Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996
Hl hamingju
með afmælið
15. desember
90 ára
Fríða Jóhannsdóttir,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
80 ára
Aðalbjörg Jónsdóttir,
Dalbraut 20, Reykjavík.
Páll G. Halldórsson,
Háaleitisbraut 151, Reykja-
vík.
75 ára
Dóróthea Friðriksdóttir,
Sóltúni 6, Keflavík.
70 ára
Bjarni Jónsson,
Markholti
20, Mosfells-
bæ.
Hann mun á
afmælisdag-
inn taka á
móti gestum
í safnaðar-
heimili
Lágafellssóknar, Þverholti 3,
Mosfellsbæ, milli kl. 17.00 og
19.00.
Gunnhildur Friðriksdóttir,
Kirkjulundi 8, Garðabæ.
50 ára
Bjamveig Pétursdóttir,
Norðurvangi 25, Hafnarfirði.
Hún er að heiman.
Sigurjón Guðjónsson,
Fögrubrekku, Vopnafirði.
Þórdís Njálsdóttir,
Heiðarskóla, Leirár- og
Melahreppi.
Guðríður Þorsteinsdóttir,
Langholtsvegi 147, Reykja-
1 vík.
40 ára
Guðný Klara Sigurðardótt-
ur,
Garðarsbraut 49, Húsavík.
Sigurbjörg A. Guttorms-
dóttir,
Hvassaleiti 155, Reykjavík.
Guðrún Ágústsdóttir,
Starengi 3, Selfossi.
Jón Kristinn Guðmunds-
son,
Lambhaga 42, Selfossi.
Ásta Jóhannsdóttir,
Foldahrauni 37D, Vest-
mannaeyjum.
ÍÉJf
staögreiöslu-
og greiöslukorta-
afsláttur og
stighœkkandi
birtingarafsláttur
o\\t milli hirr)inx
Smáauglýsingar
550 5000
fmæli
71
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir,
kennslustjóri í námsráðgjöf við fé-
lagsvísindadeild HÍ, Eskihlíð 10,
Reykjavík, er fertug í dag.
Starfsferill
Guðbjörg fæddist í Hafnarfirði en
ólst upp í Reykjavík. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MT 1976, diplöme
d’études frangaises frá Háskólanum
í Toulouse 1979, BA-prófi í uppeldis-
fræði og heimspeki við HÍ 1982,
prófi í uppeldis- og kennslufræði við
HÍ 1983, frönsku embættisprófi,
CAFCO, í námsráðgjöf frá háskólan-
um í Lyon 1985, meistcU'aprófi í upp-
eldis- og menntunarfræðum frá Sor-
bonne-háskólanum í París 1987 og
hefur samhliða öðrum störfum frá
1994 stundað doktorsnám á sviði fé-
lagsfræðimenntunar og starfs við
háskólann í Hertfordshire í Eng-
landi.
Guðbjörg stundaði blaðamennsku
á Tímanum og Degi 1977-79 og var
leiðsögumaður og starfaði við fé-
lagsmiðstöðina Ársel, var námsráð-
gjafi og stundakennari við KHÍ og
stundakennari við HÍ 1987-91 og
kennslustjóri náms í námsráðgjöf
við Félagsvísindadeild HÍ 1991-96.
Guðbjörg var formaður Félags
námsráðgjafa 1987-89.
Fjölskylda
Guðbjörg giftist 1.10.
1982 Torfa H. Tulinius, f.
11.4.1958, dósent í frönsk-
um bókmenntum við HÍ.
Hann er sonur Hrafns
Tulinius, prófessors í
Reykjavík, og Helgu
Brynjólfsdóttur píanó-
kennara.
Börn Guðbjargar og
Torfa eru Kári, f. 26.2. 1981, grunn-
skólanemi; Sigríður, f.13.3. 1986,
grunnskólanemi.
Systkini Guðbjargar eru Sólveig,
f. 10.3. 1947, d. 23.7. 1995; Guðrún, f.
31.5. 1949, hjúkrunarfræðingur;
Árni, f. 4.11. 1952, lögfræðingur; Ar-
inbjörn, f. 14.2. 1963, arkitekt; Þór-
hallur, f. 14.2.1963, markaðsfræðing-
ur.
Foreldrar Guðbjargar eru Vil-
hjálmur Árnason, f. 15.9. 1917, lög-
fræðingur í Reykjavík, og Sigríður
Ingimarsdóttir, f. 1.10.1923, húsmóð-
ir og fyrrv. ritstjóri.
Ætt
Meðals systkina Vilhjálms er
Tómas seðlabankastjóri.
Vilhjálmur er sonur Árna,
skipstjóra á Hánefsstöð-
um, bróður Hjálmars,
fyrrv. ráðuneytisstjóra, og
Hermanns, afa Lilju Þóris-
dóttur leikkonu, og bróð-
ur Sigríðar, móður Vil-
hjálms Einarssonar skóla-
meistara, fóður Einars
spjótkastara. Árni var
sonur Vilhjálms, útvegsb.
