Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1997, Síða 23
fréttir'23 LAUGARDAGUR 8. FEBRUAR 1997 Dæmigerö sólarmynd sem fær alla Frónbúa til þess aö iöa í skinninu af löng- un í sól á kroppinn. f vetrartíö er ekkert einfaldara og ánægjulegra en aö hreppa vinning sem áskrifandi DV og komast þannig frítt í viku til Flórída í áskriftarferöum DV og Flugleiöa. Áskriftarferð DV og Flugleiða til Flórída: Tíu heppnir áskrifendur fá ferð fyrir tvo - allir skuldlausir áskrifendur eru í pottinum Tíu skuldlausir áskrifendur geta átt von á glaðningi frá DV og Flug- leiðum því næstu tíu vikumar verð- ur dreginn út einn heppinn áskrif- andi í hverri viku og hljóta allir ferð fyrir tvo með Flugleiðum til Flórída ásamt gistingu í eina viku. Áfangastaðurinn er ekki af verri endanum en St. Petersburg Beach í Flórída hefur orðið fyrir valinu. Hún er sannkölluð sólarparadís og einn vinsælasti áfangastaður sól- þyrstra íslendinga sem halda vestur um haf. Þar bjóðast óteijandi tæki- færi til hvers konar skemmtunar og útivistar, góðir gististaðir, yndisleg strönd, frábær aðstaða fyrir ferða- menn, þar sem allt er í boði, og hag- stætt verð. íslenskur fararstjóri verður á St. Petersburg Beach 27.5.-29.9. í ferðum sem hefjast á þriðjudögum og lýkur á mánudög- um. Fyrsti áskrifandinn verður dreg- inn út miðvikudaginn 12. febrúar þannig að það er ljóst að sólarstund- in gæti verið að nálgast fyrir þá sem eru skuldlausir áskrifendur að DV. Nöfn vinningshafa verða birt í DV- ferðum í Helgarblaði DV. DV-ferðir eru alla laugardaga í blaðinu. Þar er heimurinn kynntur fyrir öllum áskrifendum blaðsins. Alla laugardaga er umfjöllun í DV- ferðum þar sem finna má vandaðar frásagnir um ferðalög innan lands og utan. -sv ÉMfSSj ■ , ’ ' ' v '* % mKm:. jA. t ■ 1 J ; OL með bragðið í huga

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.