Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 36
36 Qiklgarviðtalið LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996 DV LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996 helgarviðtalið og viö höfðum sömu reglur á okkar nýja heimili. Mér gekk vel, naut lífsins og eignað- ist fulit af vinum. Menn fóru líka að treysta mér, ég leysti af um tíma sem forstöðumaður áfangahússins á Akureyri og allt virtist í lagi. En ég datt aftur í það, gleymdi mér við að hjálpa öðrum og fór fram af hengifluginu sjáifúr. Þegar þar var komið var ég búinn að vera edrú í 3 ár. Vinir mínir voru hins vegar fljótir að kippa í taumana og innan sólar- hrings var ég kominn inn á Vog, eina ferðina enn. Við tók slæmur tími, ég stoppaði stutt á Vogi en kom þangað nokkrum sinnum. Á síð- asta ári náði ég 7 mánaða edrútíma en sl. vor fór ég að drekka aftur. Sú drykkja stóð yfir fram í nóvember þegar ég fór á Vog og svo beint hingað á áfangaheimilið á Akureyri að nýju.“ Hugsa til æskujólanna „Ég ætla bara rétt að vona að nú sé ég kom- inn á endastöðina, að ég geti byggt mig upp og lifað það upp á nýtt hvemig er að vera edrú og kynnast sjáifum mér. Núna er ég auðvitað farinn að hlakka til jólanna eins og aðrir en þau ætla ég að eiga hér á áfangaheimilinu. Auðvitað fylgir hraði og spenna desember- mánuði en ég geri mikið að því að hugsa til baka, til æskujólanna og hvað þau voru góð. Tilhlökkunin er enn fyrir hendi, nú snýst hún þó ekki fyrst um pakka, frekar um góðan mat og að eiga góöar stundir með góðum félögum. Núna ætla ég i kirkju á jólunum, nokkuð sem ég hef ekki gert áður. Um áramótin held ég þeim sið sem ég hef haft undanfarin ár að fara upp í Hlíðarfjall þegar nýtt ár gengur í garð og sjá hvemig Akureyringar kveðja gamla árið og heilsa því nýja. í dag er lífið gott. Ég er að byggja mig upp og sinna sjáifúm mér og hér á Akureyri ætla ég mér að vera i framtíðinni. Það á betur við mig en að vera í hasamum i Reykjavík,“ seg- ir Einar. -gk DVAkureyri:___________________________ „Desembermánuðurinn, og það að vita af jólunum á næsta leiti, leggst alltaf vel i mig. Þetta er mánuður tilfinninganna og oft verð- ur manni hugsað til baka, til æskuáranna og hvað það var gaman á jólunum þegar maður var ungur og áhyggjulaus. Síðan þá hef ég haldið jólin á ýmsan hátt við margvíslegar kringumstæður. Ég hef drukkið á götunni á aðfangadagskvöld og sofið í stigagöngum, i steininum eða í einhverjum kompum. Ég hef líka átt jól á meðferðarstofnunum og á áfanga- heimilum. En það er sama á hverju gengur, alltaf standa æskujólin upp úr“. Þetta segir Einar Láms Pétursson, 32 ára Reykvíkingur sem hefur lifað eitt og annað, bæði súrt og sætt, þótt hann sé ekki eldri en raun ber vitni. Einar var á sínum tíma þekkt- ur sem „kardókóngurinn" á götum Reykjavík- ur, en það viðurnefni fékk hann vegna mikill- ar neyslu sinnar á kardimommudropum. Hann er alkóhólisti sem hefur lifað meira og minna í óreglu síðan hann var 15 ára gamall og þótt hann hafi átt sín góðu tímabil á þess- um árum þá hefur hann einnig farið alla leið á botninn. Hann hefur lifað götulífi í höfuð- borginni, verið vistmaður á Gunnarsholti, farið í fleiri afvatnanir og meðferðir en tölu verður komið á, og oftar en einu sinni verið nær dauða en lífi vegna ofdrykkju áfengis eða neyslu á öðram efhum. Minningar um mikla hátíð Þessa dagana dvelur Einar hins vegar á Fjólunni, sem er áfangaheimili SÁÁ fyrir alkóhólista á Akureyri, og unir hag sínum vel. Hann segist hlakka til jólanna og þess friðar sem þeim fylgir, en óneitanlega bregð- ur manni við að heyra Einar lýsa þeim jólum þegar honum hefur liðið hvað verst og hann verið hvað dýpst í sinni óreglu. „Elstu jólaminningamar mínar eru minn- ingar um mikla hátíð. Ég ólst upp á fjöl- skylduheimili sem svo er kallað, en ég var strax eftir fæöingu tekinn frá foreldrum mín- um og sendur á vöggustofu og síðan á þetta heimili þar sem ég var einn af fjórtán krökk- um. Þama ólst ég upp, hjá konu sem ég lít í rauninni á sem mína móður þótt ég þekki mina