Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Blaðsíða 8
sælkerinn LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1997 Hrefna Halldórsdóttir: Vatnasilungur með sítrónupipar Hrefna Halldórsdóttir, eigandi Hótels Hveragerðis, féllst á að gefa lesendum DV uppskrift að vin- sælasta réttinum á Hótelinu. Það er vatnasilungur úr Laugarvatni eða Apavatni sem gestir eru mjög hrifn- ir af, hæði innlendir og erlendir. 800 g silungur hveiti sítrónupipar salt smjör til steikingar kreistur sítrónusafi Silungsflökunum er velt upp úr hveiti sem er kryddað með sítrónu- pipar og salti. Flökin eru steikt upp úr smjöri, fyrst á sárinu en síðan er þeim snúið við og sítrónusafi kreistur yfir. Bræðið smjör með smávegis hvitlauk og saxaðri stein- selju. Gott er að bera fram með þessu soðnar kartöflur, blómkál og gulrætur. Diskurinn er skreyttur með sítrónu, steinselju og fersku salati. Hrefna Halldórsdóttir segir aö vatna- silungurinn sé oröinn sérréttur á Hót- el Hverageröi. DV-mynd Sigrún Lovísa Súkkulaðimousse Þegar boðið er í mat er afltaf gaman að leggja svolitla vinnu í eftirréttinn. Súkkulaðimousse er fallegt á borði og gott á bragð- ið. 8 eggjarauður 4 eggjahvítur 300 g dökkt suðusúkkulaði 150 g ósaltað smjör 100 g sykur koníak/amaretto Súkkulaði og smjög er brætt í vatnsbaði. Eggjahvítumar eru stífþeyttar ásamt sykrinum. Bráðna súkkulaðið er blandað saman við eggjarauðumar og hrært varlega saman við eggja- hvítumar. Bragðbætið með kon- íaki eða amaretto. Rétturinn á að standa I ísskápnum í 8 tíma áður en hann er borinn fram. Vanillusósa y21 mjólk y2 vanillustöng 75 g sykur 3 eggjarauður 1 tsk. maisenamjöl Sjóðið mjólk og vanillustöng- ina saman og blandið eggjarauð- unum, sykur og maisena saman við. Hellið sjóðandi mjólkinni yfir eggin og hrærið kröftuglega í á meðan. Látiö suðuna koma vel upp áður en sósan er kæld. Jarðarberjasósa 100 g jarðarber 3 dl sykurlag gert úr lk2 dl vatni og 1 y2 dl sykri. Vinnið jarðarber og sykurlag í matvinnsluvél og síið með fín- gerðu sigti. Bræðið dökkt súkkulaði og smyijið því á bök- unarpappír og látið það harðna. Skeriö út hringi í mismunandi stærðum og komið súkkulaði- hringjunum fyrir til skiptis á við súkkulaöimousse. Hellið vaniflu- sósunni og jarðarbeijasósunni í kringum súkkulaðimousseð. Á toppinn er sett jarðarber til skrauts. -em matgæðingur vikunnar Finnbogi Jónsson og Sveinborg Sveinsdóttir: Loðnuhrognakæfa og svartfugl Hjónin Finnbogi Jónsson, for- stjóri Síldarvinnslunnar h/f á Nes- kaupstað, og Sveinborg Sveinsdótt- ir geðhjúkrunarfræðingur eru matgæðingar vikunnar. Þau gefa uppskrift að loðnuhrognakæfu, svartfugli og eftirrétti með bláberj- um. Loðnuhrognakæfa (forréttur) 400 g loðnuhrogn 200 g hreinsaður soðinn lax V2 dós sýrður ijómi li4 dós matarlím aromat difl 2 dl hvítvín Aðferð: Sýrði rjóminn og majonesið hrært saman og kryddi blandað saman við. Laxinn stapp- aður og blandað sam- an við hrogn og sósu. Þá er matarlímið hitað í hvítvíninu og blandað varlega saman við. Sett í af- langt form er smurt hefur verið með matarlími og látið bíða í ís- skáp í 2 klst. Borið fram heilt. (Skreytt t.d. með salat- blöðum, papriku, dilli og kavíar). Meðlæti sósa og ristað brauð. saman við. Svartfugl 8 stk. svartfuglar smjörlíki salt pipar 2 fl. maltöl rifsberjasulta gráðostur sósujafnari rjómi. Svartfuglinn er steiktur á pönnu upp úr smjörlíkinu og kryddaður mjög vel með salti og pipar, settur í pott. Vatni hellt á pönnuna og soðinu síðan hellt yfir fuglinn. Maltölinu er bætt út í þannig að rétt fljóti yfir fugl- inn. Ca 1-2 mat- skeiðar af rifsberja- eða hindberja- Borið fram með brúnuðum