Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 72
LTD
KINií
Nokkrir menn í gæsluvarðhald vegna stóra fíkniefnamálsins:
Sterk markaðssetning
er mesta hættan
- segir Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn um fíkniefnaheiminn
„Hollendingarnir tveir hafa ver-
ið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til
9. janúar og siðan hefur verið farið
fram á gæsluvarðhald yfir einum
islendinganna. Hugsanlega verður
gerð krafa um varðhald yfir nokkr-
um öðrum. Allir íslendingarnir
sem þama eiga hlut að máli hafa
um árabil verið grunaðir um að
dreifa flkniefnum,“ sagði Björn
Halldórsson, hjá flkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík, í gær vegna
hins umfangsmikla fikniefnamáls
sem upp komst i vikunni og frá var
sagt í DV í gær.
Lagt var hald á 20,5 kíló af hassi,
tæplega 500 alsælutöflur og 270
grömm af kókaíni. Þetta er mesta
magn fíkniefna sem lögregla hefur
lagt hald á í einu lagi á íslandi.
Guðmundur Guðjónsson yflrlög-
regluþjónn segist ekki geta fullyrt
hvort þetta mál og nýleg stór fíkni-
efnamál bendi til stækkunar mark-
aðarins. „Auðvitað hefur maður
áhyggjur af því að mikið efni sé í
umferð þegar svona mikið ftnnst.
Það gefur augaleið og þá verður
maður að horfa á verðið og mark-
aðinn,“ sagði Guðmundur.
Hann segist telja að sterk mark-
aðssetning fikniefnasala sé mesta
hættan í dag gagnvart aukinni
neyslu hér á landi. Salarnir séu
t.a.m. famir að snúa sér til hópa
sem áður voru í raun fráhverfir
fikniefnum. Þeir bjóði til dæmis
litlar sakleysislegar pillur, alsælu-
töflur, sem neytt er með inntöku í
stað sprautu, inntöku í nef eða með
því að reykja eins og gert er með
önnur efni. „Þetta er lítil sakleysis-
leg pilla sem allir segja að sé skað-
laus,“ sagði Guðmundur.
Samkvæmt dómum á yfirstand-
andi ári telja dómstólar að alsæla
sé eitt það hættulegasta ef ekki
hættulegasta fikniefnið sem komið
hefur á markað hér á landi enda
hafa refsingar verið mjög strangar
miðað við fangelsisdóma þar sem
dæmt er fyrir brot með önnur
fíkniefni.
Guðmundur sagði að lögreglan
hefði á þessu ári framkvæmt stig-
magnandi aðgerðir gegn fikniefna-
bölinu eins og að leysa upp
„fikniefhagreni". „Við höfum verið
með mismunandi áherslur og það
veit enginn hvar við munum bera
niður næst. Við höfum einbeitt
okkur að því til að ná utan um
ákveðinn vanda,“ sagði Guðmund-
ur. -Ótt/sv
Veörið á morgun:
Úrkomulaust að mestu
Á morgun verður norðaustanátt, sums staðar allhvöss, éljagangur
norðaustan- og austanlands en að mestu úrkomulaust í öðrum landshlut-
um. Sunnan- og suðvestan til léttir til. Frost verður á bilinu 4 til 9 stig.
Veðrið á mánudag:
Frost fer harönandi
Á mánudag er búist við minnkandi norðaustanátt. Enn verða þó dálit-
il él norðaustan og austan til á landinu en bjartviðri annars staðar. Held-
ur fer frostið harðnandi.
Veðriö í dag er á bls.73
Tf -Þýskt eöalmerki /
Opel Combo
Næsta sending væntanleg
í lok desember
Verð kr. 1.075.000.-
án Vsk.
Bílheimar ehf.
■©• iti n ftjh
. fj K nMp
Sœvarhöfba 2a Sími:S25 9000
Mál Kínverjanna:
Vilja
komast
heim
„Þau segjast vera frá meginlandi
Kína og þau hafi keypt þessi fölsuðu
vegabréf þar til að komast til
Bandaríkjanna. Nú er þetta ævin-
týri þeirra úti og þau bera sig mjög
illa og vilja bara komast heim,“ seg-
ir Jóhann Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Útlendingaeftirlits-
ins, vegna fjögurra kínverskra ung-
menna sem voru stöðvuð í Leifsstöð
á þriðjudag með fölsuð vegabréf.
„Þau virðast vera búin að tapa
stórfé á þessu ferðalagi. Við eigum
eftir að fá staðfest hver þau eru og
hvort þau hafi sagt rétt frá. Við
munum reyna að hjálpa þeim að
verða sér úti um skilríki svo þau
komist heim,“ segir Jóhann.
Aðspurður segir Jóhann að is-
lenska ríkið beri kostnað af ferð
ungmennanna heim. -RR
MEÓSAMAÁFRAfvfrX
HALDI HLJÓTA FANG- ]
ELSIN AÐ FYLLAST AF I
^ HOLLENDINGUM! J
-y
LAUGARDAGUR
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli og fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík lögðu i vikunni hald á gríðarlegt magn af
fíkniefnum. Björn Halldórsson hjá fíkniefnadeildinni skoðar hér fenginn. DV-mynd BG
14. DESEMBER 1996
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
Manni bjargað:
Var hress
en mjög
sjokkeraður
„Þetta gekk afskaplega vel eftir að
ég sá hann og það sem hjálpaði til
var að dönsk herþota kom þama að
og staðsetti bátinn. Leitin var stutt
og ég var ekki nema um tvo tíma að
ftnna hann. Maðurinn var hress
þegar ég dró hann um borð en hann
var mjög sjokkeraður eins og gefur
að skilja eftir svona volk,“ segir
Ólafur Hallgrimsson, sjómaður á
mótorbátnum Eydísi, en hann bjarg-
aði manni úr björgunarbáti rétt fyr-
ir klukkan eitt í gær eftir að 5,9
tonna bátur, Rósa Björg NK-114,
hafði sokkið undan honum.
Atvikið átti sér stað 3-4 mílur frá
landi, um 25 mílur frá Borgarfirði
eystri, og hafði maðurinn verið í
hjörgunarbátnum i 1 /2 til 2 tíma þeg-
ar hann fannst. Að sögn lögreglunn-
ar á Egilsstöðum, sem tók skýrslu af
manninum í gær, haföi hann enga
hugmynd hvaö gerst hafði. Bátur-
inn hefði skyndilega verið orðinn
eitthvað skrýtinn og sokkið síðan á
örskömmum tíma.
-sv
Vertu uiðhúin(n) vinningi
Sunnudagur
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555