Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 8. FEBRÚAF Ityiðsljós 13 **★ Lítil bandarísk stúlka fannst myrt í kjallaranum heima hjá sár: Fegurðardís og fyrirsæta Lif litlu JonBenét Ramsey var nánast óeðlilega heillcindi þar til morðingi batt enda á það á grimmi- legan hátt á jólunum. JonBenét, sem var sex ára lítil fegurðardís sem nýlega var valin jólastúlkan I heimabæ sínum, fannst myrt í kjall- JHgtt JonBonét heföi átt bjarta framtíö fyrir sér. aranum heima hjá sér. Límt var fyr- ir vit hennar og snæri bundið um háls hennar. Morðiö vakti hrylling hjá fólki um gervöll Bandarikin. Eina fólkið sem vitað er um í hús- inú þessa nótt var hálfbróðir Jon- Þaö er mat margra aö JonBonét hafi veriö einum of mikiö máluö og hún hafi veriö látin líta út fyrir aö vera eldri en hún er. Benét, 20 ára, foreldrar hennar og bróðir hennar, Burke, 9 ára. Engin merki sáust um innbrot. John Ramsey fann lík dóttur sinnar. Böndin bárust að einhverjum úr fjölskyldunni en hjónin John og Patsy báru af sér sakimar og létu taka við sig viðtöl í fjölmiðlum. í rannsókninni kom ffam að ein- hver hafði hringt í Neyðarlínuna frá heimili þeirra þremur dögum fyrir morðið en viðkomandi lagði síðan á. Bamfóstra JonBenét segist treysta foreldrum hennar fyrir sín- um eigin bömum og finnst óhugs- andi að þau gætu framið slíkan verknað. Ljósmyndari, sem tók myndir af stúlkunni, segir að sam- band hennar og móður hennar hafi virst mjög gott og Patsy hafi þótt innilega vænt um dóttur sína. Það þykir þó ekki alveg eðlilegt hvemig stúlkan var máduð og meik- uð eins og fullorðin kona. Móðir hennar virðist hafa lagt hart að sér til þess að koma henni áfram í fyr- irsætuheiminum. Hún leigði fyrir hana einkaþjálfara til þess að kenna henni að koma fram og var með ljósmyndara á eigin vegum. Stúlkan virðist hafa átt mjög gott samband við alla en hún fékk óneitanlega miklu meiri athygli heldur en bróð- ir hennar, Burke. Ráðgátan um morðið á JonBonét er ennþá óleyst en fjölskyldan er harmi slegin. Fjármálanámskeið Búnaðarbankans eru fyiir alla aldurshópa - bókaðu þig núna! Með því að skipuleggja fjármálin og láta skynsemina ráða er hægt að ná miklum árangri í að lækka útgjöldin án þess að neita sér um alla ánægjulega hluti. Búnaðarbankinn mun standa fyrir röð af námskeiðum um fjármál fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur fá vandaðar fjármálahandbækur sem hafa verið samdar sérstaklega fyrir hvern aldurshóp. HKiMIUlklKAN Fjdrmdl heimilisins Fjármál unya fólksins NÁMSf Fjármál heimilisins Þar er fjallað um ýmis atriði sem tengj- ast heimilisrekstri. Hvernig spara má í útgjöldum, lánamöguleika, ávöxtunarleið- ir, heimilisbókhald, áætlanagerð, skatta- mál, húsnæðislán, kaup á íbúð o.fl. Verð 2000 kr. (3000 kr. fyrir hjón). Ath! Félagar í Heimilislínu borga 1500 kr. (2500 kr. fyrir hjón). Innifalin er veg- leg fjármálahandbók og veitingar. Næstu námskeið: Fjármál unga fólksins Nýtt námskeiö sem er sérstaklega ætlað fólki á aldrinum 16 - 26 ára. Tekið er á flestum þáttum fjármála sem geta komið upp hjá ungu fólki í námi og starfi. Verð 1000 kr. Innifalin er Fjármálahandbók fyrir ungt fólk og veitingar. Fjármál unglinga Fjármálanámskeiðið er fyrir unglinga á aldrinum 12 -15 ára. Þar er leiðbeint um hvernig hægt er að láta peningana endast betur, hvað hlutirnir kosta og ýmislegt varðandi fjármál sem ungling- ar hafa áhuga á að vita. Ath! Ekkert þátttökugjald. Veitingar. Fjármál heimilisins miðvikudaginn 19. febrúar kl. 18 - 22 þriðjudaginn 25. febrúar kl. 18 - 22 miðvikudaginn 26. febrúar kl. 18 - 22 Fjármál unga fólksins miðvikudaginn 12. febrúar kl. 18 - 22 fimmtudaginn 20. febrúar kl. 18 - 22 Fjármál unglinga þriðjudaginn 18. febrúar kl. 15 -18 fimmtudaginn 27. febrúar kl. 15 -18 BÚNAÐARBANKINN -traustur banki! Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráning eru í síma 525 6343.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.