Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 9
Guðmundur Arnlaugsson, fyrr-
verandi rektor Menntaskólans við
Hamrahlíð, lést í Landspítalanum 9.
nóvember eftir erfiða sjúkdómslegu.
Guðmundur, sem var fæddur árið
1913, var einn fremsti skákmeistari
íslendinga á árum áður og tefldi
m.a. á fimm ólympíuskákmótum
fyrir íslands hönd. Hann var ekki
síður kunnur fyrir ritstörf sín en
eftir hann liggja tvær skákbækur,
Qöldi greina í blöðum og timaritum,
auk þess sem hann flutti fastan
skákþátt í Ríkisútvarpinu um ára-
bil. Guðmundur er fyrsti alþjóðlegi
skákdómari íslendinga og naut virð-
ingar á þeim vettvangi. Hann var
m.a. dómari í heimsmeistaraeinvígi
Fischers og Spasskýs í Laugardals-
höllinni 1972 og í keppni Karpovs og
Kortsnojs tíu árum síðar. Guð-
mundur var kjörinn heiðursfélagi
Skáksambands íslands árið 1975.
Umsjón
Jón L. Árnason
Með Guðmundi er genginn merk-
ur fulltrúi skáksögu íslendinga.
Guðmundur lét fyrst að sér kveða á
skáksviðinu á námsárum sínum í
Kaupmannahöfn þar sem hann
lagði stund á stærðfræði. Hann
tefldi á sinu fyrsta ólympíuskák-
móti i Munchen 1936 og síðan í Bu-
enos Aires 1939 en þar urðu íslend-
ingar efstir í B-riðli og hömpuðu
forsetabikarnum svonefnda. Sigl-
ingunni til Argentínu og mótshald-
inu hefur Guðmundur lýst
skemmtilega í tímaritinu Skák og
má af því ráða að fórin hefur verið
ævintýri líkust. Eftir að Guðmund-
ur kom heim að loknu námi varð
hann skákmeistari Norðlendinga
1946 og íslandsmeistari 1949. Síðasta
ólympíumótið sem Guðmundur tók
þátt í var í Moskvu 1956.
Skáksveit MH á rektorsárum
Guðmundar bar höfuð og herðar
yfir sveitir annarra skóla og var
margfaldur Norðurlandameistari.
Mér er það minnisstætt hversu Guð-
mundur tók ungum nemanda ljúf-
mannlega á skrifstofu rektors þegar
sá óskaði eftir því að verða leystur
tímabundið undan námsskyldum
sínum. Viðmótið breyttist ekki þótt
keppnisferðunum fjölgaði jafnvel
meira en góðu hófi gegndi.
í erilsömu starfi gafst Guðmundi
ekki tóm til taflmennsku en hann
sneri sér í ríkari mæli að skákskrif-
um. Skáksagan og gömlu meistar-
arnir voru honum hugstætt yrkis-
efni og eins skákþrautir og tafllok.
Fastir þættir Guðmundar í tímarit-
inu Skák um tafllok bera vönduðu
handbragði hans fagurt vitni og
næmu fegurðarskyni. í 5. tbl. 1996,
sem út kom fyrir skemmstu, segir
Guðmundur m.a. þetta: „Væri ég
spurður að því hvaða tafllok mér
væru minnisstæðust af þeim sem ég
hef séð kæmist ég í talsverðan
vanda. Samanburðurinn er erfiður
ein tafllok hafa þetta sér til ágætis,
önnur hitt. Það er rétt eins og að
vera spurður að því hvaða fugl sé
fallegastur eða hvaða blóm.
Skömmu eftir að ég lærði mann-
ganginn sá ég skákþraut sem varð
mér lengi minnisstð vegna þess
hvernig hvíta drottningin labbaði
upp homalínuna al til h8 og hélt
kóngi svarts í skefjum á meðan.
Loks þegar hún var komin nógu
langt fann hún opna línu og gat
smellt sér niður í borð og mátað. Ég
væri ekki jafn hrifinn af þessu nú
en það hefur sennilega verið geó-
metrían í lausninni sem heillaði
mig.“
Á fimmtiu ára afmæli lýðveldis-
ins 1994 tefldu íslensku stórmeistar-
amir fjöltefli á Nýjatorgi í Kaup-
mannahöfn á vegum íslendingafé-
lagsins. Guðmundur og kona hans,
Alda Snæhólm, voru með í för en
Guðmundur var dómari í taflinu.
