Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996
53
Arnór Stefánsson hefur stofnað lyfjaverslun í Hondúras:
Yfirstéttin gleypir við
íslenska hákarlalýsinu
DV, Djúpavogi:
„Síðast þegar ég fór til Hondúras
hafði ég með mér hákarlalýsisperl-
ur frá Kraftlýsi hf. á Djúpavogi og
seldust þær mjög vel. Yfirstéttin
keypti þær. Nú hyggst ég flytja þær
út og setja þær á markað þar,“ seg-
ir Amór Stefánsson, 28 ára maður
frá Djúpavogi sem fyrir rúmu ári
fluttist ásamt þarlendri eiginkonu
sinni til Hondúras þar sem þau reka
nú eigið apótek.
Hondúras er ríki í Mið-Ameríku.
Landið liggur að Gvatemala, E1
Salvador og Nicaragúa. Landið er að-
eins stærra en ísland. Þar búa
5.800.000 manns. Aðalútflutningsvar-
an er bananar, kaffi og einnig er
mikill rækju- og humarútflutningur.
Amór og Júlía búa i höfuðborginni
Tegucigalpa sem þýðir silfurhæðir
og er indíánamál en bærinn var mik-
ill siifurnámubær á 19. öld. Þar búa
um 800.000 manns. Ekki búa þar
margir íslendingar en talsvert um að
skiptinemar komi þangað.
„Um 60% þjóðarinnar búa við
mikla fátækt, millistéttin er um
30% og yfirstéttin um 10%. En sú
stétt á meira af peningum en við ís-
lendingar þorum að láta okkur
dreyma um,“ segir Arnór.
Leiðbeinandi
krabbameinssjúkra bama
Arnór gegndi áður stöðu hótel-
stjóra á Hótel Framtíð sem er eign
fjölskyldu hans. Árið 1993 fór hann
til Hondúras sem skiptinemi, vann
meðal annars á sjúkrahúsi fyrir
krabbameinssjúk börn sem leið-
beinandi. Fólst starfið meðal annars
í því að hjálpa börnunum við að
læra að lesa, svo og sjá um að þau
fengju lyfin sín, sem þó eru af
skomum skammti, en á ríkisspítöl-
unum er ekki mikið úrval lyfja.
Hann kom heim aftur árið 1994 og
tók þá aftur við stjóm Framtíðar-
innar og með honum í for var Júlía
Sanches frá Hondúras sem er eigin-
kona hans í dag. Júlía vann í fiski
hjá Búlandstindi hf.
Fúkkalyf í stað spítala
„Bróðir konunnar minnar er
lyfjafræðingur og við fengum hann í
lið með okkur og fórum að kanna
möguleika á að opna lyfjaverslun í
Hondúras. Eftir 3-4 mánuði voru öll
leyfi fengin og hófst þá reksturinn.
Það má segja að það sé ekki stór
munur á apótekunum þar og hér
Arnór ásamt Júlíu, eiginkonu sinni, í Hondúras.
kirkjur og minnist
fæðingar frelsarans
eins og hér heima.
En bombumar eru
ansi áberandi í
jólafognuðinum og
mikið um að fólk
slasist. Þau borða
maísmassa fylltan
með ólífum og
svínakjöti. Á að-
fangadag stóðst ég
ekki jólahangikjöt-
ið sem ég fékk sent
að heiman. Já, það
er svo sem sama
hvert er farið á jól-
um - alltaf virðist
íslenska hangikjöt-
ið tilheyra jólahá-
tíðinni, hvort sem
dvalið er á
ísaköldu Fróni eða
í 1100 metra hæð
yfir sjávarmáli í
heitri Mið-Amer-
íku,“ segir Amór.
-HEB
Sextíu prósent þjóðarinnar búa við mikla fátækt.
heima, samkeppnin er mikil og
einnig eftirlit stjórnvalda. En þar er
tekið mikið af lyfjum, sérstaklega
fúkkalyfjum þar sem fólk yfirleitt
fær sér slík lyf ef það kennir sér
meins til að koma í veg fyrir að
þurfa að fara á spítala því það er
dýrt og ekki á allra færi að fara þar
inn,“ segir Amór.
Mengunin óþægileg
„Veðráttan er a.m.k. i höfuðborg-
inni eins og best verður á kosið -
aldrei of heitt og aldrei of kalt, þó er
mengunin ansi óþægileg en þeir eru
nú að ráða bót á því.“ Þar er margt
að skoða, sem dæmi má nefna Cob-
an, mjög frægar rústir frá Maya-
tímabilinu. Svo er auðvitað mjög
ódýrt að ferðast, hægt að læra köfun
í ótrúlega fallegu umhverfi og má
segja að með fegurri stöðum til að
kafa í heiminum sé innan um kóral-
rifm. Þar er hægt að fá kennslu í
köfun hjá góðum kennurum og
hljóta alþjóðaskírteini. Og strend-
umar era stórkostlegar, Hondúras
er sannkölluð paradís fyrir ferða-
menn, enda er þar vaxandi ferða-
mannastraumur. Það er nokkuð um
ferðamenn á norðurströndinni og
eyjunum í kring.
Páskarnir hátíðlegri en jólin
Jólasiðirnir eru talsvert frá-
brugðnir þeim is-
lensku en íbúar
Hondúras hafa sín-
ar hefðir hvað jólin
varða. Þó má segja
að páskarnir séu
meiri hátíð þar en
jólin. Á aðfangadag
era gethir pakkar
og borðaður sér-
stakur matur og
svo er farið út að
skemmta sér og
minnir það frekar
á gamlárskvöld á
íslandi.
„Fólkið sækir
á /e/ð/á
/
Leiðiskrossar
1.980 kr.
Leiðisgreinar
980 kr.
og 1.280 kr.
Útikerti
Hvergi meira úrval
fsnss
íslensk tólgarkerti
Luktir
í miklu úrvali.
Kerti í luktir
sem loga allt
að 7 daga.
Híasintur
Aðeins l.flokks
Gott verð
195 kr.
Rafljós m/rafhlöðu
loga 8-12 vikur
fJBSS
Rafljós sem hægt er að
hafa úti án luktar.
OPIÐ ALLA DAGA 10-22
‘Bhsmabúóin
virossvogskirkjugarð - sími 55 40 500
Uiltu tryggja þér
æ 1
“1111 mm
með einu símtali?
5 40 50
Hringdu núna og tryggðu þér skattaafslátt með kaupum í Almenna hlutabréfasjóðnum.
Þér býðst að greiða aðeins 10% út og eftirstöðvar á boðgreiðslum til 12 mánaða.
Við svörum í símann til kl. 23.30 alla virka daga til áramóta.
Þú getur einnig staðfest kaupin á heimasíðu Fjárvangs: www.fjarvangur.is
Almeimi lilutabréfasjMuriiui
fíTT^
FJÁRVANGUR
10CCIU VERÐBHfFAFYRIRTAKI
Laugavegi 170, sími 5 40 50 60