Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
Fjöldi hneykslismála skekur breska íhaldsflokkinn:
Þriggja barna faðir í
ástarsambandi við annan
Páskavikan var ömurleg hjá
breskum íhaldsmönnum. Á mánu-
deginum dró fyrrum ráðherrann
Allan Stewart sig í hlé úr kosninga-
baráttunni eftir að hafa viðurkennt
að eiga við ofdrykkjuvandamál að
stríða og hafa átt í ástarsambandi
með blondínu sem hann hitti á með-
ferðarstöð.
Á miðvikudeginum sagði þing-
maðurinn og fyrrum ráðherrann
Tim Smith af sér. Hann viður-
kenndi að hafa þegið fé fyrir að bera
upp fyrirspurnir í þinginu fyrir eig-
anda Harrods-vöruhússins. Farið
var að hitna undir Smith og hann
kaus að verða fyrri til áður en menn
á toppnum bæðu hann að fara frá.
Á skírdag birtu bresk blöð fréttir
af ástarsambandi þingmannsins Pi-
ers Merchants, sem er kvæntur
maður, og 17 ára gamaUai- fram-
reiðslustúlku, Önnu Cox. Á föstu-
daginn langa neitaði Merchant að
segja af sér þrátt fyrir þrýsting frá
áhrifamönnum í flokknum og vísaði
ásökununum á bug.
Leiddur í gildru
með kossi
Anna Cox kallaði hann lygara.
Merchant hélt því fram að hann
hefði aðeins þekkt Önnu í skamman
tíma og að hún hefði endilega viljað
fara um með honum og safha at-
kvæðum. Hún hefði síðan kysst
hann opinberlega og hann hefði
leyft það. Hins vegar hefði ekki ver-
Erlent fréttaljós
á laugardegi
ið um neitt kynferðislegt samband
að ræða. Merchant fullyrðir að
hann hafi verið leiddur í gildru.
Viðbrögð Johns-Majors forsætis-
ráðherra voru þessi: „Ætla þeir
aldrei að læra? Gera þeir sér ekki
grein fyrir því að það er ljósmynd-
ari á bak við hvern einasta runna?“
í kjölfar þessara atburða jókst
þrýstingurinn á þingmanninn Neil
Hamilton að víkja vegna ásakana
um að hafa þegið fé fyrir að bera
upp spumingar á þingi.
Dapurlegur afmælisdag-
ur
forsætisráðherrans
John Major forsætisráðherra
varð 54 ára síðastliðinn laugardag.
Dagurinn varð ekkert sérstaklega
ánægjulegur. Frambjóðandinn Sir
Michael Hirst, sem er kvæntur
þriggja bama faðir, viðurkenndi að
hafa átt í ástarsambandi við annan
karlmann. Hann fór síðan í felur
með eiginkonu sína og börnin þrjú.
Major er sagður hafa verið æfur
yfír því að kosningabarátta hans
skyldi enn einu sinni hefjast með
hryllilegum hneykslismálum íhalds-
manna. Þingmönnum hafði verið
fyrirlagt að haga sér ekki einungis
vel meðan á kosningabaráttunni
stæði heldur þyrftu þeir einnig að
láta það sjást að þeir höguðu sér vel.
Fyrirlitinn Egypti
hefnir sín
Með því að rjúfa þing næstum sex
vikum fyrir kosningarnar, sem fara
fram 1. maí næstkomandi, tókst
Major að minnsta kosti að komast
hjá umfjöllun um viðamikla skýrslu
þar sem fjallað er um mútuþægni
tíu þingmanna.
Aðalmaðurinn í mútumálinu er
kaupsýslumaðurinn Mohamed A1
Fayed sem er Egypti. Áhrifamenn 1
bresku viðskiptalífi fyrirlíta hann
þar sem hann keypti Harrods-vöru-
húsið í London beint fyrir framan
nefið á breskum keppinautum sín-
um.
A1 Fayed dreymir um að verða
breskur ríkisborgari og afhenti
reglulega nokkrum þingmönnum
neðri deildar breska þingsins um-
slög með þúsund punda seðli gegn
því að þeir bæru fram hinar og
þessar fyrirspumir á þinginu.
Þegar umsókn hans um að verða
breskur ríkisborgari var hafnað
reiddist hann bresku ríkisstjórn-
inni svo heiftarlega að hann greindi
fjölmiðlum frá fjárhagsstuðningi
sínum við þingmenn neðri deildar-
innar en þeir höfðu haldið „launa-
greiðslunum" frá honum leynileg-
um.
Ekkert ólöglegt
Þingmaðurinn Tim Smith, sem
var upprennandi stjarna í breska
íhaldsflokknum eins og Neil
Hamilton, viðurkennir að hafa þeg-
ið allt að 25 þúsund pund frá A1
Fayed. Hann kveðst hins vegar ekki
hafa framið neitt ólöglegt. Hamilton
vísar harðlega á bug ásökunum Als
Fayeds um að hafa þegið enn meira
fé auk gistingar oftar en einu sinni
á Ritz hótelinu í París sem Fayed á.
Hamilton er einnig sakaður um að
hafa haldið leynilegum greiðslum
frá öðrum sérhagsmunapoturum.
Hvað vissi Major?
Major, sem hingað til hefur ekki
tengst fyrri spillingarmálum stjóm-
arflokksins, er í þetta sinn sakaður
um að hafa í tíu daga vitað um ólög-
Breskir fjölmiölar birtu þessa mynd
af Piers Merchant, þingmanni
breska íhaldsflokksins, og Önnu
Cox, 17 ára framreiöslustúlku.
Merchant kveöst hafa veriö leiddur í
gildru.
legar greiðslur Als Fayeds til Tims
Smiths án þess að hafa gripið inn í.
Smith sté úr stóli aðstoðarráðherra
eftir að dagblaðið The Guardian
hafði haustið 1994 skrifað um ásak-
anir Als Fayeds. Major hefur lagt
áherslu á að Smith hafi vikið eins
fljótt og auðið var úr embætti eftir
að Major frétti af málinu.
Verkamannaflokkurinn hefur
krafist þess að þing verði kallað
saman á ný fyrir kosningamar til
þess að fjalla um skýrsluna. Major
hefur vísað kröfunni á bug
og segir hana pólitískt
bragð.
Reyndar eru kjósendur
þeirrar skoðunar að stjóm-
málamenn í öllum flokkum
hreiðri vel um sig. En skipu-
leggjendur kosningabaráttu
Verkamannaflokksins eru
vissir um að spillingarmálin
kyndi undir þeim skoðunum
að kominn sé tími til breyt-
inga og komi í veg fyrir að
íhaldsmenn, sem þegar hafa
yfirgefið flokkinn, skipti aft-
ur um skoðun. „Breska þjóð-
in er húin að fá nóg,“ segja
menn í Verkamannaflokkn-
um. „Og íhaldsmenn sjá
sjálfir um vinnuna fyrir
okkur. Spillingin loðir við
þá eins og drulla."
Sunday Times, Jyllands-
Posten og News of the
World.
Piers Merchant, þingmaöur íhaldsflokksins í Bretlandi, ásamt Helen eiginkonu sinni.
Merchant var valinn frambjóöandi flokksins í kjördæmi sínu þrátt fyrir háværar kröf-
ur um aö hann segöl af sér vegna ástarsambands viö 17 ára framreiöslustúlku.
Símamynd Reuter
Afb.verð Stgr. verð
Nýjatækið Gainlatækið Samtals
MÖGULEtKAR
Settu gamla heimilistækið þitt upp í nýtt Candy heimilistæki !
ný tæki
PFAFF
Ef þú kaupir þvottavél sem kostar
6.000,-
8.000,-
10.000,-
44.000,-
42-67.000,-
65.000,-
1000 sn. þvottavéi
Gamla vélin þín
Samtals:
57.900, -
8.000,-
49.900, -
53.850, -
8.000,-
45.850, -
Að 50.000,-
50-75.000,-
Frá 75.000,-
6RENSÁSVEGI 13
SÍMI 533 2222