Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Síða 29
H>"V" LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 karkynning 29 Fjölvaútgáfan gefur út bókina Júrí úr Neðra eftir Eyvind Erlingsson og Júrí Resitov: Sannfærður um að Rússa- grýlan er ekki dauð - hef að minnsta kosti ekki verið viðstaddur útförina. segir sendiherra Rússa á íslandi „Þegar mér liður ekki vel heima þá fer ég út í bæ og þá kemur fólk og byrjar að tala við mig. íslendingar hafa skiptar skoðanir um Rússland og ég er sannfærður um að Rússa- grýlan er ekki dauð. Ég sagði einu sinni að mér hefði að minnsta kosti ekki verið boðið að vera við útfórina. En Islendingar hafa aldrei brugðist mér. Þeir hafa alltaf verið vin- gjarnlegir og þegar ég fer í sund kemúr fólk og spjallar. Þá lít ég á sjálfan mig sem hálfgerð- an íslending," segir Júrí Resitov, sendiherra Rússa á íslandi. Júrí kom ungur maður til starfa í sendiráði Sovétmanna á íslandi fyrir nokkrum áratug- um og hefur alla tíð síðan haft sterkar taugar til landsins. Hann fæddist í borginni Gorkí, sem nú heitir Nishni Novgorod eða Nýigarður Neðri, en á þessum árum var hún þekkt fyrir háa tiðni glæpa. Hann lék sér á götunni með mönnum sem síðar áttu eftir að verða „gángsterar" eða jafnvel „ekta morðingjar". Júri átti þó eftir að feta aðrar slóðir. Hann var í Milliríkjaviðskiptaháskóla Utanríkisráðu- neytisins, smitaðist þar af áhuga kennara síns á norrænum fræðum og lærði íslensku. \ Hvítt er hvítt og svart svart I bókinni lýsir Júrí lífi sínu og byrjar á mótmælum íslendinga við sendiráð Sovét- manna hér þegar Imra Nagí, forsætisráðherra Ungverja, var handtekinn og líflátinn í lok sjötta áratugarins. Hann segir einnig frá kvik- mynd sem hann sótti í Tjamarbíói fyrir hönd sendiráösins en myndin fjallaði um bylting- una í Ungverjalandi. Myndin hafði mikil áhrif á unga túlkinn enda lýsti hún allt öörum veruleika en gefmn var í sovéskum blöðum. Almenningi voru engin grið gefin. „I blöðunum var byltingunni lýst sem gagn- byltingu vondra manna. Kvikmyndin beindi hugsunarhætti mínum í ákveðna átt og ég varð fyrir miklum áhrifum. Ég sat í bíósaln- um og hugsaði ég með mér að ef hinir áhorf- endurnir vissu að þarna var útsendari rúss- nesku ríkisstjórnarinnar þá myndi kannski einhver hvetja til að drepa mig en það gerðist ekki,“ segi’r Júrí. Slær oft á látta strengi Júrí hefur verið sendiherra á íslandi und- anfarin ár og vakið athygli fyrir að vera óvenjulegur sendiherra, sérstaklega náttúru- lega fyrir íslenskukunnáttu sína, en hann hef- ur löngum þótt óvenjulegur embættismaður sem hefur tekið strangar reglur mátulega al- varlega. Hann slær oft á létta strengi en bend- ir samt á að grín geti verið „dauðans alvara." Hann virðist nokkuð gagnrýninn á stjómvöld í Sovétríkjunum sálugu og viðurkennir að starfið hafi stundum verið erfitt. Það gildi einnig um önnur ríki. Stjómvöld ljúgi þegar þeim hentar, sama hvar þau eru á hnettinum. „Sem embættismaður varð ég að skilja ákveðna hluti, til dæmis að það er erfitt að kalla hvítt hvítt og svart svart. Ég mátti ekki gleyma persónulegri ábyrgð minni og varð að nema staðar þegar stjómvöld í landi mínu reyndu að troða á mig einhverri vitleysu og lygum,“ segir Júrí. Eitt sinn átti hann í samningaviðræðum við Svía vegna tillögu um dauðarefsingar. Samkomulag náðist en á síðasta augna- bliki kom boð um að styðja tillöguna ekki. „Þá sagði ég: „þetta gengur ekki. Ég er persóna og