-50
metra frá flæðarmálinu sjálfu. Ég
þurfti að fara tvær ferðir eftir þeim.
Þama var stórgrýtt og flughált. í
flæðarmálinu stóðu tvær konur sem
ég tók ekki eftir fyrr en í bakaleið-
inni. Björgunin gekk vel og konurn-
ar hlúðu að bömunum.
Mér varð litið upp á garðinn og
þar sat kona. Hún sagðist hafa beð-
ið mann í nálægu húsi að lána sér
Hörður Þorkell Ásbjömsson
skrifar:
í þættinum Dagsljósi 22. þ.m. tók
Hrafn Jökulsson biskupsritara á
beinið eins og það er kallað. Þar
segir ritarinn m.a.: „Sem betur fer
starfa á Biskupsstofu aðrir en guð-
fræðingar, þótt þeir séu nytsamir til
margra hluta.“ - Já, sem betur fer
fyrir sr. Baldur þurfti hann ekki að
sæta því að vera hafnað í starf (t.d.
fræðsludeild) hjá Biskupsstofu að
undangenginni auglýsingu.
Og satt er það, að „víðar er Guð
en í Görðum", en engu að síður er
það starfsmannastefna á villigötum
sem hafnar kirkjulega menntuðu
starfsfólki. Trúi því hver sem vill,
að fjölbreytt nám guðfræðinga (auk
sálgæslu, kirkjuréttar, félagsfræði,
Magnús Sigurðsson hringdi:
Furðuleg er umfjöUunin sums
staðar um hugsanlega hraðlest milli
Reykjavíkur og Keflavíkur, sem
tengdist m.a. því að leggja niður
flugvöllinn í Reykjavík. Frá Flug-
málstjórn heyrast tölur sem nema
svo og svo mörgum milljörðum
króna samfara því að koma upp lest
í Noregi frá Gardemoenflugvelli til
Óslóar. Það á þó lítið skylt við sömu
framkvæmdir hér, því laun í Noregi
eru um helmingi hærri en hér á
landi. Auk þess minnir mig að ég
hafi lesið um að á þeirri leið þurfi
að byggja jarðgöng. - En í þessar
risatölur Flugmálastórnar er
einmitt vitnað í leiðara Morgun-
blaðsins hinn 29. okt. sl.
Aðeins tveimur dögum áður (27.
okt.) er getið úttektar nemenda í
Háskólanum á lagningu jámhrautar
til Keflavíkur. Þar sagði m.a. að í
þeirra úttekt væri ekki tekið tillit
til viðbótaramferðar ef innanlands-
flug flyttist til Keflavíkur. Þá
myndu allar forsendur arðsemis-
Að leik í flæöarmálinu.
vaðstígvél til að nálgast börnin en
sér hefði verið neitað um þau. Ég
var búinn að mæta fólki þama rétt
hjá og tel ólíklegt að enginn hafí
uppeldisfræði) nýtist ekki Biskups-
stofu.
Starfsmannastefna þjóökirkju
elur þann höggorm að verði guð-
fræðingur/prestur atvinnulaus fyr-
ir duttlunga örlaganna(?) er hag-
kvæmt fyrir kirkjuna að losna við
hann á atvinnuleysisbótum hjá
öðru stéttarfélagi. Prestafélaginu
leyfist ekki að úthluta félagsmanni
bætur fái hann ekki vinnu, enda
klerkastarfslið Biskupsstofu ekki
lengur hæft til að borga út laun og
því kallaður til óvígður fjármála-
stjóri.
Ég er viss um að Atvinnuleysis-
tryggingasjóður er fús til að aðstoða
Biskupsstofu við að millifæra úr
stóra sjóðunum með því að leggja til
hinn mánaðarlega 50 þúsund króna
mats gjörbreytast. Fjárfesting af
þessu tagi gæti þá borið sig. - Mér
finnst því snöggsoðin niðurstaðan í
Morgunblaðsleiðaranum 29. okt. sL,
að hugmyndin um hraðlest til Kefla-
víkur sé fráleit!
En mér er spum: Hefur nokkur
heildarúttekt verið gerð á byggingu
og rekstri hraðlestar til Keflavíkur,
t.d. með þeim forsendum að innan-
landsflug flyttist til Keflavíkuflug-
vallar, eða á rafvæðingu samgangna
yfirleitt, t.d. um þéttbýlustu svæði
landsins? Eða þá í Reykjavik sjálfri
til að byrja með? Þótt ekki væri
nema til að minnka mengun og
hugsanlega til að grisja bílaumferð
á þéttasta samgöngunetinu. Hvað
með rafmagnsvagna á Laugavegi og
heyrt ópin frá bömunum, nema
þessar konur!
launaskammt fyrir hvem atvinnu-
lausan guðfræðing, og enn þá frekar
fyrir prest. Þetta gæti gerst í formi
átaksverkefna í safnaðarappbygg-
ingu áratugarins, enda löngu sýnt
fram á að guðfræðingur/prestur
rúmast ekki á akri árlegrar eins og
hálfs milljarðs veltu þjóðkirkjunn-
ar.
