Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1996, Blaðsíða 29
JjV LAUGARDAGUR 9. NÓVEMBER 1996
29
Rúnar Júlíusson tónlistarmaður er að ná heilsunni aftur:
Verður að
hætta að
spila fótbolta
DV, Suðumesjum:___________________
„Heilsan er öll að koma til og ég
er mjög hamingjusamur í dag. Ég er
búinn að lifa góðu lífi í hálfa öld og
bróðurpartinn af því mjög jákvæðu
og ánægjulegu. Ég hef ekki mátt
spila eins mikið og ég gerði áður en
ég fór í aðgerðina. En í veikindun-
um gafst mér tími til að semja
lög og er núna að gefa út
heila hljómplötu sem heit-
ir Stuð í hjarta. Þetta er
ágætisnafn. Ég lenti í
hremmingum með hjart-
að og þurfti þrjú stuð til
að koma þvi í gang aft-
er maður orðinn háður því að fara i
göngutúra.
Á lyfi út ævina
Það er margt sem ég má ekki gera
í Reykjavík, á Reykjalundi og heima
í Keflavík eftir aðgerðina náði hann
að semja heila hljómplötu sem er að
koma út um þessar mundir.
Rúnar Júlíusson er að byrja að spila á fullum krafti og segist vera í betra út-
haldi en áður en hann fór í hjartaaðgerðina. Eiginkona Rúnars, María Bald-
ursdóttir, var ekki heima þegar myndin var tekin en Rúnar, sem er hug-
myndaríkur, var fljótur að grípa mynd af konu sinni af vegg í upp-
tökustúdíói fjölskyldunnar svo hún gæti verði með á myndinni.
María var kosin fegurðardrotting íslands árið 1969.
DV-mynd ÆMK
-
ur eftir skurðaðgerðina," segir Kefl-
víkingurinn Rúnar Júliusson, hinn
51 árs landsþekkti tónlistarmaður.
Það er ekki annað að sjá á Rúnari
en hann sé eldhress í finu formi og
mjög jákvæður á framtíðina. Rúnar
lagðist inn á hjartadeild Borgarspít-
alans í Reykjavík í hyrjun maí
vegna fæðingargalla sem kom ekki í
ljós fyrr en vikuna áður. í ljós kom
að ein hjartalokan var gölluð. í júní
fór hann í hjartauppskurð þar sem
skipt var um hjartalokuna. Eftir að-
gerðina var hann á Reykjalundi í
fimm vikur.
„Mér finnst aðgerðin hafa tekist
mjög vel. Ég hef betra úthald í dag
en áður en ég fór á skurðarborðið.
Það var mjög erfitt að vera með
vökva í lunga og öllum vefjum. Ég
er í miklu betra ásigkomulagi í dag
en ég var áður þannig að likaminn
er orðinn nýr. Það er mælt með því
að ég gangi og ég geng daglega 5-10
kílómetra til að ná upp þreki og svo
í dag en gat gert áður en áfallið
kom. Ég hef alltaf spilað knatt-
spyrnu með félögunum innanhúss
einu sinni til tvisvar í viku en lækn-
arnir mæla ekki með því að ég spili
knattspymu og ég hugsa að ég
eigi ekki eftir að gera það framar.
Ég er á blóðþynningarlyfi og þarf að
vera á því út ævina. Læknarnir
mæla frekar með sporti þar sem
ekki eru miklar líkur á
hnjaski eins og í knattspymu,"
segir Rúnar.
Honum þykir sorglegt að hætta
allt í einu að sparka í bolta sem „ég
hef gert frá unga aldri. Nú verður
maður bara að snúa sér aö allt öðm,
til dæmis badminton eða skák. Þá
má ég helst ekki drekka og reykja.
Ég hef aldrei reykt þannig að það
truflar mig alls ekki neitt. Enég má
ekki drekka einn bjór vegna þess að
alkóhólið raskar blóðþynningunni,"
bætir Rúnar við.
Meðan Rúnar var á sjúkrahúsinu
13 lög á
nýrri plötu
„Á svona
stofnunum hefur
maður svo mik-
inn tíma með
sjálfum sér og þar
fær maður hugmyndirnar. Ég fékk
tíma til þess að gefa út nýja hljóm-
plötu sem er byggð upp öðruvísi en
allar aðrar hljómplötur sem ég hef
gert. Ég er með 13 lög á plötunni og
sem hana með jafnmörgum höfund-
um og má nefha eitt lag með Bubba
Morthens, KK, Gunnari Þórðarsyni,
Þóri Baldurssyni, Sverrir Storm-
sker og Magnúsi Kjartanssyni
ásamt fleirum. Svo eru það ég,
Tryggvi Húbner, Matthías Hem-
stock og Þórir Baldursson sem flytj-
um lögin,“ sagði Rúnar.
HljómplötuútgáfufyrirtækiðGeim-
steinn, sem er í eigu fjölskyldu Rún-
ars, gefur út fleiri plötur fyrir jólin.
Má nefna 20 bestu lög Gylfa Ægis-
sonar, Barnaævintýri og endurút-
gáfu Trúbrot mandala sem hefur
ekki komið á geisladiski, svo eitt-
hvað sé nefnt. Þá er Rúnar einn af
flytjendum stórsýningarinnar Kefla-
víkurnætur II sem spannar tímabil-
ið frá 1955 til dagsins í dag.
-ÆMK
SIGLUFJÖRÐUR
V////////////A/AAAA,
Nýr umboðsmaður
EYRÚN PÉTURSDÓTTIR
Eyrargötu 7 - Símar 467-1555 og 467-1488
Fjarstýröur
ræsibúnaður/samlæsingar
Þú sest inn í heitan og notalegan bílinn, þegar þú hefur lokið við
morgunkaffið, og þarft ekki að skafa rúðurnar.
Verð 23.000 kr. með ísetningu.
H. Hafsteinsson Sími 896-4601
á^mwkmm
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
*
; Þú þarft aðeins eitt símtal
i í Lottósíma DV til að fá nýjustu
i tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
i og Kínó t
Sl JHTAB88 jBHf fflr
SmWi ÍVSI/if#
9 0 4 - 5 0 0 0
Steinullarbíllinn auglýsir
Einangrum öll hús, ný sem gömul, með steinull
frá Sauðárkróki.
Ullinni er blásið á sinn stað hvort sem er
í holrúm, útveggi, þök, innveggi (hljóðeinangrun) eða
ofan á loftplötur.
Getum komist að stöðum sem erfitt er að komast að.
Ókeypis skoðun - Gerum tilboð
JÓN ÞÓRÐARSON
Sfmi 587-9194, bilas. 853-3892, fax 587-9164