á Hánefsstöðum, Árnason-
ar, b. á Hofi í Mjóafirði,
Vilhjálmssonar. Móðir Árna á Há-
nefsstöðum var Björg, systir Stef-
aníu, móður Vifhjálms Hjálmarsson-
ar, fyrrv. ráðherra. Björg var dóttir
Sigurðar, b. á Hánefsstöðum, af
Skíða-Gunnarsætt, bróður Gunnars,
afa Gunnars Gunnarssonar skálds.
Móðir Sigurðar var Þorbjörg Þórðar-
dóttir, af Kjamaætt.
Móðir Vilhjálms var Guðrún, dótt-
ir Þorvarðar, útvegsb. í Keflavík,
Þorvarðarsonar, beykis í Keflavík,
Helgasonar. Móðir Þorvarðar Helga-
sonar var Guðrún Finnbogadóttir,
systir Jakobs, langafa Vigdísar for-
seta. Móðir Guðrúnar Þorvarðardótt-
ur var Margrét Arinbjarnardóttir,
útvegsb. í Tjarnarkoti i Innri- Njarð-
vík, bróður Gunnars, fóður Ólafs rit-
höfundar og afa Gunnars Bjömsson-
ar prests. Arinbjöm var sonur Ólafs,
verslunarstjóra í Innri- Njarðvík, Ás-
bjarnarsonar, b. í Njarðvík, Svein-
bjarnarsonar, bróður Egils, fóður
Sveinbjarnar rektors, fóður Bene-
dikts Gröndals.
Sigríður er systir Ásgerðar, fram-
kvæmdastjóra Öryrkjabandalagsins.
Sigríður er dóttir Ingimars Hall-
gríms skólastjóra, Jóhannessonar,
smiðs á Bessastöðum í Dýrafirði,
Guðmundssonar, b. í Tungu í Val-
þjófsdal, Hallgrímssonar. Móðir Ingi-
mars var Sólveig Þórðardóttir, b. á
Sjöundaá, Jónssonar.
Móðir Sigríðar var Sólveig Eugen-
ia, systir Þorleifs alþm., fóður Kol-
beins kirkjusagnfræðings, og systir
Sylvíu, ömmu Ólafs Amarsonar yfir-
læknis. Sólveig var dóttir Guðmund-
ar, kaupmanns á Háeyri á Stokks-
eyri, ísleifssonar, b. á Suður-Götum,
Guðmundssonar. Móðir ísleifs var
Sigríður ísleifsdóttir, af Selkotsætt.
Móðir Guðmundar var Ragnhildur,
systir Eiríks, langafa Runólfs, föður
Sveins landgræðslustjóra. Móðir Sól-
veigar var Sigríður Þorleifsdóttir
ríka, dbrm. á Háeyri, Kolbeinssonar,
bróður Hafliða, langafa Friðriks, foö-
ur Guðjóns sagnfræðings.
Guðbjörg er að heiman.
Guðbjörg Vilhjálms-
dóttir.
Þorsteinn Ingi Kragh
Þorsteinn Ingi Kragh, stöðvar-
stjóri og vélfræðingur, Sólvangi við
Rafstöð við Elliðaár í Reykjavík,
verður sextugm' á morgun.
Starfsferill
Þorsteinn fæddist í Reykjavík en
ólst upp við Sogstöðvar Landsvirkj-
unar í Grímsnesi og í Reykjavík.
Hann útskrifaðist frá Vélskóla ís-
lands 1961.
Á námsárunum starfaði Þor-
steinn í Hvalstöðinni í Hvalfirði og
hélt þar síðan áfram störfum til
1963. Þá vann Þorsteinn hjá Gunn-
ari Ásgeirssyni hf., í Álverinu í
Straumsvík og hjá Olíufélaginu
Skeljungi hf. Þá var hann með eigin
rekstur um skeið.
Þorsteinn hóf störf hjá Eimskipa-
félagi íslands 1986 og var í sigling-
um til 1991. Þá hóf hann störf hjá
Rafmagnsveitu Reykjavikur við
vatnsaflsstöðina í Elliðaárdal en
hann hefur verið stöðvarstjóri þar
frá 1994.
Á námsárunum var Þorsteinn
virkur í ýmsum félögum og nefnd-
um nemenda og stundaði íþróttir,
m.a. sund. Þorsteinn syngur með
Karlakór Reykjavikur.
Fjölskylda
Þorsteinn kvæntist 1976 Ellen
Ingvadóttur, f. 13.1. 1953, löggiltum
dómtúlk og skjalaþýðanda. Hún er
dóttir Ingva Þorsteinssonar nátt-
úrufræðings og Lívar Þorsteinsdótt-
ur sjúkraliða.