maður, ekki bara full- trúi ríkisstjómarinnar,“ segir hann. Hyldýpið aðskildi Þegar Júrí var túlkur við sovéska sendiráðið hér fann hann til skyld- leika við mann, sem þá var blaða- maður á einu stærsta blaði landsins og er nú ritstjóri þess en aldrei varð af neinum kynnum þeirra i milli, kannski vegna þess hyldýpis sem áður aðskildi austur og vestur, fyrr en á ráðstefnu i Genf fyrir nokkrum áruin og síðan má segja að þeir hafi bundist vin- áttuböndum. „Þá allt í einu verður hann þess var að hann er ekki einn. Það skrjáfar i sandin- um og í vatninu birtist mynd ann- ars manns, - ein sog hans. -Sæll vert þú! Það er ritstjór- inn frá íslandi, mættur aftur í sömu mynd, með sama hætti og forðum. Einkenni- legt vægast sagt. Liggur við að það slái á hann her- fjötri, vott af löm- un í fæturna. Jakob er með honum. Þeir höfðu ákveðið að enda dvöl hans hér með prómenaði á vatnsbakkanum. Lestin fer eftir klukkutima. -Merkilegt að rekast saman ein- mitt hér, segir Júrí. -Ég veit ekki. Kannski sækj- umst við eftir sömu hlutum segir skáldið,“ segir meðal annars í bók- inni. i M m > . :* * þrátt fyrir allt, Á þessari ráðstefnu báðu íslendingar Júrí stundum um að leyfa sér að fylgjast með þeim nefndum sem hann sat í. Lenti óvart í Kaup- mannahöfn Júrí lét mannréttinda- mál mjög til sin taka, sér- staklega á tímum Gor- batjovs, og segir að það hafi þurft að vinna með lagni að góðum tillögum. Júrí var höfúndur löggjafar um ferðafrelsi á tím- um Gorbatjovs en með henni gjör- breyttust mögu- leikar manna til að flytja utan. Honum er ofar- lega í huga sönn skemmtisaga af öldruðum Akureyr- ingi sem ætlaði að fljúga milli landshluta en fór í vitlausa vél og lenti óvart í Kaup- mannahöfn. Til að bæta fyrir þau mistök var hann lóðsaður um alla borgina og flugfélagið greiddi fyrir hann ferðakostn- aðinn. Hefðu þessi mistök átt ser stað í Sovétríkjunum hefði mað- urinn líkast til orðið að sæta refs- ingu. Eyvindur Erlendsson leikstjóri skrifar bókina um Júrí ásamt Júri Resitov. Eyvindur segir að bókin sé blanda af skáldsögu og sann- leika. Þeir viðurkenni ekki fyrir rétti að þetta sé ævi- saga Júrís Resitovs. í bókinni sé aðeins búin til ný persóna, sem heiti sama nafni og sendiherrann og lent í sömu raun- unum og hann. -GHS Júrí Resitov, sendiherra Rússa á íslandi, er höfundur bókarinnar Júrí úr Neðra ásamt Eyvindi Erlendssyni leikstjóra. Bókin er blanda af skáldsögu og sannleika þar sem búin er til ný persóna sem heitir sama nafni og sendiherrann og lendir í sömu raunum og hann. DV-mynd GVA 59.900,.flgr. 46.900,-s,gr. 39.900,-s,gr. 39.900,-s,gr. 29.900,-s,gr. 41.900,-s,g,. Iberna ICM-31 Iberna ID-28 Iberna ID-24 Iberna IMP-245 H x B x D = 163 X 60 x 60 cm H x B x D = 143 x 60 x 60 cm H x B x D = 143 x 54 x 60 cm H x B x D = 143 x 54 x 60 cm Kælir ofan 221 Itr. Kælir neðan 213 Itr. Kælir neðan 181 Itr. Kælir204ltr. Frystir 65 Itr. Frystir 67 Itr. Frystir 44 Itr. Frystir 20 Itr. Rétt verð 63.900,- Rétt verð 50.950,- Rétt verð 43.980,- Rétt verð 41.960,- Iberna IMP-1 4.3 H x B x D = 85 x 54 x 60 cm Kælir 118 llr. Frystir 14 Itr. Réttverð 35.910,- Iberna IMP-30.0 H x B x D = 143 x 60 x 60 cm Kælir 302 Itr. Frystir enginn Rétt verð 46.900,- NÝTT FRÁ FÖNIX ítalskir ísskápar -ibeffío TAKIÐ EFTIR! Nú selur Fönix ítalska ísskápa af betri gerðinni á verði, sem gerist vart hagstæðara. ibemQ fyrsta flokks frá /?anix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.