Við þetta tækifæri rifjaði Guðmund-
ur upp eitt og annað frá Kaup-
mannahafnarárum sínum sem verð-
ur þeim sem á hlýddu ætíð minnis-
stætt. Guðmundur var þá orðinn
áttræður en bar aldurinn vel. Hann
rifjaði m.a. upp lýðveldisdaginn, 17.
júní 1944, er hann var staddur í
Kaupmannahöfn - rétt eins og
fimmtíu árum síðar - en nærri má
geta að margt hafði breyst á þessum
ámm.
Fyrir fjórum árum sendi Guð-
mundur mér bréfstúf. Tilefnið var
Guðmundur Arnlaugsson.
umræða um skákbyrjunina kóngs-
bragð sem varð til þess að skák, sem
Guðmundur tefldi fyrir nærri hálfri
öld „og var rækilega búinn að
gleyma", rifjaðist upp fyrir honum.
Guðmundi var kunnugt um áhuga
minn á þessari fomu en bráð-
skemmtilegu byrjun. Með bréfinu
fylgdi ljósrit úr Skák árið 1947 þar
sem skákin birtist með skýringum
Guðmundar. Um skákina segir Guð-
mundur: „Þetta er bréfskák, tefld á
síðari hluta stríðsáranna, 1943 eða
4, þegar nasistar voru að herða tök-
in á Dönum. Mig minnir að aðal-
maður Dananna, landsliðsmaðurinn
Hartvig Nielsen, hafi verið settur í
fangelsi meðan á henni stóð.“
I bréfinu lýsir Guðmundur einnig
skemmtilega skáklífinu í Kaup-
mannahöfn á stríðsárunum og rifjar
upp magnaða og spennandi skák
sem hann tefldi við nefndan Hartvig
Nielsen á Danmerkurmeistaramóti
1940 eða 41. Guðmundi segist svo
frá:
„Það var oft erfítt á þessum mót-
um, Danmerkurmótið var alltaf teflt
um páska og því þurfti að tefla tvær
umferðir suma dagana - og biðskák-
ir að auki. Við vorum víst báðir
búnir að tefla tvisvar sinnum fjóra
tíma þegar við settumst að biðskák-
inni seint um kvöldið. Ekki var
nema örfáum skákum ólokið og um-
hverfis borðið hjá okkur var kom-
inn margfaldur mannhringur að
horfa á. Það hallaði á Hartvig og átti
að vera að því komið að hann legði
niður vopn. En Hartvig var tals-
verður bardagamaður og ekki á því
að gefast upp. Ég get enn heyrt fyr-
ir mér strauminn sem hríslaðist
eins og andvarp um hópinn um-
hverfis okkur þegar hann lék og
ljómaði upp í patt! Ég hafði verið á
verði gagnvart þessum möguleika
en nú var sefjunin frá áhorfendun-
um svo sterk að mér fannst sem
snöggvast ég vera búinn að leika
taflinu niður í jafntefli. Ég sat nokk-
ur andartök hreyfingarlaus en leit
svo aftur á stöðuna - hann var ekki
patt! Þetta voru dramatísk augna-
blik, skákin var oft ekki síður
spennandi hjá okkur þótt við tefld-
um ekki jafnvel og þið gerið nú.“
Kóngsbragðsskákin góða er býsna
skemmtileg og hraustlega tefld. Ég
byggi á skýringum Guðmundar við
skákina.
Hvítt: Skákfélag Hafnarstúd-
enta
Svart: Jysk Akademisk
Skakklub
Kóngsbragð.
1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Rf3 h6 4.
Bc4 d6 5. d4 g5 6. 0-0 Bg7 7. c3
Re7 8. g3 g4 9. Rh4 f3
„í svipuðum stöðum og þessari
hefur Speelman leikið Rbl-d2xf3 og
fengið sterka sókn. Hér fer hvítur
aðra leið.“
10. Db3 0-0 11. h3 h5 12. Bg5
De8!
„Hvítur hótaði 13. Rg6. I síðasta
leik svarts er falin lævísleg gildra:
13. Rxe7 Dxe7 14. Rg6 Dxe4! 15. Rxf8
d5!! Ef nú Bxd5 þá De2 og hvítur get-
ur ekki varist máti. Biskupinn get-
ur því ekki drepið peðið - og ekki
nóg með það, hann á engan öruggan
reit. í stað þess að vinna skiptamun
mundi hvítur því missa tvo menn
fyrir hrók.“
13. Rd2 Rc6 14. Dc2 Ra5 15. Bd3
f6
„Þessi leikur kom flatt upp á okk-
ur en það er erfitt að benda á betra,
staðan er svo þröng...tilgangur
svarts með f6 er að knýja fram f5 og
rýma þannig til en gallinn er sá að
kóngurinn verður berskjaldaður."