raunverulegu móður og föður minn einnig. Á heimilinu þar sem ég ólst upp vom ákveðnir siðir í heiðri hafðir um jólin eins og til dæmis við að skreyta húsið og jólatréð á Þorláksmessu en auðvitað var það eftirvænt- ingin eftir pökkunum sem var manni efst í huga“ segir Einar. Á verbúðaflakk Hann segist hafa verið hjá þessari konu til 15 ára aldurs, en var reyndar i sveit á sumr- in. „Það var einmitt í sveitinni sem ég byrjaði að drekka og drykkjan ágerðist strax frá byrj- un. Þegar ég kom til Reykjavíkur var ómögu- legt að fela þetta á heimilinu þar sem engin drykkja fór fram, og ég fór því þaðan. Við tók flakk á milii verbúða út um allt land, ég þótt- ist vera að vinna en auðvitað var ekkert ann- að á ferðinni en nær stanslaus drykkja og alit snerist um brennnivín og fyllirí. Ég var ýmist rekinn úr vinnu eða ég lét mig hverfa áður en til þess kom. Stöku sinnum þvældist ég til Reykjavíkur og heimsótti meðal annars for- eldra mína. Árið 1981 gafst ég upp á þessu flakki og flutti aftur til fósturmóður minnar. Þá fór ég að vinna i „öskunni" hjá bænum og við tók regluleg helgardrykkja. Hún ágerðist svo og þar kom 1983 að ég fór i mína fyrstu meöferð, um niður Laugaveginn, á gangstéttunum beggja vegna götunnar og betluðum peninga af fólki sem við mættum og hættum ekki fyrr en komið var nóg fyrir spritti eða áfengi. Auðvitað var kvartað undan okkur, og oft- ar en einu sinni hirti lögreglan okkur. Stund- um vorum við keyðir út í Öskjuhlíð og sagt að halda okkur frá miðbænum. Oft svaf ég í Öskjuhlíðinni, og einnig á salernunum í gamta kirkjugarðinum í Fossvogi en þar var heitt og notalegt að vera“. Einar segir að á árunum 1983-1987 hafi hann ótal sinnum farið i afvatnanir og áfeng- ismeðferðir, á Vog, Vífilsstaði, Hlaðgerðarkot og á fleiri staði. „Hefði ég ekki komist í þess- ar afvatnanir og meðferðir hefði ég drepið mig meö drykkjunni, en ég hafði líka vilja til að hætta að drekka. En því miður dugði sá vilji stutt, ég gekk oft út þegar mér var farið að líða betur og skýjaborgimar hrundu". Jól með sprittbrúsanum „Þegar ég hugsa um jólin man ég eftir mér ýmsu ástandi við ýmsar kringumstæður. Ég man eftir aðfangadagskvöldi þegar ég var á rölti á Laugaveginum með rauðsprittbrúsa sem var minn eini félagi það kvöldið. Mér var mjög kalt og ég var að leita mér að hlýju. Lengi vel vom allar hurðir sem ég tók í læst- ar, en loksins komst ég inn á einum stað, inn í stigagang þar sem ég settist. Þarna sat ég svo með sprittbrúsann og hugsaði um æsku- jólin sem vom svo góð og um þá stöðu sem ég var nú kominn í, húsnæðislaus óreglumaður, matarlaus á jólunum og þegar jólanóttin gekk í garð leitaði ég eftir gistingu hjá lögreglunni. Ég hef líka upplifað aðfangadagskvöld í rusla- kompum, á meðferðarstofnunum og á áfanga- heimilum og liðið misvel". 23ja ára vistmaður á Gunnarsholti Eftir ótal meðferðir og afvatnanir kom að því að Einari var gefmn kostur á að gerast vistmaður á Gunnarsholti, en sá staöur er í hugum margra endastöð alkahólistans þótt á því séu auðvitað undantekningar. Þetta var matsalnum í Fjólunni. Þar ætlar Einar aö eyöa jólunum í hópi góöra félaga. DV-mynd, gk. árið 1987 þegar Einar var aðeins 23 ára. „Þama er ekkert um að vera, engin með- ferðardagskrá, en menn áttu kost á vinnu. Ég vann við að steypa hellur og í 2-3 daga í mán- uði fékk ég frí. Þá var haldið til borgarinnar og drakkið sleitulaust þangað til lögreglan kippti manni upp og ók manni „heim“ aftur. Ég var alveg sáttur við þetta líf. Því fylgdu engar áhyggjur, það var eldað ofan í mann og þvegið af manni og ég hafði mitt eigið her- bergi með sjónvarpi, myndbandstæki og fleiri þægindum. Mér fannst þetta bara gott líf, ör- uggt húsnæði og fæði og hægt að detta í það reglulega". Dvöl Einars í Gunnarsholti varaði í tæp- lega 3 ár en þá kom áfengisráðgjafi þangað og lagði hart að honum að reyna að koma lífi sínu í eðlilegt horf. „Ég lét til leiðast að fara í eina meðferðina enn og fór i svokallað „Vík- ingaprógramm" sem er fyrir menn sem em að koma í þriðja skipti