Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1997, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
Stuttar fréttir
Tugir farast í jarðskjálfta
Að minnsta kosti sextíu
manns létu lífið í tveimur jarð-
skjálftum í norðausturhluta
írans í gær.
Samþykkja kosningar
Búlgarar fognuðu í gær
ákvörðun sósíalista um að efna
til þingkosninga í apríl.
Starfsmenn SÞ myrtir
Fjórir starfsmenn Samein-
uðu þjóðanna voru myrtir í fyr-
irsát í Rúanda í gær.
Indverjar bjartsýnir
Indversk dagblöð sjá fram á
betri samskipti við Pakistan í
kjölfar kosningasigurs Nawaz
Sharifs.
Gagnrýnir há laun
Göran Persson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, gagnrýnir há
laun í stofnunum Evrópu-
bandalags-
ins. Segir
Persson
þau skaða
trúverðug-
leika stofn-
anánna.
Sænskir
starfsmenn
bandalags-
ins fá
miklu
hærri nettólaun en sænskir
þingmenn og jafnvel forsætis-
ráðherrann sjálfur.
Sakaður um morð
Dublinbúi var í gær sakaður
um morðið á írska rannsóknar-
blaðamanninum Veronicu
Guerin sem var skotin til bana
í júní síðastliðnum.
Hungursneyö yfirvofandi
Alþjóða Rauði krossinn býst
við hungursneyð í N-Kóreu í
lok ársins berist ekki hjálp
þangað í tæka tíð.
Áhersla á menntamál
Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti sagði í stefnuræðu í gær að
leggja þyrfti áherslu á mennta-
kerfið.
Allir líffæragjafar
Brasilíustjórn samþykkti í
gær lög sem gera alla Brasilíu-
menn að mögulegum liffæra-
gjöfum. Reuter
Subaru Legacy Station ’95, hvítur,
2000 cc, beinskiptur, ek. 18 þús. km.
VW Polo '97,1400 cc, Ijósblár, 3d„
ek. 8 þús. km.
Dodge Stratus ’95, vínrauður, ek. 75
þús. km, ssk., 5d„ 2400 cc.
Toyota Corolla 1300 XLi ’95, rauður,
5d„ ek. 76 þús. km.
Izuzu Double Cab '92, hvftur, plast-
hús, ek. 120 þús. km, vskþíll.
Mazda 323 Doch turbo 4WD, svartur,
ek. 79 þús. km, álfelgur, spoiler o.fl.
Fisléttir sölubílar
Lauflétt afgreiðsla
BORGARTÚNI 1b
Sími 552 9000
Útlönd
DV
Björgunarmenn taka lík ísraelskra hermanna úr braki þyrlnanna tveggja sem fórust á leiö til Líbanon í gærdag. Enginn komst lifs af úr slysinu en alls týndu
73 hermenn lífi. Simamynd Reuter
Tvær herþyrlur ísraela rákust á í lofti og hröpuðu til jarðar:
73 israelskir urvalsher-
menn fórust í slysinu
Tvær ísraelskar herþyrlur á leið
til Líbanons rákust á í lofti um
fimmleytið í gærdag og hröpuðu til
jarðar. Allir um borð, 73, þar á með-
al þungvopnaðir úrvalsdeilarher-
menn og 13 yfirmenn, fórust í slys-
inu. Miklar sprengingar urðu við
áreksturinn en mikið var af vopn-
um um borð. Ekki er vitað af hverju
þyrlurnar, sem voru af Sikorsky
gerð, rákust á en slæmt veður var á
þessum slóðum. Þó hefur verið úti-
lokað aö um hryðjuverk eða árás
hafi verið að ræða. Ekki var vitað
um neinar bilanir fyrir flugtak.
Brak úr þyrlunum dreifðist um
eins kílómetra stórt svæði en þær
hröpuðu í landbúnaðarhéraði.
Sjúkrahús næst slysstaðnum bjuggu
sig strax undir að taka á móti særð-
um hermönnum en enginn kom.
Björgunarmenn heyrðu máttlaus
hróp eftir hjálp úr braki þyrlnanna
en þegar að var komið reyndist ekk-
ert lífsmark meðal fórnarlambanna.
Varnarmálaráðherra ísraels hef-
ur skipað nefnd til að rannsaka
slysið en það er versta slys sem orð-
ið hefur í sögu ísraelshers. Israelsk-
ir stjórnmálamenn voru miður sín
vegna slyssins og þjóðhöfðingjar
margra landa sendu samúðarkveðj-
ur.
