Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Qupperneq 55

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1996, Qupperneq 55
ÍJV LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1996 íafmæli Til hamingju með afmælið 16. nóvember 90 ára _________________ Þorbjöm Guðbrandsson, Hrafnistu í Reykjavík. Ólöf Sveinhildur Helgadóttir, Kirkjuvegi 11, Keflavik. 85 ára Óskar Stefánsson, Sléttuvegi 11, Reykjavík. Bjarni Jónsson, Álfhólsvegi 133A, Kópavogi. 80 ára Jórunn Andrésdóttir, Hásteinsvegi 39, Stokkseyri. 75 ára Þorvaldur Á. Guðmundsson, Safamýri 42, Reykjavík. Sigurður Jónsson, Hlíðarvegi 26, Kópavogi. 70 ára Aðalheiður Guðmunds- dóttir, Hátúni 8, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í Félagsmið- stöð aldr- aðra, Hæðargarði 31, í dag kl. 16.00-19.00. Lilja Pétursdóttir, Höfðabraut 6, Akranesi. Carl Andreas Bergmann, Skriðustekk 6, Reykjavík. Hann er að heiman. 60 ára Jónas Jónasson, Dílahæð 9, Borgarnesi. Ingimundur Björnsson, Árbliki, Raufarhafnarhreppi. 50 ára Friðgerður Benedikts- dóttir, Akraseli 29, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum í félagsheim- ili Tannlæknafélags íslands, Síðumúla 35, Reykjavík, í dag milli kl. 17.00 og 20.00. Unnur Pálsdóttir matreiðslu- maður, Stífluseli 5, Reykjavík. Eiginmaður Unnar er Kristján Ámason verkamaður. Þau eru að heiman. Jóhanna Vilborg Jóhannsdóttir, Álftamýri 24, Reykjavík. Skúli Grétar Valtýsson, Fjóluhvammi 11, Hafnarfirði. 40 ára Ingólfur Vilhjálmur Gíslason, Trönuhjaila 15, Kópavogi. Inga Jóhanna Kristinsdóttir, Engihlíð 16A, Ólafsvík. Svava Margrét Bjarnadóttir, Hábergi 42, Reykjavik. Birgir Örn Guðjónsson, Úthlið 3, Reykjavík. Gísli Bjamason, Gaukshólum 2, Reykjavík. Ástríður Jóna Sveinsdóttir, Lækjargötu 34B, Hafnarfirði. Magnús H. Valdimarsson, Hátröð 5, Kópavogi. Aðalsteinn U. Haraldsson, Mýrum 13, Patreksflrði. Guðmundur Láms Magnússon, Smárabraut 17, Höfn í Hornafirði. Ólafur Árnason Ólafur Árnason, fyrrv. starfsmaður Almennra trygginga hf., Seljugerði 1, Reykjavik, verður níræð- ur á mánudaginn. Starfsferill Ólafur fæddist i Hlíð í Reykhólasveit og ólst upp í Reykhólasveitinni. Hann flutti til Reykjavik- ur 1925. í Reykjavík stundaði Ólafur ýmis störf, var þar í byggingarvinnu og stundaði síðan vörubíla- akstur þar til hann hðf störf hjá Al- mennum tryggingum 1946. Þar starfaði hann þar til fyrirtækið var sameinað Sjóvá og starfaði síðan áfram hjá nýja fyrir- tækinu, Sjóvá-Al- mennar, til ársloka 1989 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Fjölskylda Ólafur kvæntist 14.5. 1932 Kristínu Benja- mínsdóttur, f. 14.4. 1911, d. 29.1. 1971, hús- móður. Hún var dóttir Benjamíns Benjamíns- sonar járnsmiðs og Ragnheiðar Jónsdótt- ur húsmóður. Börn Ólafs og Kristínar: Sölveig Ólafsdóttir, f. 4.8. 1932, d. 15.3. 1957, var gift Þorsteini Þorsteinssyni og er dóttir þeirra Laufey Elsa Sólveig- ardóttir; Ragnheiður Benney Ólafs- dóttir, f. 30.1. 1942, kennari í Reykjavík, gift Hjörleifi Ólafssyni, deildarstjóra í þjónustudeild Vega- gerðar ríkisins, og eru synir þeirra Ólafur Kristinn Hjörleifsson og Jó- hann Óskar Hjörleifsson. Ólafur átti fjórtán systkini og eru tveir bræður hans á lifi. Þeir eru Karl Ámason, f. 20.8.1911, á Kambi í Reykhólasveit; Hákon Árnason, f. 11.1.1920, á Reykhólum. Foreldrar Ólafs voru Árni Ólafs- son, f. 3.10. 1855, d. 25.7. 1930, bóndi í Reykhólasveit, og k.h., Guðbjörg Loftsdóttir, f. 17.10. 1878, d. 16.12. 1960, húsmóðir. Ólafur dvelur á Heilsuhælinu í Hveragerði um þessar mundir. Ólafur Árnason. andlát Guðmundur Arnlaugsson Guðmundur Amlaugsson, fyrrv. rektor MH, Hagamel 28, Reykjavík, lést í Landspítalanum 9.11. sl. Útfór hans fór fram frá Dómkirkjunni í gær. Starfsferill Guðmundur fæddist í Reykjavík 1.9. 1913 og ólst þar upp í vestur- bænum. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1933, cand. mag.-prófl í stærðfræði, með eðlis-, efna- og stjömufræði sem aukagreinar, frá Kaupmannahafnarháskóla 1942 og prófi i kennslutækni 1942. Guðmundur kenndi við MA 1936-39 og 1945-46, við Sankt Knuds Gymnasium í Danmörku 1942^45, við MR 1945-65, við VÍ 1946-47, var stundakennari við HÍ 1947-62, dós- ent þar 1962-67, og stundakennari við KHÍ. Hann varð rektor MH við stofnun skólans 1965 og gegndi því starfi til 1980. Guðmundur sat í landsprófs- nefnd 1948-66, var námsstjóri í stærðfræði og eðlisfræði við menntamálaráðuneytið 1964-66, fulltrúi þess í norrænum nefndum um skólamál og ritari raunvísinda- deildar Vísindasjóðs í tuttugu og tvö ár. Hann var lengi landsliðs- maður í skák, Ólympíumótsfari 1939, íslandsmeistari 1949, og al- þjóðlegur skákdómari 1972, fyrstm- íslendinga. Hann samdi fjölda greina og bóka um skák og var með skákþætti í útvarpi og sjónvarpi. Þá þýddi hann og samdi fjölda kennslubóka, einkum i stærðfræði og eðlisfræði. Guðmundar var heiðursfélagi Skáksambands Bandaríkjanna frá 1972 og Skáksambands íslands frá Guðmundur Arnlaugsson. 1975, var sæmdur ridd- arakrossi fálkaorðunn- ar 1979 og var heiðurd- oktor við HÍ frá 1995. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 30.8. 1941 Halldóru Ólafsdóttur, f. 15.7. 1915, d. 12.10. 1978, hjúkrun- arkonu. Foreldrar henn- ar voru Ólafur Jónsson, læknir í Reykjavík, og k.h., Lára Lárusdóttir húsmóðir. Börn Guðmundar og Halldóru eru Ólafur, f. 15.3. 1943, stýrimaður, var kvæntur Nancy Knudsen Guð- mundsson en þau skildu og eiga þau tvær dætur en seinni kona Ólafs er Liz Guðmundsson; Am- laugur, f. 21.7. 1945, tæknifræðing- ur, kvæntur Önnu Kristjánsdóttur prófessor og eiga þau þrjú börn; Guðrún, f. 19.3. 1947, tónlistarkenn- ari, gift Björgvin Víglundssyni verkfræðingi og eiga þau tvær dæt- ur. Síðustu æviárin átti Guðmundur samvistir við Óldu Snæhólm og ein- læga vináttu. Systkini Guðmundar: Skúli, f. 30.9. 1916, d. 8.6. 1917; Sigríður, f. 18.1. 1918; Ólafur, f. 2.3. 1920, d. 28.11. 1984; María, f. 19.6. 1921; Helgi, f. 17.3.1923 Elías, f. 8.11.1925; Hanna, f. 29.7. 1928, d. 13.1. 1984. Foreldrar Guðmundar voru Arn- laugur Ólafsson, f. 8.8. 1888, d. 2.9. 