í meðferð hjá SÁÁ eða hafa komið oftar“. Hjartað stöðvaðist „Þótt ég hafi ekki verið edrú lengi eftir þessa meðferö þá geröist eitthvað þar sem breytti mér, mig langaði allt í einu til að lifa lífinu án áfengis. En samt tók gamla lífemið við aftur, endalausir ferðir inn á meðferöar- stofhanir milli þess sem ég var á götunni. Ég kom einnig nokkmm sinnum inn á sjúkra- hús, t.d. með brennivínskrampa eða nær dauða en lífi af pilluáti. Einu sinni komst ég yfir hjartatöflur sem ég át eins og mat og af- leiðingin varð hjartastopp. Ég var bara svo heppinn að vera í lögreglubíl þegar það gerð- ist þannig að ég fékk hjálp strax. Annars not- aði ég öll vímuefhi sem ég komst yfir, áfengi, spritt, pillur, hass og amfetamín sem ég sprautaði mig með“. Segja má að í einni afvötnunarferðinni á Vog, árið 1992, hafi orðið kaflaskil í lífi Ein- ars. „Þá var mér gefínn kostur á að fara til Akureyrar og búa þar í áfangahúsi. Ég var tregur til en lét til leiðast, m.a. vegna þess að nokkrir Akureyringar sem voru á Vogi hvöttu mig til þess. Ég fór á Fjóluna sem er nafn áfangahússins á Akureyri og ég fann strax að á Akureyri var ég frjálsari en í borg- inni. Ég gat gengið uppréttur um götumar án þess að eiga það á hættu að einhver fyllibytt- an bankaði í bakið á mér, og ég var í friði að vinna í mínum málum. Ég fór í einu og öllu eftir þvi sem fyrir mig var lagt þótt ég sæi t.d. engan tilgang í þvi að fara í sund eða að lyfta lóðum, ég gerði þaö samt“. Sá loks tilganginn „Á þessu tímabili sá ég loksins tilganginn með því að vera edrú. Þegar mínum tíma í áfangaheimilinu lauk leigði ég íbúð með öðr- um manni sem var samferða mér á Fjólunni Einar í herbergi sínu í Fjólunni á Akureyri. „Ég er aö byggja mig upp og sinna sjalfum mér“. á Silungapoll og svo að Staðarfelii í Dölum. Sú meöferð dugði til að halda mér edrú í 3 mán- uði. Viö héldum saman gamlir drykkjufélagar sem höfðum farið í meðferð og duttum svo í það einn af öðrum." Betlað á götunni „Það má segja að það sem næst tók við hafi verið götulífið, skrautlegt líf og rosalega DV-mynd gk erfitt. Við vorum 5-6 saman sem héldum hóp- inn, það var mikil samkennd milli manna og allir tilbúnir að hjálpa hinum þegar þannig stóð á. Til að fjármagna óregluna var oftast stundað betl á götum borgarinnar, við geng- Forgangsatriði að mönnun- um háma líði vel um iólin DV. Akureyri: „Jólin em haldin hér eins og á hveiju öðm heimili. Hér verða 7-8 manns á aðfangadags- kvöld og það mun fara vel um þá,“ segir Sæ- mundur Pálsson, forstöðumaður áfangaheim- ilisins Fjólunnar á Akureyri. Sæmundur segir að eldamennskan um há- tíðimar verði ekki vandamál á Fjólunni. „Menn ganga sjálfir í öll verk og skipta hálfsmánaðarlega. Einar Láms á að sjá um eldamennskuna um jólin með öðrum manni og hann er mjög snjall í eldhúsinu. Þá vill svo skemmtilega til að hér í húsinu verða úm jól- in einnig matreiðslumaður og kjötiðnaðar- maður þannig að jólasteikin verður ekkert vandamál. Jólin hér em mjög hátíðleg og ég hef lagt á það mikla áherslu að mönnunum sem dvelja hér á þessum árstíma líði sem best. Við þrí- fum húsið hátt og lágt og skreytum síðan og þaö er forgangsatriði að menn hafi nóg af öllu þegar jólin ganga í garð og öllum líði vel.“ - Er þetta ekki erfiður tími fyrir þá sem dvelja i húsinu? „Nei, ég hef ekki orðið mikið var við það. Það er talsvert mikið rnn það að menn sem era að sunnan og dvelja hér leggi ekki i að fara suður um jólin og sumir sem hafa gert það hafa komið fljótt aftur. Þegar menn era búnir að finna ró og frið héma vilja þeir ekki vera að skera neitt á það. Það er víða mikil neysla áfengis og fikniefna á þessum tíma sem öðrum. Hér í húsinu hafa menn það hins vegar huggulegt og mikil samkennd er ríkj- andi,“ segir Sæmundur Pálsson -gk Einar Lárus Pétursson, 32 ára alkóhólisti, hefur „haldið jól" við ýmsar kringumstæður: A rölti á aðfangadagskvöld með sprittbrúsann í fanginu -„kardókóngurinn" dvelur nú í „áfangahúsi" á Akureyri og hlakkar til jólanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.