Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1997, Qupperneq 24
40
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
Sviðsljós
Jamie Lee í við-
eigandi fatnaði
Jamie Lee Curtis klæddist
viðeigandi fatnaði þegar hún
kom til frumsýningar í
Hollywood á myndinni Fierce
Creatures ásamt Annie, tíu ára
gamalli dóttur sinni. Kvikmynd-
in Fierce Creatures er framhald
á myndinni A Fish Called
Wanda sem var gríðarlega vin-
sæl. Jamie Lee leikur í nýju
myndinni eins og flestir hinna
leikaranna sem léku í þeirri
fyrri. Og það var auðvitað John
Cleese sem leikstýrði eins og
fyrri daginn.
Súperfyrirsætan Iman, sem hér skrýöist fötum hönnuðarins Donna Karan,
kemur ásamt eiginmanni sínum David Bowie á hátfð tfskuhönnuða sem
haldin var í New York á mánudaginn. Slmamynd Reuter
Tom Cruise.
Tom Cruise hrif-
inn af Brimbroti
Tom Cruise, sem er nýbýinn að fá
Golden Globe verðlaunin fyrir leik
sinn í Jerry Maguire, er yfir sig
hrifinn af kvikmyndinni Brimbrot.
„Myndin er alveg einstök og leikur-
inn frábær. Hver sena rannsakar
gæsku og sannleika á nýjan hátt. Ég
hugsaði um myndina í marga daga
eftir að ég sá hana,“ sagði Tom með-
al annars í viðtali við bandarískt
blað.
Jonathyn Pryce.
Pryce næsti
óvinur Bonds
Jonathyn Pryce verður ef til vill
skúrkurinn í næstu James Bond
myndinni. Tímaritið Variety segir
að Pryce standi nú í lokaviðræðum
um að leika grimman fjölmiðlakóng
sem ergir James Bond er Pierce
Brosnan leikur.
Kvikmyndin hefur enn ekki feng-
ið neitt heiti en áætlað er að tökur
hefjist 1. apríl. Pryce lék Juan Peron
I kvikmyndinni Evitu. Fyrir leik
sinn í myndinni Carrington hlaut
hann verðlaun í Cannes. Hann er
sennilega þekktastur i Bandaríkjun-
um fyrir leik í sjónvarpsauglýsing-
um.
Jerry yfirbugaðist af
skelfingu í tískuverslun
Jerry Hall skortir ekki fé, svo
mikið er víst. Það kom því nær-
stöddum á óvart þegar krítarkort-
inu hennar var hafhað í verslun
tískuhönnuðarins Vivienne
Westwood í London.
Aumingja Jerry, sem er gift rokk-
stjörnunni Mick Jagger, varð
eldrauð í framan þegar American
Express gullkortinu hennar var
hafnað. Jerry, sem sýnir stundum
föt fyrir Westwood, ætlaði að greiða
fyrir jakka og hatt sem kostuðu um
100 þúsund íslenskar krónur, þegar
posavél verslunarinnar sýndi mót-
þróa.
Að sögn viðstaddra varð Jerry
gjörsamlega miður sín. „Hún fer nú
yfirleitt ekki hjá sér en í þetta skipt-
ið roðnaði hún niður í tær,“ er haft
eftir sjónarvotti. Verslunin var full
■
Grænt Ijós kom á krítarkort Jerry þremur dögum eftir innkaupaferðina.
af fólki og allir sáu Jerry yfirbugast
af skelfingu. Hún trúði ekki því sem
var að gerast og það gerði ekki held-
ur afgreiðslustúlkan.
En þar sem Jerry var fastur við-
skiptavinur verslunarinnar og eng-
inn efaðist um aö einhver mistök
hefðu átt sér stað fékk hún að fara
með fötin heim. Reikningurinn var
svo greiddur þegar grænt ljós kom á
kortið þremur dögum síðar.
Viðskiptavinimir veltu því hins
vegar fyrir sér hvemig stæði á því
að kortinu hefði verið hafnað.
„Jerry Hall hlýtur að eiga tugi
milljóna í bankaninn," sagði einn
þeirra.
Að minnsta kosti á eiginmaður-
inn Mick eignir fyrir milljarða
þannig að hann hefði að minnsta
kosti getað hlaupið undir bagga.
DV-BILAR 1997
DV gefur út sérstakt, stórt bílablað 12. febrúar nk. með
líku sniði og verið hefur undanfarin ár.
Markmiðið er að gefa heildstætt yfirlit yfir þá fólksbíla
og jeppa, sem bílaumboðin ætla að hafa á boðstólum
á árinu 1997, en auk þess greina frá ýmsu því sem á
döfinni er í íslenskum bílamálum um þessar mundir.
Upplýsingar um bílaframboðið verða settar fram í töflu
með líkum hætti og verið hefur undanfarin ár.
Umsjón efnis er í höndum Jóhannesar Reykdal
og Siguröar Hreiðars.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaði vinsamlegast hafi samband við
Guöna Geir Einarsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
í síma 550-5722.
Vinsamlegast athugið að panta þarf auglýsingar í þetta
blað fyrir fimmtudaginn 6. febrúar nk.
Auglýsingar
Sími 550 5000, bréfasími 550 5727.