1971, bóndi og síðan verkamaður í Reykjavík, og k.h., Guðrún Guð- mundsdóttir, f. 6.9.1884, d. 6.8.1943, húsmóðir. Ætt Arnlaugur var sonur Ól- afs, verkamanns í Hafh- arfirði, Jónssonar, b. í Húnakoti i Þykkvabæ, bróður Áma, föður Jóns prentara og langafa Hrafns Pálssonar, deild- arstjóra í heilbrigðis- ráðuneytinu. Jón var sonur Jóns, b. á Snotru í Þykkvabæ, Ólafssonar, b. á Seli í Holtum, Jóns- sonar. Móðir Ólafs var Guðrún Brandsdóttir, b. á Felli i Mýrdal, Bjarna- sonar, ættfóður Víkingslækjarætt- arinnar, Halldórssonar. Guðrún var dóttir Guðmundar, b. á Múlastöðum í Flókadal, Árna- sonar, b. á Hlíðarenda í Ölfusi, bróður Davíðs, afa Davíðs Stefáns- sonar frá Fagraskógi. Árni var son- ur Guðmundar, b. á Vindhæli, Ólafssonar, og Ingibjargar, systur Jóns þjóðsagnasafnara. Ingibjörg var dóttir Áma, prests á Hofi á Skagaströnd, Illugasonar. Móðir Árna var Sigríður Jónsdóttir Berg- manns læknis Steinssonar, biskups á Hólum, Jónssonar. Móðir Guð- rúnar var Sigríður, systir Ingi- bjargar, langömmu Flosa Ólafsson- ar leikara. Sigríður var dóttir Odds, b. á Brennistöðum i Flókadal, Bjarnasonar, b. á Vatnshorni í Skorradal, Hermannssonar, langafa Guðbjama, föður Sigmundar, fyrrv. háskólarektors. Móðir Sigríöar var Helga Böðvarsdóttir, b. í Skáney, Sigurðssonar og Ástríðar Jónsdótt- ur, ættföður Deildartunguættarinn- ar, Þorvaldssonar. 15% staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur og stighcekkandi e . ^ ö Smaauglísingar birtingarafsláttur 550 5000 Til hamingju með afmælið 17. nóvember 90 ára Hrólfur Jóhannesson, Freyjugötu 26, Sauðárkróki. 85 ára Sveinn Guðnason, Kirkjuhvoli, Hvolhreppi. 80 ára Joan Reid huglæknir frá Bretlandi verður áttræð þann 18.11. nk. Joan hefur komið reglu- lega til íslands vegna starfa sinna sl. aldarfjórðung. Sálarrannsóknarfélag íslands gengst fyrir afmælishófi í Akogessalnum, Sigtúni 3, Reykjavík, sunnudaginn 17.11. frá kl. 14.30-17.30. Þá sem langar að hitta hana í tilefni afmælisins eru boðnir velkomnir. Kaffiveitingar verða seldar á kr. 600. Steinunn Jana Guðjónsdóttir, Sævangi 17, Hafnarfirði. 75 ára Ágústa Eiríksdóttir, Maríubakka 4, Reykjavík. Guðbjörg Ámadóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. 70 ára Bára Kjartansdóttir, Hraunteigi 19, Reykjavík. 60 ára Sjöfn Helgadóttir, Túngötu 13, Bessastaðahreppi. Lilja Heiður Þórarinsdóttir, Álfaskeiði 94, Hafharfirði. Bragi Ólafsson, Klapparstíg 11, Reykjavík. Fríða Sigurðardóttir, Örk, Tálknafjarðarhreppi. 50 ára Guðrún Tómasdóttir, Sæbólsbaut 14, Kópavogi. Marsibil Ágústsdóttir, Stóruborg syðri, Þverárhreppi. Mark Markús Reedman, Kirkjugarðsstig 6, Reykjavík. Inga Þórunn Sæmundsdóttir, Lækjarsmára 82, Kópavogi. Davíð Axelsson, Stekkholti 34, Selfossi. Finnbogi G. Guðmundsson, Engjaseli 83, Reykjavík. 40 ára Elín Ingibjörg Daðadóttir, Reynigrund 1, Akranesi. Guðrún Anna Ingólfsdóttir, Logafold 128, Reykjavik. Vilhjálmur J. Guðmundsson, Jörundai-holti 178, Akranesi. Valmundur Pétur Ámason, Vanabyggð 8D, Akureyri. Ari PáU Ögmundsson, Stóru-Sandvík, Sandvíkurhreppi. Ólafía Kristný Ólafsdóttir, Laufengi 182, Reykjavik. Grímsöœ v/Bústaðaveg Skreytingar við öll tœkifœri. Frí heimsending Jyrir sendingar yfir 2.000 kr. Sími 588-1230
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.