Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Side 18
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1997 I lV
* n
*
*
gur í lífi
Dagur í lífi Ögmundar Jónassonar, þingmanns og formanns BSRB:
Furðulegt hvað stjórnmálamenn geta...
„Mánudagur. Ég vaknaði klukk-
an sjö að venju við fréttir í útvarp-
inu. Útvarpsklukkan er þarfaþing.
Ég dreif mig í sturtu, allt sam-
kvæmt hefð. Allir á heimilinu á
leið í vinnu eða skóla klukkan átta.
Sjálfúr reyni ég að vera mættur á
skrifstofú BSRB á þeim tíma.
Klukkutíminn á milli átta og níu er
oftast notadrjúgur. Klukkan níu er
starfsmannafúndur sem sveiflast á
milli þess að vera markviss og
skipulegur yfir í þægilegt rabb.
Þennan morgun hafði enginn tíma
til að spjalla. Við lukrnn fundinum
á kortéri og höfðu menn þá gert
grein fyrir viðfangsefnum sínum
þann daginn og lagt sameiginlega á
ráðin.
Kjaramálaumræða
Frá hálftíu til tíu aflaði ég ým-
issa gagna um kjaramál til undir-
búnings kjaramálaumræðu sem
fram átti að fara á alþingi síðar um
daginn. Klukkan tíu var fundur
með trúnaðarmönnum af stórum
vinnustað þar sem komin voru upp
alvarleg ágreiningsmál. Farið var
yfir stöðu mála og gerð áætlun um
framhald og vonandi lausn. Frá
hálfellefu var sinnt fyrirspumum
og málaleitan frá einstaklingum og
félögum um aðskiljanleg málefni.
Á baráttufundi með for-
mönnum
Klukkan ellefu var fundur for-
manna ýmissa aðildarfélaga innan
BSRB um stöðuna í kjaraviðræð-
um. Viðsemjendur okkar sækja
hart að breyta launakerfinu á þann
veg að forstjórar fái meiru ráðið
um launamyndunina en verið hef-
ur. Sá böggull fylgir skammrifi að
launauppbót forstjórans er á kostn-
að almennra grunnkaupshækkana
og þannig ávísun á kjararýmun
fyrir þorra fólks. Innan
okkar raða finnst fólki
þetta vera skref aftur í
tímann og það meira að
segja nokkuð langt aft-
ur. Við ætlum að sjálf-
sögðu ekki að láta
þessu ósvarað. Og fimd-
urinn snerist um að
ræða hvemig okkar
svari skyldi komið á
framfæri.
Klukkan tólf átti ég
síðan fund með fjár-
málasfjóra BSRB og
gjaldkera bandalagsins.
Við hittumst í hverri
viku og förum yfir fjár-
málin, staðráðin í því
að passa vel upp á þá
fjármuni sem okkur er
treyst fyrir. Upp úr
klukkan eitt var haldið
niður í þing en þar
hófst þingflokksfundur
hjá Alþýðubandalagi og
óháðum klukkan hálf-
tvö.
Batnandi
mönnum er
best að lifa
Klukkan þrjú hófst
síðan þingfundur, fyrst
fyrirspumir til ráð-
herra. Að fyrirspumar-
tíma loknum hófst ut-
andagskrárumræða um
kjaramál. Kratamir
áttu fmmkvæðið.
Stundum furða ég mig
á því hve stjómmála-
menn virðast geta vent
sínu kvæði í kross eftir
því hvort þeir eru í
stjóm eða utan stjóm-
ar. Viðfangsefni utan-
dagskrámmræðunnar
vom kjaraviðræður og
skattabreytingar síðustu ára. Krat-
amir vom mjög reiðir yfir því hve
mikið hefði verið gert á hlut launa-
fólks á síðustu árum. Batnandi
mönnum er best að lifa! Látinn það
nægja.
Samstaða sem lyftir
andanum
Umræðunni lauk rétt fyrir sex.
Ég fór með hraði upp í Ríkisútvarp
þar sem ég átti að standa vaktina á
þjóðarsálinni ásamt Grétari Þor-
steinssyni, forseta ASÍ. Inn hringdi
greinargott fólk og hvetjandi. Það
lyftir andanum að fmna til sam-
stöðu með jákvæðu fólki. Sumir
leita stöðugt fjandmanna í eigin
röðum í stað þess að beina spjótum
sínum að hinum rétta andstæðingi,
þeim sem hafa völdin á hendi og
nota þau til að skerða kjör almenn-
ings; þeim sem skammta launin -
úr hnefa. Þetta var ágæt þjóðarsál.
Á hestbaki
í Mosfellsdal
Ég borðaði kvöldmat heima í
faðmi fjölskyldunnar og hlustaði á
allan fréttapakkann til klukkan
háifiiíu, fór þá á hestbak í Mosfells-
dal ásamt eldri dóttur minni, Guð-
rúnu; ég á Frosta, hún á Mekki.
Við komum við hjá tveimur félög-
um og vinum á leiðinni heim,
Svavari hinum háða og Svanhildi
Kaaber hinni óháðu. Heim vorum
við komin klukkan hálfellefu. Átti
ég þá eftir að skrifa grein í blað
starfsmannafélags nokkurs, hafði
gleymt nauðsynlegum gögnum á
BSRB. Þangað fór ég í snarhasti og
var búinn að skrifa greinina upp úr
klukkan hálfeitt og síðan þessa sem
hér er á blaði klukkan eitt. Og það
er klukkan nú, eða tíu mínútur
yfir. Það eru sex tímar tæpir í
sjöfréttir."
Ögmundur Jónasson á ekki marga frídaga sem þingma&ur Alþý&ubandalagsins og
óhá&ra og forma&ur Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, BSRB. Hann lýsir hér einum
annasömum degi í sfnu lífi. DV-mynd GVA
Myndimar tvær virðast viö fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í Ijós að á myndinni til hægri hefúr
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfii sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi, að
verðmæti kr. 3.950, frá Bræðrunum
Ormsson, Lágmúla 8, Reykjavík.
Ég er ekkert sérlega gó&ur f samræ&ulist heldur. Hefur&u nokkuö á
móti því a& ég kfkl?
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð
nítugustu og þriðju getraun reyndust vera:
Kristín Ingunnardóttir ívar Már Ottason
Prestbakka 13 Valhúsabraut 11
109 Reykjavík 170 Seltjamamesi
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1790 - Ógnarást eftir Lindu Randall
Wisdon og Sinnaskipti eftir Lyndu
Kay Carpenter.
Vinningamir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 397
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík.