Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 67

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Blaðsíða 67
Ó T T A R SVEINSSON ftt'OG bptNHA i t an- metsölulistanna Samkvæmt isgji og „ Óttar kann að byggja upp spennu, án þess ao beita fyrir sig ódýrum stílbrögðum" Geir Svansson bókmenntafræðingur. Morgunblaðið, 27. nóvember 1996. Óttar Sveinsson hefur fengiðlof fyrir hraða og spennandi frásögn af íslenskum atburðum. Hróður hans hefur borist út yfir Atlantsála og lýsing hans i síðustu ÚTKALLS-hók björgunorafrekinu á Snæfellsjökli var kvikmynduðhér heima fyrir sjónvarpsþáttinn Rescue 917. ISLENSIJA BOKAÚTGAFAN SÍÐJMÚLA 11, sími 581 3999 kvikmyndir LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996 Tvær útgéfur af Ham et Þegar hin stjörnum prýdda mynd, Hamlet, sem Kenneth Brannagh leikstýrir, verður frumsýnd á jóladag verður um Cögurra klukkutíma útgáfu af myndinni að ræða og eru sér- fræðingar almennt á þvi að þessi mikla lengd sé of mikill biti til að kyngja fyrir hinn al- menna kvikmyndahúsagest. Því hefur verið brugðið á það ráð að myndin verði stytt um næstum helming í janúar og dreift þannig viðast hvar. Brannagh leikur sjálfur Hamlet, Kate Winslet er Ófel- ía, Julie Christie er Gertrud og Derek Jacobi er Claudius. Meðal annarra leikara eru Charlton Heston, Jack Lemm- on, Robin Williams og Billy Crystal. Heitur leikstjóri Leikstjórinn John N. Smith vann sér það til frægðar að leikstýra Dangerous Minds sem sló eftirminnilega í gegn. Þessi • kanadíski leikstjóri er samt enginn nýliði í kvikmyndagerð og hin kanadíska kvikmynd hans, The Boys of St. Vincent, vann til margra verðiauna. Smith er nú að heíja tökur á A Cool Dry Place sem fjallar um lögfræðing sem flytur með fjögurra ára son sinn frá stór- borginni í sveit þegar móðirin yfirgefur þá. Síðar kemur móð- irin og heimtar að fá drenginn til sín. Chris O’Donnel mun að öllum líkindum leika aðal- hlutverkið. Dreyfuss sem Fagin Walt Disney hefur nú í und- irbúningi nýja útgáfu af Oli- ver Twist og verður myndin jafnvel fyrst sýnd í sjónvarpi. Mick Jagger var fyrst boðið að leika Fagin en eftir að hann neitaði var leitað tD Richards Dreyfuss og þáði hann að hlut- verkið. Leikstjóri er Tony Bill (Untamed Heart). McConaughey launar greiðann Matthew McConaughey er ein umtalaðasta stjaman í Hollywood um þessar mirndir. Sá sem fyrstur veitti honum hlutverk í kvikmynd var leik- stjórinn Richard Linklater og var það í Dazed and Confused. McConaughey gleymir greini- lega ekki vinargreiða því þrátt fyrir ótal freistandi til- boð ætlar hann að leika aðal- hlutverkið í næstu mynd Linklaters sem heitir Newton Boys. Þar mun hann leika for- ingja bankaræningja sem fremja stórfenglegt rán. Shine I tuttugasta sæti á listanum yfir best sóttu myndir í Banda- ríkjunum er áströlsk kvik- mynd, Shine, sem hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða kvikmynd sem lýsir 30 ára baráttu píánósnillings við geðveiki. í aðalhlutverk- um eru Geoffrey Rush og Lynn Redgrave. Danny DeVito leikstýrir Matthildi: Stórhuga listamaður Það er aldrei nein lognmolla í kring- um Danny DeVito sem bæði leikur eitt aðalhlutverkið og leikstýrir Matthildi. Þessi smávaxni leikari og leikstjóri er með puttana í mörgu. Kvikmyndafyr- irtæki hans, Jersey Films, er orðið stórt framleiðslufyrirtæki sem meðal annars framleiddi Pulp Fiction og næsta kvikmynd frá fyrirtæki hans er Fierce Creatures sem er framhald A Fish Called Wanda. Þá eru þessa dag- ana að líta dagsins ljós þrjár kvik- myndir sem hann leikur í, Mars Attacks, nýjasta kvikmynd Tims Burtons, Space Jam, leikna teikni- myndin sem nýtur mikilla vinsælda um þessar mundir, og L.A. Confiden- tal, sem frumsýnd verður eftir áramót. Danny de Vito byrjaði feril sinn í sjónvarpsseríunni Taxi í lok áttunda áratugarins. Þeir sem hafa aðgang að sjónvarpsstöðinni Sýn geta séð þessa seríu þar. í þeirri þáttaröð kynntist hann eiginkonu sinni, Rheu Perlman, sem leikur einnig i Matthildi. í kvik- myndum vakti hann fyrst athygli þeg- ar hann lék á móti Michael Douglas og Kathleen Turner í Romancing the Sto- ne og stal senunni þar eins og hann hefur svo oft gert. Sem leikstjóri vakti hann strax at- hygli með fyrstu kvikmynd sinni, Throw Momma from the Train, en meðal mynda sem hann hefur leik- stýrt má nefna The War of the Roses og Hoffa. -HK Danny DeVito leiðbeinir hinni ungu leikkonu, Mara Wilson, sem leikur Matthildi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.