Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
Tölvulistá
McDonald s
Ungur listamaður, Sigurður
Óskar Lárus Bragason, sýnir
um þessar mundir nokkrar
tölvumyndir í veitingastofu
McDonald’s í Austurstræti. Sig-
urður sýnir þar tákn sem notuð
eru á spjallrásum Netsins, eins
og til dæmis broskallana sívin-
sælu. Sýningin stendur að
minnsta kosti til 15. nóvember.
Gen á netið
Hægt er að skoða kort af 16
þúsund genum á vefsíðu banda-
ríska heilbrigðisbókasafnsins.
Vefsíðan er hluti af átaki stofn-
unarinnar og samstarfsaðila
hennar til þess að fræða al-
menning um erfðir. Slóðin á
síðuna er
www.nbci.nlm.nih.gov/SCI-
ENCE/
Netið gagnast
fölsurum
Frönsk yfirvöld reyna nú að
berjast við falsara sem nota
Internetið til þess að nálgast
upplýsingar um franska há-
tísku. Upplýsingamar, sem eru
í formi mynda og texta, eru svo
notaðar til þess að falsa tisku-
fatnað. Franskir embættismenn
segja erfitt að eiga við glæpi af
þessu tagi þar sem óheiðarlegir
aðilar skoði það nýjasta í
franskri tísku nokkrum mínút-
um eftir að hönnuðir kynni
hana á netinu. Talið er að stóru
tískuhúsin í Evrópu tapi hund-
ruðum milljóna króna á ári
vegna falsana af þessu tagi.
-JHÞ
Beingreiðslur
hjá Hringiðunni
Hringiðan býður nú þeim
sem hafa Internetsáskrift sína
þar að greiða hana með bein-
greiðslum. Fast mánaðargjald
lækkar jafnframt um 300 krón-
ur vegna þessa.
17
UTBOÐ
RARIK óskar eftir tilboðum í:
RARIK 96008 - Aflspennir, 6,3 MVA, 66 (33) llkV
Útboðsgögn verða seld á aðalskrifsofu RARIK, Laugavegi 118, 105
Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 4. nóvember 1996 og kostar
2.000 kr. hvert eintak.
Skila þarf tilboðum á skrifstofu RARIK, Laugavegi 118, Reykjavík,
fyrir kl. 14 föstudaginn 29. nóvember 1996. Tilboðin verða opnuð í
viðurvist þeirra bjóðenda sem óska að vera nærstaddir.
Vinsamlega hafið tilboðin í lok uðuumslagi, merktu:
RARIK 96008
^ RARIK
Laugavegi 118-105 Reykjavfk
Sími 560 5500 • Bréfasimi 560 5600
F „Dr. Dauði" færir út kvjprnar
NY DAUÐAVEL
Nýlega var fjallað um hinn hel-
sjúka Ástrala, Bob Dent, sem ákvað
að stytta sér aldur með aðstoð bún-
aðar sem stjórnað er með tölvu en
líknarmorð voru nýlega leyfð í
norðurhéruðum Ástralíu. Nú hefúr
heilinn bak við búnaöinn, dr.
Nitschke (andstæðingar hans kalla
hann reyndar dr. Dauða), ákveðið
að setja upp heimasíðu um líknar-
dauða. Þar verður meðal annars
hægt að sækja forritið sem stjómar
sjálfsvígsbúnaði hans.
Vill kynna líknardráp
Dr. Nitschke segir að reyndar sé
forritið, sem stjórnar dauðavél
hans, lítilvægur hluti hennar. „Það
sé mjög einfalt að búa slíkt forrit til
og það er reyndar auðvelt að búa
vélina sjálfa til. Hins vegar er afar
erfitt að verða sér úti um lyfin sem
stytta sjúklingnum aldur,“ segir dr.
Nitschke. Norðurhéruð Ástraliu
leyfa ein líknardráp en dr. Nitschke
segist ekki hafa neinar áhyggjur af
því að verða lögsóttur þó að fólk
annars staðar í heiminum fari að
taka upp á að nota -hugbúnaðinn til
að stytta sér eða einhverjum öðrum
aldur. Hann telur sig svo óhultan að
hann hefur þegar sent fjölmörgum
notendum Internetsins leiðbeining-
ar um notkun hugbúnaðarins og
dauðavélarinnar með tölvupósti.
„Ástæðan fyrir því að ég er að
kynna búnaðinn minn er sú að ég er
að sýna þeim sem vilja sjá að líkn-
ardráp fara fram með ábyrgum
hætti hér í norðurhéruðum Ástral-
íu,“ segir dr. Nitschke
Er að þróa nýja vál
Ef notað er mál viðskiptafræð-
inga þá má segja að dr. Nitschke sé
ekki einungis í markaðsstarfi þessa
dagana heldur stendur hann einnig
i umfangsmikilli vöruþróun. Hann
er nefnilega að þróa nýja útgáfu af
dauðavél sinni þar sem ætlunin er
að banvænar lofttegundir taki við af
lyfjum. „Það er svo erfitt að finna
æðar þegar fólk er orðið mjög gam-
alt og lasburða. Efiii eins og koltví-
sýringur er mun þægilegra fyrir
slika sjúklinga," segir dr. Nitschke
Samantekt: JHÞ
frá Megabúðinni, Laugavegi 96.
39,90 mínútan, Símatorg DV