Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996 JjV
menning
Heillandi trúðar
Trúðaskólinn er óvenjulega hressi-
legt leikrit sem leikstjórinn, Gísli
Rúnar Jónsson, hefur sett greinileg
fmgraför á með orðfæri og aðlögun,
að ógleymdri fjörlegri leikstjórn.
Hann notar orðaleiki og útúrdúra til
að skemmta áhorfendum og það virk-
ar. Alls kyns brögð og brellur leik-
hússins eru óspart notuð og áhorf-
endur látnir skerast í leikinn þegar
mest liggur við.
Leiklist
Auður Eydal
DV-mynd PÖK
krakka og ekkert síður fyrir fylgdarlið þeirra. Það
er alveg óhætt að lofa góðri skemmtun.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir á stóra sviöi í Borgar-
leikhúsi:
Trúöaskólinn
eftir Friedrich Karl Waechter
Þýðing og aðlögun: Gísli Rúnar Jónsson, eftir
enskri útfærslu Kens Campbells
Leikhljóð: Baldur Már Arngrímsson
Útsetning tónlistar: Vilhjálmur Guðjónsson
Lýsing: Lárus Björnsson
Búningar: Helga Rún Pálsdóttir
Leikmynd: Steinþór Sigurðsson
Leikstjórn: Gísli Rúnar Jónsson
og Dropa.
Halldóra Geirharðsdóttir leggur hvert vígið af
öðru að fótum sér þessa dagana. Hún leikur trúð-
inn Lævís sem „opnar“ sýninguna með skemmti-
legri innkomu í vel útfærðu atriði. Það féll í góð-
an jarðveg á frumsýningu og þar með var ísinn
brotinn.
Og eftir svona byrjun verður ekki við snúið.
Trúðarnir koma hver af öðrum inn í skólastofuna
hans Steinþórs Sigurðssonar sem virkar grá og
köld við fyrstu sýn en reynist svo vera ævintýra-
heimur þar sem margt getur skemmtilegt skeð.
Trúðaskólinn er fjörug og vönduð sýning fyrir
Þó að þetta sé yfirlýst barnasýning
geta allir - eldri sem yngri - notið
hennar í botn.
Trúðarnir íjórir eru skringilegir í
stóru litfögru búningunum sínum
sem Helga Rún Pálsdóttir hefur
hannað og mótað eftir persónuleika
hvers og eins. Hún byggir á hefðinni
en stílfærir óspart.
Innan imdir gervinu leynast lifleg-
ir karakterar, ef til vill ekki svo ólík-
ir öðrum krökkum, og einmitt það
gerir þá svo heillandi fyrir litla
áhorfendur. Einn er feiminn, annar
frakkur og svo er hún Bóla sem vill
vera allra vinur.
Bessi Bjamason leikur prófessor
Blettaskarp sem heitir sannast sagna
harla óvenjulegum aðferðum við Eggert Porleifsson og Halldóra Geirharðsdóttir: Heillandi trúöar.
þessa óstýrilátu nemendur.
Bessi er ekki bara lærimeistarinn á sviðinu
heldur er hann þarna að vinna með fjórum yngri
leikurum sem án efa geta (og hafa) sótt margt í
smiðju til hans. Bessi hefur svo lengi glatt áhorf-
endur með frábærri list sinni að um hann þarf
ekki að fara mörgum orðum. En eitt er víst: Ekki
fer honum aftur!
„Litlu“ trúðarnir eru dægilega skemmtilegir.
Að baki „persónugerðunum" liggur mikil og öguð
vinna en um leið ber hver trúður ákveðin höfund-
areinkenni þess sem leikur hann. Eggert Þorleifs-
son, Helga Braga Jónsdóttir og Kjartan Guðjóns-
son eru hvert öðru betra í hlutverkum Belgs, Bólu
■
Ný alfræði
um myndlist
Þrjátíu og ijögur bindi, þrjátíu
þúsund siður, íjörutíu þúsund
greinar eftir tæplega sjö þúsund
fræðimenn frá hundrað og tuttugu
löndum, fimmtán þúsund myndir!
Svona viðamikil er ný alfræðibók
um myndlist sem breska Macmill-
an útgáfan sendi nýlega frá sér.
