Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1996 Neytendur___________________i>v Verökönnun Neytendasíöu: Jólasteikin -verömunur misjafn eftir tegundum Mestur reyndist verðmunurinn vera á reyktum svínabóg, eða 105%. Aftur á móti var lítill sem enginn verðmunur á hreindýrakjöti, eöa aðeins 3% og á hamflettum rjúpum, eða 6%. Öryggismál: Háværar vælur á markað Heildverslunin Ólafur Gísla- son & Co hefur hafið innflutning á handhægum vælum til nota í öryggisskyni. Hér er um að ræða lítil hylki sem gefa frá sér 130 desíbela hávaða og að sögn starfsmanna heildverslunarinn- ar er hljómurinn mjög pirrandi og erfiður og ætti ekki að fara fram hjá neinum. Vælumar koma í tveimur tegundum, sú ódýrari er útbúin lykkju sem t.d. má hengja á hurðarhúna þannig að tækið fer í gang sé tekið í húninn auk þess sem kippa má í sé um hættuástand að ræða. Slík væla kostar 714 kr. en sú dýrari er á 994 kr. en auk lykkjunnar er hún útbúin ljósi og hnappi sem þrýsta má á í hættu. Olís: Sjálfvirkar bensínstöðvar Olís opnaði í sl. viku þrjár nýj- ar sjálfvirkar bensínstöðvar undir nafninu ÓB-ódýrt bensín, sem selja munu ódýrt eldsneyti á ökutæki. Með þessu viU Olís skapa fleiri valkosti í eldsneytis- sölu og mæta óskum þeirra við- skiptavina sem vUja ódýrara eldsneyti í sjálfsafgreiðslu og minni þjónustu. Stöðvamar verða opnar aUan sólarhringinn. Þær verða mannlausar með yfir- byggðu skyggni og sjálfsala þar sem hægt er að nota seðla og kort. Stöðvarnar em við stór- markað Fjarðarkaupa í Hafn- arfirði, hjá Engjaveri við Star- engi í Grafarvogi og hjá Holta- nesti við Melabraut í Hafnar- firði. Jólaís frá Kjörís Jólanýjungin frá Kjörís í ár er átta manna vanUluísterta með marsipani og súkkulaðibitum. Nýjung frá Mjólkursamsöl- unni Þessa dagana er að koma á markað ný afurð frá Mjólkur- samsölunni. Hér er um að ræða hið vinsæla Ris a l’amande eða hrísgrjónaábæti með hind- berjasósu. Hrísgrjónaábætirinn er framleiddur hjá Mjólkurs- amsölunni í Búðardal og verður í sölu fram yfir jól meðan birgð- ir endast. Opnunarfilboð MM í tilefni af stofhun MM, Matar- kofa Meistarans, sem eru sér- verslanir með kjöt og grænmeti, verður boðið upp á sérstakt opn- unartilboð fram á sunnudag. Veittur verður 10-15% afsláttur af vinnsluvömm Meistarans, svo sem salötum, flestum áleggsteg- undum, kjötbúðingum og pyls- um. Þá verða kartöflur selda á 75 kr. kg. Einnig selja MM-verslan- irnar KEA-hangikjötið. Nú þegar styttist i jólin með degi hverjum eru margir farnir að huga að jólasteikinni enda látum við flest ýmislegt gott eftir okkur um hátíð- amar. Átta tegundir hátíöarmatar Neytendasiða DV fór á stúfana í gær og athugaði verðið á jólamatn- um í fimm verslunum á höfuðborg- arsvæðinu. Athugað var verð á átta kjötafurðum sem þykja líklegar til vinsælda um hátíðirnar en þær eru hangilæri með beini, úrbeinað hangilæri, úrbeinaður svínaham- borgarhryggur, reyktur svínabógur, hamflettar rjúpur, hreindýrakjöt, kalkúnn og roast beef. Verslanirnar sem voru heimsóttar eru Hagkaup í Skeifunni, 10-11 í Engihjalla, Fjarð- arkaup í Hafnarfirði, Bónus Holta- görðum og Nóatún vestur í bæ. Hér er engan veginn um að ræða tæm- andi lista, hvorki verslanir né vænt- anlegan hátíðarmat, heldur er hér aðeins um úrtak að ræða. Aöeins þaö ódýrasta Við könnunina var aðeins athug- að verð á ódýrustu tegund í hverj- um vöruflokki enda bjóða margar verslanir upp á sams konar kjöt- meti frá mörgum framleiðendum. Það vill oft skapa mikinn verðmun Nú fer í hönd sérstaklega orku- frekur tími enda lýsum við flest heimili okkar upp um hátíðarnar. Oftar en ekki lyftum við síðan brún- um yfir rafmagnsreikningnum þeg- ar hann skýst inn um lúguna en að sögn Stefáns Skúlasonar, rafvirkja og sölufulltrúa hjá Heimilistækjum, þarf ekki mikið til að lækka raf- á ákveðinni vörutegund innan sömu verslunar. Enn fremur skal skýrt tekið fram að hér er ekki um gæðakönnun að ræða, ekki er lagt mat á gæði kjötsins heldur aðeins verð þess. Margt kemur til í nokkrum tilfellum