Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
Fréttir
29
Norðurlandskjördæmi vestra:
Þrír staðir vilja
fá náttúrustofu
DV, Sauðárkróki:
Nýleg lög frá Alþingi gera ráð
fyrir stofnun náttúrustofu í hverju
kjördæmi landsins. Þrír aðilar í
Norðurlandskjördæmi vestra hafa
sóst eftir að fá þessa stofhun til sín
- Hólaskóli, Sauðárkróksbær og
Höfðahreppur á Skagaströnd.
Umhverfisráðuneytið hefur
ákveðið að 3ja manna starfshópur
verði skipaður til að velja stofunni
stað. Samband sveitarfélaga á Norð-
urlandi vestra hefur skipað sinn
fulltrúa í starfshópinn, Bjarna Þór
Einarsson framkvæmdastjóra, en
Krakkarnir í leikskólanum Gefnarborg á heimleiö úr heiöinni. DV-mynd ÆMK
ráðuneytið og Náttúruverndarráð
hafa ekki skipað sína fulltrúa. Mál-
iö er því í biðstöðu.
Bjami Þór Einarsson sagði í sam-
tali við DV að þessi aðferð til að
velja stofnuninni stað á hlutlausan
og heiðarlegan hátt væri að sínu
mati ekki einfold. Lög um náttúru-
stofu gera ráð fyrir því að ríkið taki
að hálfu leyti þátt í uppbyggingu
stofnunarinnar ásamt sveitarfélög-
um sem að henni standa og laun
eins sérfræðings verði síðan greidd
af ríkissjóði.
Náttúrustofu er gert samkvæmt
lögunum að starfa í samvinnu við
Náttúrufræðistofnun íslands. Starf-
semi stofnunarinnar getur verið á
fleiri en einum stað í kjördæminu
eftir skipulagi sem rekstraraðilar
koma sér saman um. Helstu hlut-
verk náttúmstofu eru að safna
gögnum og varðveita heimildir um
náttúrufar, stuðla að almennum
náttúrurannsóknum í viðkomandi
landshluta, æskilegri landnýtingu,
náttúravemd og fræðslu um nátt-
úraverndarmál og umhverfismál.
Einnig á hún að veita fræðslu um
náttúrufræði og aðstoða við gerð
náttúrulýsinga.
-ÞÁ
Leikferd í heiðina
DV, Suöurnesjum:
„Við voram að koma með böm-
in ofan úr heiði. Þar vora þau í
leikfimi, klifruðu á steinmn og
hlupu um í móanum, frjáls og
ánægð. Þau sulluðu aðeins í poll-
unum og eru alveg rosalega ánægð
með svona ferðir," sögðu Gunn-
þóra Theódórsdóttir og Ólöf Guð-
mundsdóttir, kennarar við leik-
skólann Gefnarborg í Gerðahreppi,
við DV. Þær vora að koma úr ferð
með 16 böm, 3-5 ára. AUs eru 40
krakkar á leikskólanum fyrir há-
degi og annað eins eftir hádegi.
„Við erum af og til með sniðug-
ar ferðir og meðal annars fjöru-
ferðir. Það er nauðsynlegt að fara
með bömin út fyrir leikskólann og
kenna þeim að forðast hættu fyrir
utan grindverkið," sagði Gunn-
þóra.
-ÆMK
QOOD/YCAR
rfefuc hétbb ýriþit •
HEKLA
Mnudags
Ihveí
umst
RFINU
VESTURBÆR
Alþingismenn og borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins fyrir Reykjavík
eru með viðtalstíma í hverfum
borgarinnar á mánudögum.
f dag verða
INGA JÓNA
ÞÓRÐARDOTTIR
borgarfulltrúi
&
LÁRA MARGRÉT
RAGNARSDÓTTIR
alþingismaður
Gallerí Borg, Aðalstræti 6
(gamla Morgunblaðshúsinu)
kl. 17-19-
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Heykvíkinga
að ræða málin og skiptast á skoðunum
við kjörna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Hafðu áhrif og láttu þínar skoðanir heyrast.
WAmTJUHmðKKUaiNH
VÖR.ÐUR- FULLTRÚARÁÐ SjÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA í REYKJAVÍK
Blaðberi DV í Grundarfirði:
Notaði launin til
að kaupa græjur
DV, Grundarfirði:
„Ég er búinn að bera út DV í
tvö ár. Ég er búinn að safna
mér fyrir græjum og svo keypti
ég mér hjól og tjald í sumar og
á enn 50 þúsund krónur. Ég
eyði ekki miklu í sælgæti en þó
aðeins,“ segir Júlíus Arnar Jós-
epsson sem ber út DV í Grand-
arfirði ásamt systur sinni. Þeg-
ar DV var á ferð 1 Grundarfírði
í síðustu viku var Júlíus að
bera út blaðið en gaf sér þó
tíma til að spjalla aðeins. Hann
segist passa upp á að þera blað-
ið út sem fyrst þegar það kem-
ur á staðinn úr Reykjavík.
„Það er bara gaman að bera
út blaðið. Ég ætla ekki að hætta
þessu neitt á næstunni," segir
Júlíus Arnar -rt
Júlíus Arnar sér um að færa áskrifendum
DV blaöiö sitt á réttum tíma. Hann segist
nota blaðberalaunin til aö kaupa þá hluti
sem hann langar í. DV-mynd Pjetur
Þjáist þú af vöðvabólgu, þvagleka,
brjósklosi eða viltu bara grenna þig
og losna við
cellolit eða
styrkja þig,
þá ertu
veikomin
í ókeypis
kynningar-
tíma hjá
ur.
Ath.! Opið frá
ki. 08.00-23.00
alla virka daga
TRMFOm
8 erglindar
Grensásvegi 50, sími 553 3818