Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Page 16
16
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
lýsingar. Rowan voru boðin slík
bréf til kaups og þess vegna fór
hann inn á síðuna mína,“ segir
Njáll. Að hans sögn hafa þeir félag-
ar aldrei hist og reyndar segir Njáll
að þeir hafi nú helst áhyggjur af þvi
að vegna góðra undirtekta við
Crime on Line hafi þeir félagar ekki
tíma til þess. „Sem dæmi um þessar
góðu viðtökur má nefna að ástr-
alska ríkið er að skoða kerfið okkar
til þess að merkja bíla þar í landi.
Einnig hafa öflug erlend fyrirtæki á
sviði upplýsingatækni sýnt starfi
okkar mikinn áhuga,“ segir Njáll að
lokum.
Vefsíða Crime on Line er á slóð-
inni http://www.c-o-l.com. Þaðan er
einnig hægt að komast inn á vefsíðu
Njáls þar sem hann birtir ítarlegar
upplýsingar um hin svokölluðu Ní-
geríubréf sem margir hafa brennt
sig á.
-JHÞ
Njáll Harðarson er annar stofnandi Crime on Line en það fyrirtæki vinnur gegn þjófnaði. Að sögn Njáls hentar Inter-
netið sérstaklega vel f þeim tilgangi þar sem það, eins og glæpamenn, þekkir engin landamæri. Hann bendir á miða
sem hægt er að merkja hluti með en slíkur miði gefur tii kynna að þeir séu skráðir hjá Crime on Line.
Nýtt og efnilegt glæpavarnarfyrirtæki á netinu:
Meðeigendurnir hafa aldrei hist
- erum í mikilli sókn, segir Njáll Harðarson
„Ætlunin með Crime on Line er
að fyrirbyggja glæpi. Það gerum við
meðal annars með því að skrá eign-
ir með raðnúmeri þeirra inn í
gagnagrunn okkar á vefsíðunni
Crime on Line. Ef eignum fólks er
stolið og einhver slær raðnúmer
hlutanna inn í gagnagrunn okkar
fær eigandinn sjálfkrafa sendan
tölvupóst sem segir því hver hafi
gert það. Enn fremur fær sá sem er
að slá töluna inn upplýsingar um
það hver á hlutinn. Með öðrum orð-
um þá gerir Crime on Line lögreglu,
tryggingafélögum og réttum eigend-
um auðveldara að hafa uppi á stoln-
um hlutum,“ segir Njáll Harðarson,
annar eigandi Crime on Line.
Auðveldara að finna
hluti
Njáll segir að markmiðið sé að
sem flestir nýti sér þessa þjónustu.
„Það má taka dæmi um hluti eins
og reiðhjól en þeim er gjarnan stolið
eða þau hrannast upp í geymslum
lögreglu. Nú geta lögregla og trygg-
ingafélög einfaldlega slegið upp.rað-
númeri þeirra og ef eigandinn er
skráður þá fær hann tölvupóst sem
segir honum hvar eign hans er nið-
urkomin. Þetta sparar öllum tíma,
peninga og fýrirhöfn og það er auð-
velt að sjá það í hendi sér hvað kerf-
ið getur sparað tryggingafélögunum
mikla fjármuni. Ég sé einnig fyrir
mér að verslanir, eins og til dæmis
tölvuverslanir, bjóði viðskiptavin-
um sínum upp á það að merkja
þeim vörur sem þeir kaupa. Ein
stór tölvuverslun á þegar í viðræð-
um við okkur um að bjóða við-
skiptavinum sínum slíka þjónustu
fyrir þessi jól,“ segir Njáll. Hann
bendir enn fremur á að nú á dögum
fari hlutir mjög hratt á milli landa
og bendir til dæmis á greiðslukort
ýmiss konar. „Það má auðveldlega
fylgjast með þeim með kerfi Crime
on Line,“ segir Njáll.
Fálapn er ástralskur
saksoknari
Njáll segir að meginmarkmiðið
með Crime on Line sé að stöðva
glæpi og segir að því áhugamáli
deili hann með meðeiganda sínum,
Rowan Timms, en hann er fyrrver-
andi saksóknari ástralska alríkisins
í Adelene í Suöur-Ástralíu. „Kynni
okkar hófust í gegnum vefsíðu sem
ég hef haldið uppi í kringum hin
svokölluðu Nígeríubréf. Þar geymi
ég aragrúa af upplýsingum um
svikahrappa sem bjóða slík bréf og
ég held að mér sé óhætt að halda þvi
fram að ég hafi sparað fjölda manns
stórfé með því að veita þessar upp-
Þessar vefsíöur hefur Baldur Helgason tekiö saman fyrir DV. Listsýning hans
á Internetinu er á slóöinni
Kjaftfull síöa
myndlist.
http://www.apple.is/netlif/llstasinl0ja/gallery.htinl
http://www.artmall.com/
Banki sem inniheldur ýmsar upplýslngar tengdar myndlist.
http://pathfinder.eom/@@6mUa2wUAPDXIP7no/twep/artslink/
Nettímarit um myndlist meö eigiö gallerí og tengingar á athyglisveröar sýn-
ingar úti um allan heim.
http://www.gatech.edu/desoto/graf/lndex.html
ART CRIMES Mikiö af góöri veggjakrotslist hvaöanæva úr heiminum á ein-
um staö.
http://fileroom.aaup.ulc.edu/
http://www.thing.net/thingnyc/
THE THING er spennandi Netrit.
http://www.webart.com/photocollect/
Mjög gott llósmytKjlagallerí.
http://www.users.interport.net/~gerlng/
http://www.tractor.com/
iPVli
Guöny Danivals-
dottir meö ytir-
manni Disney
Inleractive i Evr-
opu a raöstetnu
Disney i Paris i
oktober siöast-
liönum.
