Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1996, Síða 35
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 1996
35
sviðsljós
Hann er 70 ára og hún 23ja:
Þau eiga von á bami
Mogens Kristoffersen, 70 ára, yflr-
læknir á fæðingardeild í Árósum, er
síungur ekkjumaður og verðandi
faðir, nýkvæntur 23ja ára gamalli
konu frá Taílandi. Mortens missti
konuna sina fyrir fimm árum,
skömmu áður en hann fór á eftirla-
un. Þau hjón höfðu alla tíð ferðast
mikið og þvi ákvað Mortens að fara
til Taílands, gagngert til þess að ná
sér í konu. Hann hitti Ampais í sinni
þriðju ferð og nú er hann kominn í
hnapphelduna.
„Mér fannst ég svo einmana. Ná-
grannar mínir höfðu flutt og þegar ég
skoðaði myndir í fjölskyldualbúm-
inu sá ég að fleiri og fleiri vin-
ir og ættingjar voru famir,“
segir Mogens sem er ákaf-
lega hamingjusamur, bú-
inn að selja húsið sitt í Ár-
ósum og pakka dótinu í
gám og flytja til Taílands.
Meiningin er að búa í Taíl-
andi því að Mogens þykist
viss um að eiga stuttan
tíma eftir, í mesta lagi
20 ár. Hann vill að
að Ampais hafi
fjölskyldu
sína að
leita til
þegar
áfallið
stóra ríð-
ur yfir.
-En
hvernig
tókst sjötug-
um herra-
manni að
krækja i unga
blómarós?
„Ampai bauð
mér upp í dans í
bæ einum úti á
landi,“ segir hann.
Þetta var greini-
legt merki um
áhuga rósarinnar
fyrir hinum háa
ljósa herramanni.
Stuttu síðar trúlof-
uðu þau sig og hálfu
ári síðar voru þau
gift.
Fyrir Ampai var mjög eðlilegt að
eignast barn með Mogens enda varð
hún þunguð stuttu eftir giftinguna.
Mogens verður því faðir innan nokk-
urra mánaða 43 árum eftir að hann
eignaðist sitt fyrsta barn.
„Mitt stærsta áhyggjuefni er að
geta ekki fylgst með baminu alla
ævi. Ef ég er heppinn get ég fylgst
með þvi fyrstu 20
æviár þess,“
segir hann.
Mogens Kristoffersen, yfiriæknir í Árósum, hitti Ampai,
23ja ára blómarós, í sinni þriöju ferð til Taílands og
skömmu síöar giftu þau sig. Þau eiga nú von á barni.
Gáttuð á áhrifunum
Jennifer Aniston, hin krúttlega leikkona.í þátt-
unum Vinir, er algjörlega gáttuð á því fiaðrafoki
sem hárgreiðslan hennar hefur vakið. „Ég var að
heimsækja Washington D.C. í fyrsta sinn, akandi
niður aðalgötuna, þegar ég sá allt í einu stækkaða
mynd af höfðinu á mér í glugga einnar hár-
greiðslustofunnar. Þar stóð: Fáið ykkur Rachel
hárgreiðslu." Rachel er persónan sem Jennifer
leikur í þáttaröðinni. „Ég er gjörsamlega gáttuð á
því hvað ein hárgreiðsla getin- haft mikil áhrif,“
sagði þessi brúnhærða leikkona í forundran.
Troðfull búð
af nýjum vörum
Skólavörðustíg 7r 101 Reykjavík,
Sími551-58/4, Fax552-9664
í