Börn Þorsteins frá fyrra hjóna-
bandi eru Guðríður Þorsteinsdóttir,
f.19.8. 1964, forskólakennari í Nor-
egi; Björgvin Ingi Þorsteinsson, f.
15.12.1968, hótelrekstrarstjóri í Nor-
egi; Hrafn Þorsteinsson, f. 21.11.
1969, rekstrarfræðingur í Noregi.
Systir Þorsteins var Lína Kragh,
tannsmiður og verslunarmaður, en
hún lést 1992.
Foreldrar Þorsteins: Sveinn Guð-
mundur Áki Kragh, f. 11.9. 1910, d.
1996, vélfræðingur og fyrrum stöðv-
arstjóri, og Ingibjörg Sigríður Þor-
steinsdóttir Kragh, f. 1913, húsmóð-
ir.
Ætt
Sveinn var sonur Hans Madsen
Kragh símvirkja og Kristólínu Guð-
mundsdóttur Kragh, fyrsta hár-
greiðslu-
meistarans
hér á landi,
dóttur Guð-
mundar
Oddssonar Þorsteinn Ingi
verkamanns Kragh.
og Elínar
Ámadóttur.
Ingibjörg Sigríður er dóttir Þor-
steins í Botníu, Sigmundssonar, er
var elsti starfsmaður Eimskipafé-
lagsins er hann lést, og Ingibjargar
Ólafsdóttur.
Þorsteinn og Ellen taka á móti
gestum í félagsheimili starfsmanna
Rafmagnsveitu Reykjavíkur í El-
liðaárdéd í dag, laugardaginn 14.12.,
milli kl. 17.00 og 19.30.
HUGMYNDIR
Forvamarsjóður auglýsir eftir hugmyndum um verkefni sem hafa það að
markmiði að draga markvisst úr áfengis- og vímuefnaneyslu og vandamálum
tengdum slíkri neyslu.
Sérstaklega skal bent á eftirtalin verkefni:
meðferðarúrræði og stuðningur við áhættuhópa,
rannsóknir, úrvinnsla og kynning,
útgáfa, fræðsla og annað áróðursstarf,
aðgerðir til að vekja almenning til umhugsunar,
samkomuhald og aðrir viðburðir.
Óskaö er eftir aö áhugasamir gefi almenna lýsingu á verkefninu og þeim
hugmyndum sem lagðar eru til grundvallar, þeim markhópum sem verkefninu er
ætlaö aö ná til, markmiöi þess og meö hvaöa hætti unnt veröi aö mæla árangur
af verkefninu.
Bent skal á að verkefni sem stuöla aö framgangi nýsamþykktrar stefnu
ríkisstjórnarinnar í áfengis- og fíkniefnamálum njóta forgangs og einnig að
samkvæmt reglugerð um forvarnarsjóð skal sjóöurinn sérstaklega leggja
áherslu á að styrkja verkefni sem snúa að ungmennum og áfengis- og
vímuefnavörnum.
Gert er ráð fyrir aö úr hópi hugmynda verði nokkrar valdar og óskað eftir því að
höfundar útfæri þær, eftir atvikum í samráði og samvinnu við aðra aðila.
Sjóöstjórn áskilur sér rétt til að veija hvaöa hugmynd sem er eða hafna öllum og
skilyrða hugsanlegan stuðning sjóösins við framkvæmd hugmyndanna.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 1997 og skal skriflegum umsóknum skilað,
merktum:
Forvarnarsjóður,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Laugavegi 116,
150 Reykjavík.
Vakin skal athygli á því að sjóðstjórn stefnir að því aö ein úthlutun fari fram á
árinu 1997 og er stefnt að því að auglýsa eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
eigi síöar en í febrúar nk. Þeir sem eiga samþykktar verkefnahugmyndir munu
njóta forgangs við afgreiðslu styrktarumsókna.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráöuneytið
12. desember 1996.
Vmningshafar í
jólakortasamkeppni
DV 1996
DV óskar vinningshöfum i jólakortnsamkeppni DV 1996 til hamingju.
VINNINGSHAFAR ERU
Fyrstu verðlaun:
BECO
14" sjónvarp í unglingaherbergið með fjarstýringu og 50 stöðva minni.
Raanheiður Þórdís Jónsdóttir
Bergstaðarstræti 11 A,
101 Reykjavik
Önnur verðlaun:
SHARP
Útvarpstæki með kasetfu
Sóley K. Harðardóttir
Fornaströnd 10
170 Seltjarnarnes
Þriðju verðlaun:
(^PIONEER
Pioneer heyrnatól, mjög vönduð.
Stella Björg Bjöi _
Laugarbraut 9
300 Akranes
DV þakkar öllum sem sendu inn myndir kærlega fyrir fróbæra þáttöku.