Japis fær umboð fyrir Disney Interactive:
Fyrir böm
á öllum aldri
- Disneyleikir fyrir PC og Macintosh
„Það sem um er að ræða eru
fræðandi og skemmtilegir tölvuleik-
ir sem öll fjölskyldan ætti að geta
haft gaman af,“ segir Guðný Dani-
valsdóttir hjá Japis en það fyrirtæki
fékk umboð fyrir tölvufyrirtækið
Disney Interactive á ráðstefnu þess
í París í byrjun októbermánaðar.
Gleði og fræðsla
Blaðamaður DV fékk að skoða
kynningar á Disneyleikjunum sem
eru byggðir á teiknimyndaperlum
eins og Lion King, Aladdin, Hunda-
lífi, Pocohontas og Kroppinbak sem
er jólamynd Disneys í ár. Disney
Interactive reynir að sameina
skemmtun og fræðslu í þeim forrit-
um sem fyrirtækið gefur út. Þó
erfitt sé að gera sér grein fyrir
skemmti- og fræðslugildi tölvufor-
rita með því að horfa á myndbönd
af þeim þá sýndist þeim sem hér
skrifar að það tækist ágætlega. Að
öðrum ólöstuðum þá leist blaða-
manni í fljótu bragði best á Lion
King Activity Center sem miðar
meira á fræðslu og tölvuleikinn
Timon & Pumba - Gamebreak.
Einnig leit Toy Story - Powerplay
afar vel út. Sennilega er auðvelt að
gleyma háum aldri með slíkri
skemmtan.
Sega á PC
Guðný segir að fyrir þessi jól fái
íslenskir eigendur PC-tölva tæki-
færi til þess að nálgast leiki sem
hingað til hafi eingöngu verið til
fyrir Sega. Þar á meðal eru leikir
eins og Sonic CD, Virtual Fighter,
Virtual Cop og Sega Rally Cup. Hún
leggur áherslu á að þessir leikir hafi
ekki einfaldlega verið færðir yfir á
PC-formið í skyndi. „Sega tók
ákvörðun um það að leggja mikla
vinnu í þessa titla þó að það hafi í
sjálfu sér verið einfalt mál fyrir fyr-
irtækið að færa þá beint yfir án þess
að hugsa um það neitt frekar. Við
höfum þvi mikla trú á að þessir titl-
ar muni falla PC-eigendum vel í
geö,“ segir Guðný.
-JHÞ
Noregur
Frændur okkar Norðmenn
eru nátengdir okkur og því er
I bráðnauðsynlegt fyrir alla ís-
| lenska netflakkara að hafa góð
tök á að kynna sér efni um
I Noreg á Intemetinu. Norð-
menn eru afar sterkir í skíða-
I íþróttum og því full ástæða til
| þess að kynna sér slíkar íþrótt-
ir þar á slóðinni
| http://www.tele-
j post.no/sportweb/masuk.htm
| Þar er að finna norskan
j íþróttavef með miklum upplýs-
Iingum um norskt íþróttalíf og
ferðalög þar f landi. Upplýsing-
ar um sögu Noregs má finna á
slóðinni http://www.norway-
info.com/norway/hi-
story/briefhistory.shtml
Uppskriftir
Þaö er mikill fjöldi upp-
skrifta á Netinu og sjálfsagt að
kynna sér hvaða ljúfmeti er
boðið upp á þar. Það þarf ekki
að leita lengi áður vefsíöa með
gífurlegum fjölda uppskrifta af
öllum sortum á slóðinni
http://www.atlcom.net/~cjame
s/cooking.html#cooking-cakes
Þar em uppskriftir, sem teljast
mjög góðar eða sérstaklega
hollar, sérstaklega merktar.
Sannir nautnaseggir em lítið
að spá í síðarnefnda atriðið.
Celine Dion
Kanadíska söngkonan Celine
Dion nýhm mikilla vinsælda og
eins og vera ber er fjöldi vef-
síðna tileinkaður henni. Mikið
safn síðna um hana er að finna
á slóðinni http: //chris.simp-
lenet.com/celinedion.html
Slóðin http://www.celine-
dion.com/ ætti einnig að vera
aðdáeundum hénnar ítarlegt
rannsóknarefhi.
Taggart
Þættimir um Taggart dúkka
; alltaf upp í Ríkissjónvarpinu
| öðm hvoru þó að aðalleikari
þáttanna hafi látist fyrir
nokkru. Lærisveinar gamla
töffarans hafa tekið við og virð-
ast hafa lært sitthvað af hon-
um. Áhugasamir ættu að
skoða. vefsíðuna á slóöinni
http://www.yearl-
ing.com/data/ yearl-
ing/externals/taggart-feat.html