Segja forsvarsmenn að þetta sé yf-
irgripsmesta uppflettirit um mynd-
listina frá upphafi vega, enda var
það fimmtán ár í smíðum. Ritið
tekur til fleiri efnisþátta en önnur
vinsæl uppflettirit, eins og þýska
alfræðin frá Thieme-Becker, til
dæmis er fjallað um myndlist fjar-
lægra þjóða, ljósmyndir, skreyti-
list og arkitektúr.
Ritið kostar hálfa milljón króna,
en þó að almenningur veigri sér
við að reiða fram slíkar upphæðir
komast skólar og listasöfn tæplega
hjá því að fjárfesta í því. Nú þegar
hafa Listasafn íslands og Mynd-
lista- og handíðaskólinn keypt það
í bókasöfn sín.
Hlutur íslendinga er stærri í
þessu riti en nokkru öðru alþjóð-
legu fræðiriti um myndlist. Fyrir
áratug var haft samband við Lista-
safn íslands og það beðið að til-
nefna myndlistarmenn til umfjöll-
unar, og auk þess voru pantaðar
yfirlitsgreinar um íslenska mynd-
list frá upphafi til nútímans. Af til-
nefndum listamönnum valdi rit-
stjórn 27 og leitaði til átta ís-
lenskra listfræðinga með að skrifa
greinarnar.
í ritinu fjallar Aðalsteinn Ing-
ólfsson um Hörð Ágústsson, Jón
Gunnar Ámason, Sigurjón Ólafs-
son, Kristján Davíðsson, Jón Eng-
ilberts, Erró, Hrein Friðfmnsson,
Kristján Guðmundsson, Gerði
Helgadóttur, Einar Jónsson, Magn-
ús Pálsson, Gunnlaug Scheving og
Ásmund Sveinsson. Halldór Björn
Runólfsson skrifar um Jóhann
Briem, Svavar Guðnason, Karl
Kvaran, Valtý Pétursson og Jón
Stefánsson. Hrafnhildur Schram
flallar um Ásgrím Jónsson,
Júlíönu Sveinsdóttur og Nínu
Tryggvadóttur. Björn Th. Björns-
son ritar um Snorra Arinbjamar
og Þorvald Skúlason; Júlíana Gott-
skálksdóttir fjallar um Finn Jóns-
son og Guðbjörg Kristjánsdóttir
um Kjarval, auk þess sem birt er
gömul grein eftir dr. Selmu Jóns-
dóttur um Þórarin B. Þorláksson
og hollenskur listgagnrýnandi
fjallar um Sigurð Guðmundsson
yngri.
Mikið efni um íslenska myndlist í
nýju bresku yfirlitsriti. Jón Gunnar
Árnason er einn þeirra sem skrifað
er um.
Sannkallaðar fantasíur
Sögumar í fyrsta smásagnasafni
Andra Snæs Magnasonar, Engar
smá sögur, geta með réttu kallast
fantasíur, en sú bókmenntagrein á
ættir að rekja til ævintýfa. Allt
getur gerst: Einar Benediktsson
rís upp úr gröf sinni, jörðin reyn-
ist flöt og átta hundruð börn era
látin taka þátt í rannsókn á sann-
leiksgildi málsháttarins „Brennt
barn forðast eldinn".
Fantasíur Andra Snæs era gam-
ansögur og húmorinn kviknar
þegar blandað er saman hinu
ómögulega og hversdagsleikanum.
Eitthvað undirfurðulegt á sér stað
í þeirri veröld sem lesandinn
þekkir og kallar á viðbrögð ein-
staklinga og stofnana. Þegar haf-
meyja kemur á færið hjá Ara leið-
ir það meðal annars til deilu líf-
fræðinga um hvort hafmeyjar séu
fiskar eða spendýr og þegar orð
breytast í áþreifanlegt efni þarf
unglingavinnuflokk til að moka
upp loðnum svörum sem falla út
um glugga Stjómarráðsins.
í sögunum ríkir galsafull og
frjálslynd afstaða til tilverunnar.
Flestar persónurnar eiga það sam-
Bókmenntir
Kristján Þórður Hrafnsson
eiginlegt að leiðast hlutskipti sitt
og þrá eitthvað annað. ímynd
hamingjunnar birtist sem lausn úr
höftum daglegs lífs og sem ævin-
týri. Þeir sem era hamingjusamir
eru unga fólkið sem sleppur við
vorpróf vegna þess að komið hefur
í ljós að vísindin samanstanda af
blekkingum og Palli sem er
ánægður með það að á sumrin
skuli máttarvöldin raska náttúru-
lögmálunum þannig að morgun
hvem vakni sérhver sál í nýjum
líkama.