Þyrlurnar voru á leið til 15 km
breiðs hemámssvæðis í Suður- Lí-
banon sem ísrelar rýmdu 1985 í að-
gerðum gegn skæruliðum. Slysið
vakti á ný upp spurningar um að-
gerðir ísraela í Líbanon. Simon Per-
es, formaður Verkamannaflokksins,
sagði að harmleikurinn í Líbanon
yrði að taka enda.
Ritskoðarar hersins reyndu að
halda fréttum af slysinu leyndum
fyrstu tvo tímana eftir að það átti
sér stað svo hægt væri að gera fjöl-
skyldum fórnarlambanna viðvart
áður en fréttir birtust af því í fjöl-
miðlum. En vegna umfangs þess og
gríðarlegra sprenginganna reyndist
ógerningur að hamla gegn
fréttaflæðinu. Reuter
Jagland missir
þriðja ráðherrann
Anne Holt, dómsmálaráðherra
Noregs, sagði af sér embætti í gær
vegna heilsubrests. Er hún þriðji
ráðherrann sem lætur af emhætti
frá því að minnihlutastjórn Verka-
mannaflokksins var mynduð fyrir
rúmum þremur mánuðum.
Holt, sem er 37 ára lögfræðingur
og vinsæll reyfarahöfundur, hefur
verið frá vinnu í nokkrar vikur
vegna blóðleysis.
Skyndileg afsögn hennar er mikið
áfall fyrir Thorbjorn Jagland, for-
sætisráðherra Noregs, en kosningar
verða í Noregi í september næst-
komandi.
„Ég hafði hlakkað til að fá að
njóta hæfileika þessarar stórbrotnu
persónu í ríkisstjóminni. En heils-
an kemur í fyrsta sæti,“ sagði for-
sætisráðherrann er hann tilkynnti
um afsögn dómsmálaráðherrans.
Við embættinu tekur Gerd-Liv
Valla sem er 48 ára. Hún er varafor-
maður bandalags opinberra starfs-
manna í Noregi.
í nóvember síðastliðnum sagði
Terje Rod-Larsen af sér embætti
ráðherra skipulagsmála vegna ásak-
ana um skattsvik.
Holt og Rod-Larsen voru bæði
persónulegir vinir Jaglands. Þar
sem mikið þykir til þeirra koma var
búist við að þau myndu setja sterk-
an og ferskan svip á nýju ríkis-
stjómina.
Grete Faremo sagði af sér emb-
ætti orkumála í desember vegna
hneykslis innan norsku leyniþjón-
ustunnar. Reuter
Saddam í sjónvarpi
með eiginkonunni
íraska sjónvarpið sýndi i gær
myndir af Saddam Hussein íraks-
forseta og eiginkonu hans Sajidu
þar sem þau tóku á móti kvenfé-
lagskonum er óskuðu syni for-
setahjónanna, Uday, góðs bata.
Háttsettir aðilar innan Banda-
ríkjahers hafa haldið því fram að
Saddam forseti hafi sett eigin-
konu sína í stofufangelsi. Vitnuðu
Bandaríkjamennimir í áreiðan-
legar heimildir í írak.
Uday sat í hjólastól á sjúkra-
húsinu er kvenfélagskonumar
komu til að heimsækja harrn og
foreldra hans. Bandarikjamenn-
irnir höfðu einnig sagt hættu á að
Uday kynni að missa fót vegna
dreps.
Reuter
Umferðarlögregla í Belgrad handtók tvö ungmenni í kjölfar árásar á fransk-
an bílstjóra. Simamynd Reuter
Milosevic lætur
undan kröfum
Slobodan Milosevic Serbíuforseti
kúventi i gær og kvaðst hafa skrifað
forsætisráðherra landsins bréf þar
sem hann fór fram á að þingið virti
úrslit sveitarstjórnarkosninganna
frá því í nóvember síðastliðnum.
Stjórnarandstæðingar ætla að halda
mótmælum áfram þar til allar kröf-
ur þeirra hafa verið uppfylltar.
Þeir vilja að kosningasigur þeirra
í 14 sveitarfélögum verði viður-
kenndur, þar á meðal í Belgrad, þeir
krefjast ffjálsra fjölmiðla og að þeir
sem bera ábyrgð á ofheldi lögregl-
unriar verði ákærðir.
Áttatíu þúsund mótmælendur,
sem gengu um götur Belgrad í gær,
fógnuöu ákaft er þeir heyrðu boð-
skap forsetans. Er óeirðalögregla
hafði yfirgefið götur miðborgarinn-
ar þóttust nokkur drukkin ung-
menni gegna hlutverki lögreglunn-
ar og stöðvuðu bíla, þar á meðal bíl
fransks sendiráðsstarfsmanns. Réð-
ust ungmennin á bílstjórann og
börðu hann. Þau hættu barsmíðun-
um þegar einhver skaut viðvörun-
arskoti upp í loftið. Reuter