Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 LíV Yngsti smiðurinn sem útskrifast hefur úr sveinsprófi: Var hæstur á prófinu þrátt fyrir lesblindu Atli Erlingsson er yngsti smiður- inn sem útskrifast hefur með sveinspróf en hann er aðeins nitján ára gamall og útskrifaðist 2. febrú- ar. Það átti ekkert annað fyrir hon- um að liggia en að læra smíði, segir hann, þar sem faðir hans er húsa- smíðameistari. Atli byrjaöi ungur að starfa hjá fóður sínum og var síðan á samn- ingi hjá honum. Það er samt sem áður mjög óvenjulegt að Atla hafi vegnað svona vel þar sem hann er einnig lesblindur. Þrátt fyrir það fékk hann hæstu einkunn sem gefin var fyrir sveinsstykki sitt sem var gluggi með krosspósti og opnanlegu fagi. „Ég fór á samning strax í tíunda bekk en venjulega fer maður ekki á samning fyrr en sextán ára. Mér hefur síðan gengið mjög vel í skól- anum,“ segir Atli. Atli er uppalinn í Mosfellsbænum og heita foreldrar hans Erlingur Kristjánsson húsasmíðameistari og Ingunn Bjömsdóttir, ritari í Rima- skóla. Til Ítalíu í nám Hann er um þessar mundir í hús- gagnasmíði og klárar hana á næstu jólum ef vel gengur. Atli hefur mest- an áhuga á viðgerð á gömlum hús- um og húsgögnum og hann hyggst mennta sig frekar á því sviði. Til þess ætlar hann að fara til Ítalíu og fá að starfa á verkstæði sem sérhæf- ir sig í slíku. Hann hefur sótt um Leonardo styrkinn og verið er að vinna í því að útvega honum vinn- una. „Mér finnst miklu skemmtilegra að fást við gamla handbragðið held- ur en það nýja. Menn hafa gefið allt sitt í verkið og leggja alúð í það. Það fer eftir persónuleika manna hvern- ig þeir smíða og hvernig þeir gera við hlutina. Maður verður að hafa ákveðna smekkvísi og þekkja við- komandi stíl á húsgögnunum," seg- ir Atli. Atli segir að lesblindan hafi auð- vitað háð sér en hún uppgötvaðist ekki fyrr en hann kláraði tíunda bekkinn. Hann segist nota þær að- ferðir sem lesblindir nota en það er hlustun. Hann gæti aldrei komist i gegnum allt námsefnið þar sem hann sé miklu lengur að lesa en þeir sem ekki eru les- blindir. „Þegar ég var þrettán ára var ég sett- ur í hálf- gerðan tossabekk en þaðan fékk ég ágætis ein- kunnir. Þegar hann var síðan í tíunda bekk var ég á meðal Atli Erlingsson hyggst læra aö gera upp gömul húsgögn og hús. hraða í skólanum,“ segir Atli. Ef lesblindan heiði greinst fyrr þá hefði Atli strax feng- ið sérkennslu við hæfi. Þetta sýnir mikil- vægi þess greina lesblindu strax í bama- I skóla svo börnin þurfi ekki að ganga í gegnum það að vera sett í tossabekk með öllu sem því fylgir. DV-mynd þök éerlend bóksjá Metsölukiljur • • • • •• •••••••♦♦ Bretland Skáldsögur: 1. Graham Swlft: Last Orders. 2. Mlchael Ondaatje: The Engllsh Patlent.(Kvlkm.útgáfa) 3. Mlchael Ondaatje: The Engllsh Patlent. 4. Tom Clancy & Steve Plecenlk: Op Centre: Acts of War. 5. Nick Hornby: Hlgh Fldellty. 6. Hugh Laurle: The Gun Seller. 7. Mlchael Klmball: Undone. 8. Catherlne Cookson: The Upstart. 9. Nlcholas Evans: The Horse Whlsperer. 10. Robert Jordan: A Crown of Swords. Rlt almenns eðlls: 1. Blll Bryson: Notes from a Small Island. 2. John Gray: Men Are From Mars, Women Are From Venus. 3. Paul Wllson: A Llttle Book of Calm. 4. Grlff Rhys Jones rltstjórl: The Natlon's Favourlte Poems. 5. Alan Bennett: Wrltlng Home. 6. D.J. Goldhagen: Hltler's Wllllng Executloners. 7. Nlck Hornby: Fever Pltch. S. Sebastlan Faulks: The Fatal Engllshman. 9. Fergal Keane: Letter to Danlel. 10. Lorenzo Carcaterra: Sleepers. Innbundnar skáldsögur: 1. Wllbur Smlth: Blrds of Prey. 2. Patrlcla D. Cornwell: Hornet's Nest. 3. Arthur C. Clarke: 3001: The Flnal Odyssey. 4. Kate Atklnson: Human Croquet. 5. Mary Wesley: Part of the Fumlture. Innbundln rlt almenns eölls: 1. Dava Sobel: Longltude. 2. Tlm Smlt: The Lost Gardens of Heligan. 3. Anne Frank: Dlary of a Young Glrl. 4. Scott Adams: The Dllbert Prlnclple. 