Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1996, Síða 31
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1996
39
Fréttir
Sundfólk þjálfað
með fjarþjálfun
DV, ísafiröi:
Sundfólk Vestra á ísafirði var í
þjálfunarbúðum á Flateyri á dögun-
um. Var það liður í allsérstæðu fjar-
þjálfunarferli sem Magnús Tryggva-
son, sundþjálfari á Selfossi, stýrir.
Fréttamaður DV fór til Flateyrar
til að kynna sér hvernig íjarþjálfun
í sundi fer fram. Þar var í gangi æf-
ing í sundlauginni undir stjórn
þjálfaranna Kristjáns Breiðfjörðs og
Magnúsar Tryggvasonar sem var til
að meta árangur fjarþjálfunarinnar.
Magnús sagði að þjálfunin færi
þannig fram að hann útbyggi þjálf-
unarplan sem hann sendi síðan
vestur til ísafjarðar. Þar erþað hlut-
verk Kristjáns að framfylgja áætl-
unum Magnúsar. Að sögn þeirra fé-
laga hefur þetta gefist vel og er hug-
myndin að Magnús komi annað
slagið til að meta árangur af þessari
ijarþjálfun.
Þá sagði Magnús að það væri
kannski ekki síst tilgangurinn með
komu sinni nú að kynnast sundfólk-
inu svo hann gæti betur samið þjálf-
unarplan fyrir hvern og einn í lið-
inu. Fyrirkomulag sem þetta mun
ekki vera með öllu óþekkt og hefur
Magnús ágæta reynslu af því.
Þó aðstaðan í sundlauginni á
Flateyri sé góð þá háir það keppnis-
fólki mjög að engin sundlaug á
svæðinu hefur fulla lengd sem
keppnislaug. Raunar er ekki um
aðra laug að ræða en sundlaugina í
Tálknafirði sem uppfyllir þær kröf-
ur en það er útilaug. Þeir félagar
segja í raun furðulegt að ekki skuli
hafa verið valinn ódýrari kostur við
uppbyggingu iþróttamannvirkja á
svæðinu en raunin varð.
-HKr.
■X'ft’X'
Kristján- Breiðfjörö og Magnús Tryggvason sundþjálfarar. Ljósmynd Höröur
Drífa Skúladóttir, bæjarfulltrúi í Snæfellsbæ:
Alþjóölegur björgun-
arskóli á Gufu-
skálum er draumurinn
DV, Hellissandi:
„Það er draumur okkar að al-
þjóðlegur björgunarskóli taki til
starfa hér á Gufuskálum. Þetta mál
er í vinnslu hjá helstu björgunar-
aðilum á landinu," segir Drifa
Skúladóttir, bæjarfulltrúi í Snæ-
fellsbæ, rnn möguleika þess að tek-
inn verði upp alþjóðlegur björgun-
arskóli að Gufuskálum þar sem
áður var rekstur Lóranstöðvarinn-
ar.
Drifa segir ljóst að á þessu svæði
sé allt sem til þarf til að þjálfa
menn í leitar- og björgunarstörfum.
„Við höfum allt sem þarf til að
þjálfa fólk. Ég nefni jökulinn,
strandlengjuna, sjóinn og hafnim-
ar. Þá er þarna um að ræða afgirt
húsnæði. Það er stutt í alla þessa
þætti,“ segir Drífa.
„Það hafa komið hingað ungliðar
frá Slysavamafélaginu og hunda-
þjálfarar sem hafa dvalið um hríð
að Gufuskálum. Reynsla þeirra var
að staðurinn væri mjög heppilegur.
Það má segja að hann hafi sannað
sig,“ segir Drífa.
-rt
Drífa Skúladóttir, bæjarfulltrúi í
Snæfellsbæ, segir Gufuskála vera
kjörinn stað fyrir alþjóðlegan björg-
unarskóla.
Allt á einum stað
H smurstöð
Vetrarhjólbarðar og umfelgun
Þvottur og bón
Púströr - bremsuklossar - perur - rafgeymar
Smur, bón og dekkjaþjónusta sf
Tryggvagötu 15, sími 562-6066, fax 562-6038
Greiðslukort OLÍS, Visa og Euro
Islensk gæðaframleiðsla á frábæru verði
feHjólbarðaþjónusta
fagleg vinnubrögð
örugg þjónusta
Léttarhálsi 2 • Sími 587 5588
mán. - fösdud.
laugardaga
i
I
:=swe<
ÚTSALA
Skyrta kr. 3.600,-
Buxur kr. 2.900,-
Sportvörugerðin,
Mávahlíð 41, s. 5628383
Varmanærfötin
SKÚIHSOH 6J0NSS0H
VERSLUN • SKÚTUVOGI 12H ■ REYKJAVÍK ■ SÍMI 568-6544
haubold
,
%,'*****' . <b
^■4GA
í verslun okkar eigum við
ávallt til fjölbreytt úrval af
Haubold nagla- og hefti-
byssum sem henta hverjum
iðnaðarmanni sem vill láta að
sér kveða. Jafnframt bjóðum
við nagla og hefti á verði sem
vert er að kynna sér betur.
Haubold - þessar rauðu!
Úrval notaðra bíla
á góðum lcjöruml
Ath! Skuldabréf til allt að 60 mánaða.
Opiö: virka daga kJ. 9—18 laugardaga kl. 10 — 17 Jafnvel engin útborgun.
Visa/Euro greiðslur