Andri Snær Magnason.
Dæmi um gáska höfundar er
viðleitni hans til að setja inn í
textann alþekkt brot úr öðrum
textum, svo sem nöfn Ijóöabóka
eða línur úr ljóðum: „Þetta var
furðulegt sambiand af fólki í ferð
án fyrirheits", „það var þrútið loft
og þungur sjór, smá regnúði í lofti
og fuflt tungl.“
Sögumar eru misgóðar eins og
gerist og gengur en styrkur þessa
verks felst í frumlegum og stund-
um afar sniðugum hugdettum. Oft-
ast nær er úrvinnslan einnig vel
heppnuð. Sagan um rannsóknina
á sannleikSgildi íslenskra máls-
hátta er til dæmis gamansaga í
fyrsta gæðaflokki. Sjálfur stíllinn
er nokkuð tilþrifalítill og textinn
er stundum óþéttur, en lesandinn
má eiga von á að skella oft upp úr.
Andri Snær Magnason: Engar
smá sögur. Mál og menning
1996
1B
s
I
1
■
i
(
I
:■:
I
II
1
Skiptistöðin
Stoppleikhópurinn frumsýn-
ir Skiptistöðina eftir Valgeir
Skagfjörð í Ölduselsskóla ann-
að kvöld, þriðjudagskvöld, kl.
20. Frumsýningin er öllum
opin, en framvegis verður þetta
farandleiksýning fyrir efstu
bekki grunnskóla og fyrstu
bekki framhaldsskóla og er
unnin í samvinnu við Forvam-
arsjóð ráðuneytanna, SÁÁ,
Samband íslenskra sparisjóða
og Hitt húsið. I
í leikritinu segir frá ungling-
um sem lokast af tilviljun inni
á skiptistöð yfir nótt og deila
reynslu sinni af fikniefnum og
ofbeldi. Leikhópurinn var
stofnaður í fyrra og sýndi þá
umferðarleikritið Stopp í
grunnskólum. í hópnum eru
leikaramir Dofri Hermanns-
son, Eggert Kaaber, Hinrik
Ólafsson og Katrín Þorkelsdótt-
ir. Leikstjóri er Þórarinn Ey-
fjörð. Upplýsingasími hópsins
er 5546271.
Myrkraverk
í dag kl. 13.05 hefst frumflutn-
ingur leikritsins Myrkraverk
eftir Elías Snæland Jónsson á
Rás 1. Það var boðað í ótíma
hér á síðunni fyrir tveim vik-
um; þá sáu rásarmenn að sér og
settu eldfjöragan gamanleik á
dagskrá til að létta lundina í
vetrarbyrjun. En nú er kominn
tími á Myrkraverk.
Úr safni
Engel Lund
Á háskólatónleikum á mið-
vikudaginn ætlar Marta G.
Halldórsdóttir, sú sem striðir
sjálfri Callas í Master Class i ís-
lensku óperunni, að syngja nor-
ræn sönglög úr safni Engel
Lund. Öm Magnússon leikur
undir á píanó. Tónleikamir era
að venju í hádeginu, hefjast kl.
12.30.
Tjarnar-
kvartettinn og
hinar kýrnar
Tjamarkvartettinn úr Svarf-
aðardal syngur íslenska leik-
hústónlist í Kaffileikhúsinu í
Hlaðvarpanum við Vesturgötu
á miðvikudaginn, 6. nóvember,
kl. 21. Tónleikamir verða upp-
hitun fyrir sýningu á Hinum
kúnum, einþáttungi eftir Ingi-
björgu Hjartardóttur sem hefur
verið á fjölum Kaffileikhússins
síðan í ágúst.
Tjamarkvartettinn skipa
bræðurnir Hjörleifur og Krist-
ján Hjartarsynir frá Tjörn og
eiginkonur þeirra, Rósa Kristín
Baldursdóttir og Kristjana Arn-
grímsdóttir. Hann hefur starfað
frá 1989 og haldið tónleika víða
um land og utan lands. Nú er
hann á fórum til Kaupmanna-
hafnar þar sem hann á að
syngja á Norrænum menning-
ardögum í Rialto leikhúsinu.