5. Klngsley Amis: The Klng's Engllsh. (Byggt á Tho Sunday Tlmes) Soyinka ákærður Nigeríska nóbelskáld- ið Wole Soyinka, sem flúði heimaland sitt með leynd fyrir rúmum tveimur árum af ótta við yfirvofandi handtöku og fangelsun af hálfu her- foringjastjórnar lands- ins, hefur notað veru sína í útlegð til að vekja athygli umheimsins á hroðalegu ástandi í Ni- geríu. Nú hafa stjórnvöld í höfuðborginni Lagos gripið til gagnráðstafana og ákært Soyinká, og fjórtán kunna samherja hans í pólitiskri lýðræð- ishreyfingu, fyrir hryðjuverk. Þyngsti dómur fyrir þann verkn- að sem þeir eru ákærðir fyrir er líflát. Soyinka hefur vísað á bug öllum ásökunum stjórnvalda um aðild að hryðjuverk- um og segir þær sakir upplognar. Soyinka, sem hefur um langt árabil verið kunnur í heimalandi sínu fyrir leikrit sín og sögur, hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1986. Síðustu árin hefur hann öðru fremur einbeitt sér að pólitískri baráttu gegn herforingja- stjórn landsins. Ný bók um ástandið Soyinka hefur verið óþreytandi að ræða um hörmungamar í heima- landi sínu á fúndum og ráðstefnum viða um heim síðustu misseri, en hann ferðast um á vegabréfi frá Sameinuðu þjóðunum. Hann sendi einnig frá sér fyrir nokknnn mánuðum bók um ástand- ið. Hún nefnist: „The Open Sore of a Continent: A Personal Narrative of the Nigerian Crisis". Þar rekur Wole Soylnka - landflótta nóbelskáld. hann þróun mála i Nígeriu frá þvi herforinginn Sani Abacha hrifsaði völdin í sínar hendur árið 1993. Her- foringjastjóm hans hefur barið allt andóf niður með harðri hendi. Þess er skemmst að minnast að hann lét taka rithöfundinn Ken Aaro-Wiwa Umsjón Elías Snæland Jónsson af lifi í nóvember árið 1995 ásamt átta öðrum leiðtogmn Ogonis-ætt- bálksins, en sú þjóð hefur fengið sérstaklega slæma út- reið hjá herforingja- stjórninni, með dyggi- legri aðstoð auðhringa á borð við hið alþjóðlega Shell-fyrirtæki. I kjölfar þessara aftaka setti Evr- ópusambandið, og reyndar fleiri ríki, vopnasölubann á Níger- íu og hætti allri efna- hagsaðstoð en herfor- ingjastjómin hefur enn frjálsar hendur um olíu- sölu til annarra landa. Fjölskyl ognað Idunni Soyinka sagði í ný- legu blaðaviðtali að hon- um þætti það mjög leitt að geta ekki farið heim, ekki síst vegna þess að útsendarar herforingja- stjórnarinnar væra farnir að ógna fjölskyldu hans og vinum. „Það er auðvitað dap- urlegt að geta ekki fariö heim vegna þess að morðsjúkur asni hefur tekið völdin í landinu. En ég get ekki gert sjálfan mig að fanga Abacha. Það myndi gera alla alla starfsemi mina og sköpun marklausa,“ sagði hann og bætti því við að það hlytu alltaf að fylgja því hættur að berjast fyrir lýðræði í einræðisríki. Vegna þessara nýju hótana hefði hann hækkað líftrygg- ingu sína til að tryggja að sínir nán- ustu hefðu tekjur til að lifa á ef eitt- hvað kæmi skyndilega fyrir sig. Þá hefur Soyinka svarar árásun- um á sig með því að undirbúa máls- höfðun á hendur Abacha og banda- ríska blaðinu The Washington Post fyrir að hafa kallað sig „hryðju- verkamann" opinberlega. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grlsham: Runaway Jury. 2. Wally Lamb: She's Come Undone. 3. Tom Clancy & Steve Pleczenlk: Acts of War. 4. Ursula Hegi: Stones From the Rlver. 5. LaVyrle Spencer: The Camden Summer. 6. Davld Baldacci: Absolute Power. 7. Taml Hoag: Gullty as Sin. 8. Mlchael Ondaatje: The Engllsh Patlent. 9. Stephen Whlte: Harm's Way. 10. Heather Graham: Rebel 11. Marlo Puzo: The Last Don. 12. Judlth Krantz: Sprlng Collectlon. 13. Llllan Jackson Braun: The Cat Who Sald Cheese. 14. Jane Hamllton: The Book of Ruth. 15. Sandra Brown: Love’s Encore. Rit almenns ebiis: 1. Jonathan Harr: A Clvil Actlon. 2. Mary Plpher: Revlvlng Ophella. 3. Jon Krakauer: Into the Wlld. 4. Danalel Jonah Goldhagen: Hitler's Wllllng Executloners. 5. Thomas Cahlll: How the Irlsh Saved Clvllizatlon. 6. C. A. Darden & J. Walter: In Contempt. 7. James McBride: The Color of Water. 8. Howard Stern: Private Parts. 9. Kay Redfield Jamlson: An Unqulet Mlnd. 10. Andrew Well: Spontaneous Heallng. 11. Joseph D. Plstone & R. Woodley: Bury Me Standlng. 12. Mary Karr: The Uar’s Club. 13. Dava Sobel: Longltude. 14. Carmen R. Berry & T. Traeder: Glrlfrlends. 15. Chrlstopher Andersen: Jack and Jackle. (Byggt á New York Tlmes Book Revlew)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.