Hinsta vonin fyrir starfsmanna-
stefnuna er að stéttarfélög eins og
Dagsbrún eða Sjómannafélagið ráði
„bóta-prestinn“ í sálgæslu fyrir at-
vinnuleysingjana eða í Smuguna. -
Þetta yrði hreinn spamaður fyrir
ríkið, miðað við 5 milljóna framlag
þess til séra Flóka næsta árið, i út-
legð í ESB-löndunum.
Hverfisgötu eða alla leið upp í
Breiðholt? Á að afskrifa allar slíkar
hugmyndir? Jafnvel ekki umræðu-
hæfar?
Menn hljóta að spyrja enn frem-
ur, hvort hér á landi sé virkilega
svo komið að ekki megi ræða vissar
hugmyndir, t.d. þá sem hér er rædd
- hugsanlega rafvæðingu sam-
göngukerfisins - burtséð frá flutn-
ingi innanlandsflugsins til Keflavík-
ur. - Eru einhverjir aðilar í stjóm-
sýslunni sem standa svo stíft vörö
fyrir hagsmunaðila í landinu að
hugmyndir um rafvæðingu í sam-
göngum verði barðar niður jafnóð-
um?
Þarf þá ekki
verkalýðs-
félög?
Kristján P. skrifar:
í sjónvarpsfréttum sl. miðviku-
dagskvöld var sýnt frá fundi VSÍ
með blaðamönnum, þar sem fram-
kvæmdastjórinn lék við hvern
sinn fingur. Hann skipulagði
næstu kjarasamninga og tilnefiidi
prósentuhækkun sem semja ætti
um. Sást síðan skutla tillöguplagg-
inu yfir fúndarborðið til blaða-
manna, sem tóku við boðskapnum
galopnum, tómum en sljóum aug-
um. Og sjá - verkalýðsforingjar
eru meira og minna sammála
framkvæmdastjóra VSÍ og tafsa
líka um þetta 3-4% launahækkun,
aðra þjóðarsátt, stígandi kaupmátt
einhvem tíma í fjarlægri framtið,
og samanburð við Norðurlanda-
þjóðimar enn einu sinni. Er þá
nokkur þörf fyrir verkalýðsfélög
lengur?
Framsóknar-
þingmanni lyft
Gisli skrifar:
Þingmenn skynja að núverandi
kosningakerfi er farið að brenna á
þeim og því verður að friða al-
menning með einhveijum hætti.
Mikils er um vert fyrir ríkis-
stjómina að hún taki fyrsta skref-
ið á þessu þingi. Til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem hefur for-
ræði ríkisstjómarinnar, eigni sér
ekki málið að fúllu var Framsókn-
arþingmanni lyft í sviðsljósið og
honum leyft að opna málið. Þá
loks gat forsætisráðherra tekið
við og tilkynnt að hann væri
hlynntur breytingum á kosning-
akerfinu. Og þá er eftirleikurinn
auðveldur gagnvart öðrrnn þing-
mönnum.
Sýndarviðbrögð
við jarðskjálftum
Sunnlendingur hringdi:
Eftir að hafa hlýtt á úttekt í
Kastljósi Sjónvarps um jarð-
skjálftahættu, sem sífellt vofir yfir
hér á Suðurlandi, sýnist mér af-
staða flestra vera hin sama, sýnd-
arviðbrögð og hræsni í bland -
þykjast ekki sjá hættuna eða vita
af henni. Enginn hræddur, enginn
kvíðinn. Og það sem verst er: eng-
in viðbrögð af neinum toga. Enda
engir færir um að kenna eitt eða
neitt og björgunartæki ekki til-
tæk. Allt vegna þess að hér má
ekki skikka neinn til þegnskyldu í
áfallahjálp eða öðru, líkt og aðrar
þjóðir sem hafa herskyldu og
menn því viðbúnir og hafa æfingu
í fyrstu híálp þegar mikið liggur
við.
Eins dauði
tveggja brauð
Katrtn skrifar:
Máltækið segir „Eins dauði er
annars brauð“ og þýðir að einhver
hlýtur starf hins látna, eða ein-
hver taki við stöðu þess sem segir
upp starfi eða víkur sæti. Á Þing-
völlum losnar nú staða prestsins
sem var líka þjóðgarðsvörður. En
viti menn; nú á að búa til tvær
stöðifr þar - eina fyrir prest og
staðarhaldara og aðra fyrir þjóð-
garðsvörð, sem hefur þá varla
veigameira hlutverk en að reka úr
túni.
Ljósin við
Reykjanesbraut
Páll hringdi:
Skyldu menn hafa tekið mið af
breikkun Reykjanesbrautar þegar
ný ljós eru nú sett með fram
brautinni? Ég á þá við að ekki
þurfi að færa ljósastaurana ef um
breikkun verður að ræða. Spurn-
ingin snýst um það hvort braut-
inni verður skipt með breiðri eyju
eða aðeins mjóu vegriði úr jámi.
Þá gætu nýju ljósin náð yfir alla
breidd akreinanna.
Þeir „nytsömu" á Biskupsstofu
Hraðlest til Keflavíkur?
Hraðlest til Keflavíkur arðbær framkvæmd eða fráleit hugmynd?