16. Bf4 Df7 17. hxg4 hxg4 18.
KÍ2!
„Kóngurinn notar svörtu peðin
sem skjöld. Hvítur er reiðubúinn til
að leggja undir sig h-línuna og auk
þess e-línuna ef hún skyldi opnast."
18. - f5 19. Hhl d5 20. exf5 Rxf5
21. Hael Rc4
„Hér kom sterklega til greina að
vinda sér yfir í tafflok með almenn-
um kaupum: 22. Rxc4 dxc4 23. Bxf5
Bxf5 24. Rxf5 Dxf5 25. Dxf5 Hxf5 26.
Hh4. Svartur getur þá ekki valdað g-
peðið. En hann á mótspil í 26. - Hb5
27. Bcl Hf8 28. Hxg4 Hh5, svo að
hvítur tekur annan kost, sem einnig
hafði það til sín ágætis að vera í stíl
við fyrri hluta skákarinnar.“
22. Rfl
„Hvítur hótar nú einfaldlega að
reka Rc4 í burtu og setja síðan eitt
vald enn á f5 með Re3. Það myndi
kosta svarta riddarann að stöðunni
óbreyttri að öðru leyti því að riddar-
inn má ekki hopa vegna Bh7+.“
22. - Bd7 23. b3 Ra3 24. Db2 Rb5
25. Re3!
Ef hins vegar 25. Rxf5 Rxf5 26.
Bxb5 a6! og biskupinn á sér ekki
undankomu auðið.
25. - Rxe3 26. Hxe3
„Hótar að vinna drottninguna
með Bh7+, Kxh7, Rf5+ Kg6 (g8)
Re7+.“
26. - Bf6
Ef 26. - Hfe8 er 27. Bg6 mögulegt;
ef 26. - Hfd8 27. Rg6 og næst 28. Re5.
27. Rg6
- Og svartur gafst upp. Ef t.d. 27. -
Hfe8 28. Re5 og áfram gæti teflst 28.
- Bxe5 29. Bxe5 De6 30. c4 og hvítur
á vinningsstöðu.
Barbara Cartland stillti sér upp við MG Montlery Midget frá árinu 1931 sem
er sama tegund bíls og hún keyrði árið 1931.
Barbara Cartland
á kappaksturbrautína
Barbara Cartland ástarsagnahöf-
undur, sem nú er orðin 95 ára,
skrúfaði klukkuna til baka þegar
hún fór aftur á kappaksturssvæðið í
Brookland 65 árum eftir að hún
keppti þar fyrst.
Cartland lét mana sig þegar hún
var þrítug að aldri til þess að keppa
í kappakstri á Bentley-bíl. Hún
sagði strákunum að konur væru
jafn góðir bílstjórar og karlmenn og
þeir sögðu mér að sanna það. í þetta
skipti var hún ekki bak við stýrið.
Hún stillti sér upp við MG Montlery
Midget frá árinu 1931 sem er sama
tegund bíls og hún keyrði árið 1931.
sviðsljós
aijan ára hjónaband
Fran Drescher, sem áhorfendur
Stöðvar 2 þekkja sem Fran Fine úr þátt-
unum um Barnfóstruna, er skilin að
borði og sæng við eiginmann sinn
átján ára, Peter Marc
bæði 39 ára en hvorugt þeirra hef
ið fram á lögskilnað enn þá.
í menntaskóla og hafa verið saman síð
an. Drescher og Jacobson hafa löngun
verið talin með hamingjusömustu pör
unum í Hollywood og engan grunaði að
brestir væru komnir í hjónaband
þeirra. Drescher hefur þó stundum
kvartað yfir því að hann
stjóma því sem hún ségir og
starfsfólk þeirra segir að hjónunum
yfirleitt komið vel saman en þau
um langt skeið starfað náið saman að
upptökum þáttanna um barnfóstruna.
Fyrir átta árum reyndi heldur betur á
ást þeirra þegar tveir menn réðust inn í
íbúðina þeirra í Los Angeles og bundu
Jacobson og nauðguðu Drescher og vin-
konu hennar. Þau unnu úr því máli
með hjálp sérfræðinga og hvort annars.
Nánir vinir þeirra vonast einnig til að
þeim takist að leysa ágreining sinn i
þetta sinn.
Fran Drescher, sem leikur Fran Fine í þáttunum um Barnfóstruna, er skil-
in að borði og sæng við eiginmann sinn, Peter Marc Jacobsson.