Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 JL>V
stýrt af tveimur konum. Þeim hin-
um miklu móðurhöndum.
Fundafall á Alþingi í dag. Hópur
ráðherra og þingmanna kominn á
Norðurlandaráðsþing til þess að
tala skandinavísku við „okkar
kæru, norrænu bræöur“. Við hin
getum því tekið okkur góðan tíma
á þingflokksfundinum. Rætt um
vinnuvikuna í þinginu, sem hefst
aftur á morgun. Rætt um næstu
skrefin í verkefninu „Samstarf
jafnaðarmanna". Mættur verktak-
inn í víngarði drottins, Einar Karl
Haraldsson.
Vék af fundi rétt fyrir klukkan
fjögur. Á slaginu fjögur mætti á
skrifstofu minni í Austurstræti
blaðamaður DV, Sdór, til þess að
taka viðtal. Yfirheyrsla heitir það.
Eins opg heitir fyrir rétti. Samt
enginn dómur upp kveðinn. Ekki
dómharður maður, Sdór? Á það nú
samt til.
Verklok kl. sjö
Aftur í símann að viðtali loknu.
Jón Baldvin leit við rúmlega fimm.
Hafði stuttan stans. Maður á hrað-
ferð. Verður kominn áleiðis til
Kína þegar þetta birtist. Til þess
að messa yfir Kínverjum næstu
þrjár vikumar. Össur sagði í sjón-
varpinu að maður jafn stór í snið-
um og Jón Baldvin ætti að vera
formaður í stórum flokki hjá fjöl-
mennri þjóð. Þjóðir gerast ekki
fjölmennari en í Kína. Vantar líka
krataflokk þar. Svo er Jón Baldvin
líka „simmari góur“ eins og frænd-
ur vorir í Færeyjum segja. Eins og
Maó formaður, sem „simmaði“ í
Gulá.
Verklok á skrifstofunni rétt fyr-
ir klukkan sjö. Ekið heim í Breið-
holtið með viðkomu til þess að
kaupa mjólk. Hefðbundinn kvöld-
verður með eiginkonu og syni
mínum, sem heima býr. Hin böm-
in hvert á sínum stað; á Kýpur, í
Köln og í Kópavogi.
Eftir fréttir, síminn. Eftir sím-
ann undirbúningur undir almenn-
an fund, sem haldinn verður á veg-
um Alþýðuflokksfélags Reykjavík-
ur næsta kvöld. Þar á eftir farið í
háttinn."
„Mánudagur. Rólegur dagur
framundan eftir miklar annir.
Flokksþingi Alþýðuflokksins, Jafn-
aðarmannaflokks íslands lauk í
gær. Þinginu lauk í sátt og sam-
lyndi. Mikil samstaða var á þing-
inu um málefnavinnu og mörkun
stefnu og ný forysta var kjörin þar
sem áhrif kv enna og ungs fólks
vora stórlega aukin. Skilaboð
flokksþingsins eru skýr og ein-
drægni ríkir í röðum jafnaðar-
manna. það styrkir okkur til allra
verka.
Gott er þreyttum að sofa. Vakn-
aði ekki fyrr en á tíunda timanum.
Fyrsta verkið að fá sér morgun-
kaffið og lesa DV. Jákvæður leið-
ari Elíasar Snælands um flokks-
þingið og formannsskiptin. Rétt
hjá honum, að ríkur vilji er hjá
mörgum að efna til kosninga-
bandalags jafnaðarmanna fyrir
næstu kosningar. Árangur R- list-
ans í Reykjavík sýnir, hvað hægt
er að gera og orð Grétars Þor-
steinssonar, forseta ASÍ, og Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg-
arstjóra em til vitnis um að öflug
hreyfing er að myndast um að því
fordæmi verði fylgt á landsvísu.
Og svo fer síminn að hringja.
Eins og vænta má. Var í símanum
fram undir klukkan ellefu. Þá lá
leiðin niður á Alþýðublað. Átti
rabbfund með ritstjóminni þar
sem m.a. var rætt um stöðu og
framtíö blaðsins. Alþýðublaðið er
hvorki stórt né úitbreitt. Samt að
margra áliti best skrifaða blað á ís-
landi.
Klukkan tólf stuttur fundur með
nýkjömum varaformanni, ritara,
gjaldkera og formanni fram-
kvæmdastjórnar. Rætt um verk-
efnin framundan. Að þeim fundi
loknum liggur leiðin niður í Al-
þingishúsið við austurvöll.
Fundafall
á Alþingi
Fundarherbergi jafhaðarmanna
í Alþingishúsinu er lítið og þröngt.
Fullskipað, þegar þingmenn og
starfsmenn hafa fengið sér sæti.
Hér var guðfraeðideildin til húsa
þegar Háskóli íslands deildi hús-
„Verklok á skrifstofunni rétt fyrir klukkan sjö. Ekið heim í Breiðholtið með viðkomu til þess að kaupa mjólk. Hefð-
bundinn kvöldverður með eiginkonu og syninum, sem heima býr,“ segir Sighvatur Björgvinsson, nýr formaður
Alþýðuflokksins. Hér er hann með konu sinni þegar úrslitin í formannskjörinu voru kynnt. DV-mynd GVA
Dagur í lífi Sighvats Björgvinssonar, nýs formanns Alþýðuflokksins:
Krötum líka stýrt af
mildum móðurhöndum
næði með alþingismönnum í þing-
húsinu. Þess vegna hvílir guðs-
blessun yfir þessu herbergi. Mætti
þó stundum hafa verið örlítið
meiri. Og meiri guðs friður. Hér
hefur þingflokkur Alþýðuflokksins
verið til húsa alla mína þing-
mannsævi og svo miklu lengur.
Miklar minningar bundnar þessu
herbergi. Nú hafafjafnaðarmenn á
Alþingi sameinast þar. Nú ríkir
þar guðs friður. Nú er okkur líka
Finnur þú fimm breytingar? 385
Ef þér getið ábyrgst að það sé ekkert ósiðlegt við þetta vil ég gjarna
kaupa það.
Nafn: _
Heimili:
Vmningshafar fyrir þrjú hundruð áttugustu og
þriðju getraun reyndust vera:
Sigurbjörg Hallsdóttir Soffia G. Karlsdóttir
Smáratúni 18 Breiðvangi 53
230 Keflavik 220 Hafnarfirði
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur i ljós að á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, aö
verðmæti kr. 4.900, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúlá 8, Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond- bók-
in Gullauga eða Goldeneye eftir John
Gardner og hins vegar bók Luzanne
North, Fín og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú flmm breytingar? 385
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík