Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Blaðsíða 34
42
Hætta á ferð
Bent hefur verið á það í dag-
blöðum í Þýskalandi að hættu-
ástand hafi myndast víða á
flugumferðarsvæðum þýskra
flugvalla. Hættuástandið hefur
myndast vegna siaukinnar um-
ferðar smærri flugvéla sem
trufla flugumferð stórra far-
þegaþotna. Flugmenn minni
flugvéla eru gjarnir á að virða
ekki almennar reglur um flug-
hæð við flugvellina. Bent hefur
verið á að flugmenn á stórum
þotum hafi litla möguleika á að
afstýra árekstri vegna þess hve
stórar vélamar eru.
Opnar á ný
Yosemite-þjóðgarðurinn
frægi í Bandaríkjunum hefur
verið opnaður ferðamönnum á
ný en undanfarna mánuði hef-
ur hann verið lokaður vegna
flóðaskemmda á vegum og
mannvirkjum.
Stöðva hraðlest
Verkamenn í Renault-verk-
smiðju í bænum Vilvoorde í
Belgíu stöðvuðu Eurostar-hrað-
festina á milli London og
Briissel með því að hlaða inn-
kaupakörfum á járnbrautatein-
ana. Verkamenn vildu, með að-
gerðum sínum mótmæla áform-
um Renault-bílaverksmiðjanna
um að loka útibúinu í Vilvoor-
de í júlímánuði næstkomandi.
Stór sekt
Yfirvöld í Bandaríkjunum
hafa sektað flugfélagið Alaska
Airlines um 50 milljónir króna
fyrir að hafa ekki staðið nægi-
lega vel að viðgerð á lendingar-
búnaði Boeing 737 200 þotu fé-
lagsins og fyrir að hafa sett
hana í notkun án þess að hún
fullnægi öryggiskröfum.
Bandaríkjamenn eru þekktir
fyrir mjög strangt eftirlit í flug-
málum.
Miami Vice
Miami-borg á Flórída komst
í fréttirnar á árunum 1992-93
þegar sagt var frá síendurtekn-
um ofbeldisárásum misindis-
manna á ferðamenn sem kost-
aði margan ferðamanninn líf-
ið. Lögreglan tók til hendinni
og tókst að uppræta þetta
vandamál að mestu leyti á sín-
um tíma. Nýverið hefur þó far-
ið að bera á ofbeldisárásum á
ferðamenn á ný, aðallega í
námunda við flugvöll borgar-
innar. Lögreglan segist gera
sitt besta til að handsama of-
beldismennina.
Grænland í sviðsljósi
Grænland hefur verið tölu-
vert í sviösljósi fjölmiðla vegna
þess að kvikmyndin „Miss
Smilla’s Feeling for Snow“,
sem að mestu gerist á Græn-
landi, hefur verið tekin til sýn-
inga víða um lönd. Þetta er
sannkölluð stórmynd með
frægum leikurum í aðalhlut-
verki, Gabriel Byme og Juliu
Ormond. Kvikmyndin var
frumsýnd fyrir stuttu og er nú
til sýninga í einum 25 löndum.
Ferðamálayfirvöld í Grænlandi
ætla að fylgja þessu vel eftir og
hafa prentað auglýsingabæk-
linga mn Grænland sem dreift
er ókeypis til kvikmyndagesta.
Hjólreiðatúr á eyðilendum
- eru íslendingar ómannblendnir?
Síðastliðið sumar kom danski
heimildakvikmyndagerðarmaður-
inn Stig Hartkopf hingað til lands
og eyddi hér nokkmm vikum á hjól-
fáki sínum og hjólaði yfir 600 km
leið. í sömu ferð fór hann til Fær-
eyja í sömu erindagjörðum og gerði
jafnframt heimildamynd um ferðir
sínar til þessara eyja, íslands og
Færeyja.
Heimildamyndin gefur ansi mis-
jafna mynd af íslandi og íslending-
um og Færeyingar fá svipaða eink-
unn. „Ég verð að segja það hreint út
að ég held að eina leiðin til þess að
halda það út að búa á þessum stöð-
um sé að vera innfæddur,“ segir
Stig Hartkopf í heimildamynd
sinni. Frá því er greint í danska
dagblaðinu Morgenavisen Jyllands-
Posten í heilsiðugrein (22. mars
1997). Fyrir nokkmm áram fór Stig
Hartkopf í hjólreiðatúr um Kúbu og
gerði heimildakvikmynd um ferðir
sínar þar. Sú mynd vakti mikla at-
hygli og hefur verið sýnd víða í
Evrópu.
Hartkopf hefur alla tíð verið
heillaður af þjóðfélögum sem á ein-
hvem hátt era einöngruð og sérstök
og „af þeim sökum" urðu Island og
Færeyjar fyrir valinu hjá honum
síðastliðið sumar.
Hartkopf segist hafa gert sér háar
hugmyndir um þjóðfélagið og
menninguna á íslandi og Færeyjum
en hafi orðið fyrir töluveröum von-
brigðum. „Þetta eru afskaplega
daufleg þjóðfélög og ekkert gerist á
þessum slóðum," er haft eftir Hart-
kopf í greininni.
Hartkopf kvartar nokkuð undan
því að honum hafi gengið erfiðlega
að ná sambandi við fólk á íslandi.
íslendingar era jafnvel stirðari í
samskiptum en Færeyingar. Enda
er það ekki nema von. Það er lítið
um að vera utan höfuðstaðarins á
íslandi og á landsbyggðinni fer
mestallt lifið fram innandyra. „Ég
saknaði þess mjög að sjá nánast
ekkert fólk á mínum löngu hjól-
reiðatúram. Þegar ég hjólaði i gegn-
um byggðarlög stóð fólk bak við
gardínumar í húsunum sínum og
starði á mig. Ef ég veifaði því hrökk
það aftur á bak við gluggatjöldin.
Það var virkilega niðurdrepandi.
Fyrir utan Reykjavík eru íslend-
ingar ekki vanir að tala við ókunn-
uga. Sem hjólreiðamaður hittir
maður nánast engan til að tala við,
nema ef vera skyldi aðra útlend-
inga. íslendingar, jafnt og Færey-
ingar, nota bilinn til að ferðast,
jafnvel þó að þeir þurfi aðeins að
skreppa 200 metra út í búð.“
Misjafnar skoöanir
Þessar lýsingar Hartkopfs eru
ekkert sérstaklega jákvæðar fyrir
landann, sérstaklega þegar tekið er
tillit til afstöðunnar gagnvart ferða-
mönnum. Nú era margir eflaust
ekki sammála Hartkopf í lýsingum
sínum og þeir era margir sem telja
að við íslendingar séum yfírleitt
mjög alúðlegir og hjálplegir við er-
lenda ferðamenn. En ef til vill leyn-
ist sannleikskom í því sem Hart-
kopf segir.
Undanfarin ár hefur verið lögð
mikil áhersla á að efla ferðamanna-
þjónustu í landinu og margt hefur
áunnist í því efni. Ferðamönnum
hingað til lands fjölgar stöðugt og
gjaldeyristekjurnar að sama skapi.
En ferðamaður sem mætir „fjand-
samlegu" viðmóti hefur lítinn
áhuga á því að koma aftur og hann
segir einnig kunningjum sínum frá
því hvaða móttökur hann fékk. Orð
Hartkopfs era því umhugsunarefni
fyrir íslendinga og þá sérstaklega
þá sem starfa að ferðaþjónustumál-
um. -ÍS
Undanfarin ár hefur veriö lögö mikil ahersla á aö efla feröamannaþjónustu á íslandi og margt hefur áunnist í því efni.
DV-mynd ÍS
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
Baðstrandargæði
Wales er með bestu bað-
strendur Bretlandseyja. Sam-
tökin TBG (Tidy Britain Group)
hafa látið gera úttekt á sólar-
ströndum á Bretlandseyjum og
þeirra niðurstaða er á þá leið á
baðstrendur í Wales séu yfir-
leitt þær bestu á Bretlandseyj-
Íum, þegar tillit er tekið til allra
þátta, svo sem mengunar, gæða
sands og þjónustu sem veitt er á
svæðinu. Strendur við Great
Yarmouth og Rhyl voru sérstak-
lega nefndar, en fjölsóttasta
baðströndin, við borgina Black-
pool, kemst ekki á listann yfir
bestu strendurnar.
Fimmtudagsflug
Grænlenska flugfelagið
Greenlándair ætlar að hefja
vikulegt flug milli Narsarsuaq
Iog Kaupmannahafhar í sumar
og áformað er að fljúga alla
fimmtudaga. Einnig er flogiö
að sumarlagi á laugardögum
og þriðjudögum á þessari leiö.
Arctic '97
Grænlendingar ætla að
halda alþjóðlega skíðagöngu-
keppni á Grænlandsjökli í apr-
ílmánuði og skráningarfrestur
er nú þegar útrunninn. 110
Iskiðamenn frá 14 löndum hcifa
tilkynnt þátttöku sína, meðal
annars norsku heimsmeistar-
amir Vegard Ulvang og Grete
Nykkelmo og svissneski meist-
arinn Koni Hallenbarter.
Sænskar og danskar sjónvarps-
stöðvar ætla að fylgjast náið
með keppninni.
„Hvað segirðu, kom
nafnið mitt upp þegar
dregið var í sólarpott-
inum?“ spurði Dagur
Kristmundsson, at-
vinnurekandi á Egils-
stöðum. „Það var
skemmtilegt að heyra
og eiginkonan, Þuríð-
ur Kolbrún Ingólfs-
dóttir, verður öragg-
lega ánægð með þær
fréttir því hún verður
nefnilega fimmtug á
morgun (fimmtudag-
inn 3. apríl).“
Dagur Kristmunds-
son er skuldlaus
áskrifandi að DV og
nafn hans kom upp er
vinningshafi vikunnar
var dreginn út síðast-
liðinn miðvikudag.
Þau hjónin fá í vinn-
ing ferð fyrir tvo í
viku til St. Petersburg
Beach á vesturströnd
Flórída, með hóteli og
íslenskri fararstjóm.
„Það mætti segja
Dagur Kristmundsson og Þuríöur Kolbrún Ingólfsdóttir, vinnings-
hafarnir í sólarpotti DV og Flugleiöa, hafa safnaö DV frá því þaö
byrjaði aö koma út.
mér að DV hafi verið
að launa mér fyrir
söfnunaráráttu mína
en ég hef safnað DV
alla tíð frá fyrsta degi,
eftir að blaðið byrjaði
að koma út. Ég á
meira að segja tvö
stykki af fyrsta ein-
taki blaðsins. Ég hef
alltaf fengið blaðið í
áskrift en vantaði
reyndar sjötta eintak-
ið á sínum tíma. Því
varð ég að bæta í safn-
iö og varð að punga út
einum 1400 krónum
fyrir það eintak til að
fullkomna safnið."
Dagur segist aldrei
hafa fengið neina
happdrættisvinninga
áður, utan nokkra
smávinninga. Nú
væri aðalmálið að
finna sér einhvern
tíma til að skreppa í
sólina á Flórída. -ÍS
Vegabráfsáritun
Svíar og Eistar hafa náð sam-
komulagi um afnám vegabréfsá-
ritunar milli landanna.
Torfærutröll
Grænlendingar hafa fjárfest i
tveimur torfærujeppum að ís-
lenskri fyrirmynd sem ætlaðir
eru til nota, bæði að sumar- og
vetrarlagi, í jöklaferðir fyrir
ferðamenn. Áformað er að fara
í ferðir á þessum jeppum frá
flugstööinni við Kangerlussuaq
á vesturströndinni. Grænlend-
ingar era mjög hrifnir af þess-
um jeppum og getu þeirra í
akstri og áforma kaup á fleiri
jeppum í framtiðinni.
Malaría
Borist hafa tilkynningar um
fiölgun malariutilfella í Taí-
I landi á síðasta ári og vora í því
landi skráð 2646 tilfelli veikinn-
ar. Þau greindust flest á land-
svæðum sem liggja að Kambó-
díu, en tölur frá því landi um
malaríu liggja hins vegar ekki á
lausu.
Vindasamt
Funchal-flugvellinum á eynni
Madeira hefur þurft að loka
nokkrum sinnum undanfama
daga vegna óvenjumikils hvass-
viðris.
Beita sektum
Um nokkurt skeið hafa verið
í gildi reglur sem banna akstur
stórra flutningabifreiða á
sunnudögum og almennum frí-
dögum í Frakklandi. Fram að
þessu hefur enginn, sem brotið
hefur þessar reglur, verið
sektaður, en héðan í frá verða
ökumenn sektaðir um sem nem-
ur 11.000 krónur.
. v/, -I
m.__
Sólarpottur DV og Flugleiöa:
Hefur safnað DV frá upphafi