Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Blaðsíða 35
3D>\ ^ LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAR 1997
-----------------------rv
Hfeilsurækt « <
011 fötin orðin
of stór á mig
- skynsamleg markmið í byrjun og að festa í sessi breytta lífshætti
„Mér gengur stórvel.
Á miövikudaginn
var ég kominn
niður í 121,6
og vant-
ar þá
ekki
nema 1600 g upp á að ná tak-
markinu fyrir 1. mars nk. Ég
er kominn á það stig að eiga
engin fot, þau er öll orðin of
stór,“ sagði Árni Sigurðsson,
okkar maður í lífsháttabreyt-
ingunni. Hér til hliðar sjáum
við árangur og markmið Áma
sett upp á myndrænan hátt.
En hverju er það að þakka að
hann hefur náð þessum góða ár-
angri? - Hver er skoðun Áma á
því núna, sex mánuðum eftir að
hann hóf vinnuna við lífshátta-
breytinguna 10. ágúst sl. og 35 kg
þyngri en hann er nú?
„Ég held að í byrjun hafi þörfin
fyrir að snúa frá röngum lífshátt-
um fleytt mér langt. Mér tókst
einnig í byrjun að setja mér raun-
hæf markmið og skipti þeim síðan
niður i viðráðanlega hluta. Þannig
var aðalmarkmiðið það að vera
kominn niður í 99 kg 1. júlí nk.
Það svarar til 5 kg á mánuði eða
1,5 kg á viku. Síðan setti ég mér að
ná þessu með breyttum lífsháttum
sem ég ætlaði að ná með því að
breyta mataræðinu, mæta hvern
dag í World Class og hreyfa mig
eitthvað þar og síðan að léttast.
Þetta tóildi ég aUt raunhæf mark-
mið og sérfræðingar sögðu mér
líka að ekki væri óraunhæft að ná
því að losna við 1,5 kg að meðaltali
á viku. Ég hef síðan sprett úr spori
daglega í World Class og þannig
brennt fitu og byggt upp vöðva,
auk þess sem ég lyfti nú lóðum
o.þ.h. síðustu vikurnar.
Mataræðið var ekki alveg nógu
gott hjá mér fyrstu mánuðina en eft-
ir áramótin tók ég mér þar tak og ég
sé ekki betur en það hafi strax skil-
að mér betri árangri og betri líðan,“
sagði Ámi Sigurðsson.
„Nú fæ ég mér eitt glas af Nupo
let að morgninum, siðan er aðal-
máltíð dagsins um hádegið og er
einkum hýðishrisgrjón, fiskur og
grænmeti.“ Síðan nærist ég aðeins
á Nupo let það sem eftir er dagsins
og fæ þannig þokkalega magafylli
og er tryggur með öll nauðsynleg
næringarefni og vítamín," sagði
Árni.
„Ég hef það á tilfinningunni að
mér sé að takast að festa þessa
nýju lífshætti í sessi og markmiðið
er auðvitað að halda þeim áfram
til frambúðar.“
Erla byggir upp og brennir fitu
Hún sagöist hafa ákveðið fyrir
löngu að taka sér tak og byrja i lík-
amsrækt. Síðan var það átakið -
Leið til betra lífs, sem nú stendur
yfir á vegum DV, World Class og
Bylgjunnar, sem varð til þess að
Erla Friðgeirsdóttir byrjaði æfing-
ar í World Class. Lesendur kannast
sumir við Erlu en hún er með
þætti á Bylgjunni á kvöldin og um
helgar. Hún hefur ákveðið að láta
ekki aðeins sitja við átakið heldur
halda áfram ótrauð og æfir nú í
það minnsta fjórum sinnum í viku.
Við á Trimmsíðu DV ætlum að
fylgjast með en byrjuðum á að
ræða við þjálfara hennar í World
Class, Sölva Fannar.
„Erla gerir sér fulla grein fyrir því
að um er að ræða að minnka hlutfall
fitu í líkamanum. Þyngdin á þessu
stigi er aukaatriði," sagði Sölvi. „Við
erum sem sagt að byggja upp og
brenna fitu. Jafnhliða því eykst
vöðvamassinn og við það eykst bnm-
inn, því aukin orka fer í að viðhalda
þessum vöðvamassa.
Siðan erum við að endurskoða
mataræðið og breyta þvi eins og þörf
er á. í byrjun einbeitum við Erla
okkur að þvi að skapa jafnvægi í
uppbyggingunni,“ sagði Sölvi að lok-
um.
DV ætlar að fylgjast með Erlu
Friðgeirsdóttur næstu vikurnar.
Við þykjumst vita að konur sem
vilja hefja líkamsrækt og taka upp
nýja lífshætti eigi ýmislegt sameig-
inlegt með körlum en væntanlega
annað sem ekki er þannig. En við
fylgjumst með og óskum Erlu auð-
vitað velfamaðar.
i
Þarna viö Skagfjörösskála í Langadal í Þórsmörk munu hlaupagarparnir
Ijúka ferö sinni um „Laugaveginn" úr Landmannalaugum. Ekki er ólíklegt aö
fyrstu menn veröi á u.þ.b. 6 klukkustundum og svo veröa vafalaust aörir
sem taka sér allt aö hálfan sólarhring I feröina.
Alþjóðlegt hlaup
um „Laugaveginn"
- hver verður fljótastur úr Landmannalaugum í Þórsmörk?
Alþjóðlegt fjallaskokk verður
haldið hér á landi 26. júlí nk.
Hlaupið verður um „Laugaveg-
inn“, eins og gönguleiðin úr Land-
mannalaugum í Þórsmörk er oft
kölluð. Flugleiðir verða aðal-
styrktaraðili en framkvæmd verð-
ur í höndum sömu aðila og sjá um
Reykjavíkurmaraþonið og fleiri
hlaup.
Ágúst Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri sagði í viðtali við
DV að úr Landmannalaugum í
Þórsmörk væri 50,5 km mæld loft-
lína en skokkleiðin sjálf vafalaust
eitthvað rúmlega það. Þetta verð-
ur alþjóðleg keppni eins og áður
sagði og hafa Flugleiöir kynnt at-
burðinn erlendis, auk þess sem
eitthvað hefur verið sagt frá hon-
um í erlendum hlaupablöðum.
Ágúst sagðist þó ekki eiga von á
mikilli þátttöku erlendis frá í
Umsjón
Ólafur Geirsson
fyrsta skiptið. Hann sagðist þó
þegar hafa orðið var við veruleg-
an áhuga á hlaupinu, þó svo eng-
inn leggi í rúmlega 50 km hlaup
um hálendi íslands nema vera í
þokkalegu líkamlegu formi.
Takmark
Jjjf 99 kg
12% fituhlutfall
Takmark
5/2 '97
5/2 '97
21/1 97
10/1 97
121,6 kg
124.5 kg
26% fituhlutfall
128.5 kg
18/10 '96
irgi*a
-í -
<
139,0 kg