kartöflum, maísbaunum og rauð- káli. Gott er einnig að brúna hvít- kál í sykri og hafa með. Einnig er gott að sjóða hálft epli í sykurvatni í ca 8-10 mín. og nota sem meðlæti. Eftirréttur með bláberjum 100 g óhrært skyr 1-2 dósir sýröur rjómi ca 100 g sykur (eftir smekk) % 1 rjómi ca 50 g brætt smjör hafrakex, ca y2 pakki bláber Skyrið, sýrði rjóminn og sykur- inn hrært vel saman. Rjóminn er þeyttur og síðan blandað saman við. Hafrakexið er mulið og kexmylsn- unni dreift í botninn á paiformi. Brædda smjörinu hellt þar yfir, ca V4 af hrærunni blandað saman við kex- mylsn- una. Skyr- hræran Sósa Finnbogi Jónsson, forstjóri Síldarvinnslunnar h/f, og Sveinborg Sveinsdóttir geöhjúkrunar- fræöingur gefa uppskrift aö gómsætum réttum. 1 dós sýrður rjómi 1 dós majones 250 g y2 pakki horseradise Aromat, pipar og paprika (eða chili pipar) eftir smekk, sömuleið- is mango cutney eða plómusulta. Fáeinum sitrónudropum blandað sultu bætt út í vatnið eftir að suð- an er komin upp. Fuglinn er síðan soðinn í iy2 til 2 klst. Sósa er bökuð upp úr soðinu eða sósujafnari notaður, ca 2 tsk. rifs- berjasulta sett út í ásamt bita af gráðosti og smávegis af rjóma. DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson smurð þar yfir og blábeijunum blandað saman við. Sett í frysti i 1-2 klst. Finnbogi og Sveinborg skora á Davíð Baldursson sóknarprest á Eskifirði og Inger Lindu Jónsdótt- ur sýslumann. Tær grænmetissúpa Tær grænmetissúpa er góð í kuldanum yfir veturinn. Hún er tilvalin sem forréttur eða léttur hádegisverður með brauði. iy21 góður kjötkraftur 1-2 dl þurrt sérrí 2 gulrætur í strimlum 1 kálhöfuð í sti'imlum 100 g sykurertur í strimlum Grænt af þremur vorlaukum, grófskorið Síið kraftinn, sjóðin hann og bragðbætið með sérríi. Einnig er hægt að krydda með ceyenne-pip- ar á hnífsoddi. Hreinsið og skerið grænmetið og sjóðið þar til þaö er meyrt. Hitið grænmetið i súp- unni. Entrécote í ofni 1% beinlaus entrecote salt pipar smjör til steikingar Kjötið má vera feitt og ekki skal skera fituna utan af á meðan á steikingu stendur. Nuddið salt og pipar vel inn í kjötið og brún- ið það í smjöri á steikarpönnu. Leggið kjötið á grind yfir ofn- skúffuna og steikið kjötið í ofnin- um á 200 gráðum í 40 mínútur til að byrja með eða þar til innhit- inn í kjötinu er 62 gráður. Takið kjötið út úr ofninum og látið það standa í 30 mínútur. Setjið þá kjötið aftur inn í ofninn og steik- ið það í 10 mínútur og skerið það í þykkar sneiðar. Berið kjötið fram með brokkoli, kartöflum og bernaisesósu. Bernaisesósa Hægt er að kaupa bemaisesósu í pökkum en hún er ekki nándar nærri eins ljúffeng og heimatilbú- in bemaisesósa. 2 fínhakkaðir laukar 1 msk. finhakkað ferskt estragon iy2 dl estragonedik 3 eggjarauður 300 g smjör 1-2 msk. ferskur pressaður sítrónusafi salt og hvítur pipar 1 msk. hakkaö estragon Sjóðið lauk, edik og estragon í loklausum potti þar tfl það er hálfsoðið. Sigtið. Þeytið eggjar- auðumar vel í skál og látið skál- ina í pott með heitu vatni. Vatnið má ekki fara yfir 70 gráður. Þeyt- ið estragon blönduna saman við eggjarauöumar, örlítið í einu og þar á eftir smjöriö í litlum skömmtum. Það er mjög mikil- vægt að þeyta stíft allan tímann. Hafið örlítið kalt vatn tiltækt við hliðina á ykkur. Ef sósan veröur mjög þykk og gljáandi er hún að skilja sig. Þeytið hana þá saman aftur með einni skeið af köldu vatni. Bragðbætið sósuna með sitrónu, salti og pipar og hrærið hökkuðu estragoni saman við. Best er að sósan standi í vatns- baði til þess að hún haldist heit þar tfl hún er borin fram. -em I&mm—g———smmmm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.