fékkst ekki viðkomandi tegund ijsumum versl- ananna. Þannig voru einungis til sölu óhamflettar rjúpur í 10-11, auk magnskostnaðinn verulega. Stefán segir að einfaldir hlutir eins og að muna að slökkva ljós í herbergi geti skipt miklu máli, það sé einfóld að- gerð sem auðvelt sé að venja sig á. Auk þess eru komnar orkuspar- andi perur á markað sem endast mun lengur og henta vel á mörgum stöðum í húsinu, eins og t.d. yfir þess sem ekki var boðið upp á hreindýrakjöt og roast beef. Sömu- leiðis fékkst ekki hreindýrakjöt í Fjarðarkaupum og Bónusi. í Bónusi var heldur ekki að finna roast beef, reyktan svínabóg, rjúpur eða úr- beinaðan svínahamborgarhrygg þó svo að þær upplýsingar hafi fengist að hann sé á leiðinni i Bónusversl- animar. Kalkúnn var uppseldur í Bónusi og ekki er gert ráð fyrir að meira verði á boðstólum af honum eldhúsborði. Slíkar perur eru vissu- lega dýrari en venjulegar en þó stofnkostnaðurinn sé hærri þá borg- ar það sig til lengdar sé litið á rekstrarkostnaðinn. Sem dæmi má nefna að venjuleg 40 W pera dugar í eitt ár í venjulegu eldhúsi en 9 W sparnaðarpera á að duga í 5 ,ár. Einnig segir Stefán að fólk hugsi oft í ár fyrir jól. Hjá 10-11 verslununum er í mörg- um tilfellum um að ræða afslátt á kassa sem ekki kemur fram í venju- legu kílóverði og í könnuninni var farið eftir uppgefnu verði og ekki gert ráð fyrir kassaafslætti. Hjá Fjarðarkaupum var úrbeinaður svínahamborgarhryggur á 1675 kr. kg en á allra næstu dögum er von á honum frá öðrum framleiðanda á 1395 kr. kg. Hangilærið með beini hjá Bónusi var á 50% afslætti þegar könnunin var gerð. Afsláttarverðið var hið uppgefna verð á pakkningu og helst það verð á súluritinu. Sömu sögu er að segja um úrbeinaða lær- ið, en það var á 30% afslætti. Misjafn verömunur Verðmunur á hangikjötslæri með beini reyndist vera 41%, á því úr- beinaða var munurinn 47%. Á úr- beinuðum svínahamborgarhrygg var verðmunurinn 71%, á reyktum svínabóg var munurinn 105% en verðmunur á hamflettum rjúpum var lítill eða aðeins 6%. Hreindýra- kjöt fékkst aðeins í tveimur búð- anna og var verðmunur lítill, eða aðeins 3%. Á kalkún var 24% verð- munur og á roast beef var hann 60%. -ggá ekki út í hvaða perur séu settar í útiljós. Oft eru notaðar 40 eða 60 W perur þegar 15 eða 25W perur duga vel eða eins og Stefán segir þá þarf ekki að lýsa miklu meira en til að við rötum inn. Hann bendir einnig á að mörg heimilistæki á borð við þvottavélar hafi orkusparandi stillingar sem auðvelt sé að ný!a sér. Auk þess fer töluverð orka í þurrkara en Stefán segir það algengt að fólk þurrki þvott of lengi þar sem flestar þvotta- vélar í dag þvoi á þúsund snúning- um sem geri það að verkum að þvotturinn sé orðinn hálfþurr þegar hann er kominn út úr vélinni. Hann bendir einnig á gamalt húsráð sem varðar frystikistur og skápa og dug- ar vel. Þegar lítið af vörum er í frystinum er ráðlegt að taka poka og fylla hann af vatni eða gömlum dag- blöðum og setja inn í frystinn. Pok- inn virkar sem einangrun og kulda- gjafi þannig að pressan gengur hæg- ar og eyðir minna. Að lokum nefndi Stefán meiri notkun hinna vinsælu halogenpera á heimilum en margir dimma aðeins ljósin í stað þess að slökkva á þeim. En þó herbergi myrkvist töluvert er ekki þar með sagt að orkueyðslan sé minni. ggá með beini hangilgötslæri svínahamborgar- svínabógur hiyggur !dv! Margir möguleikar bjóðast hvað jólasteikina í ár varðar. Neytendasíða DV tók saman átta tegundir kjötvara og athugaði verðið í fimm versiununum á höfuð- borgarsvæöinu. í mörgum tilfellum var viökomandi vara ekki til þó svo að viðkomandi verslanir hefðu oftar en ekki annars konar Ijúfmeti á boðstólum. Orkusparandi aðgerðir auðveldar: Erum föst í viðjum vanans Mörg lýsum við heimili okkar fallega um hátíðirnar og eru jólin orkufrekur tími. Stefán Skúiason, rafvirki og sölufull- trúi hjá Heimilistækjum, er meö nokkur góð ráð fyrir þá sem vilja lækka rafmagnsreikningana. DV-mynd BG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.