Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 5. APRIL 1997 41 Meinlausar dýraveiðar Veiðieðlið er ríkt í mannskepn- unni og alltaf er til nóg af mönnum sem vilja borga stórfé fyrir að fá út- rás fyrir veiðieðli sitt. í sumum til- fellum er það engum vandkvæðum bundið þar sem veiði á dýrategund- um hefur litil áhrif á náttúruna. En oft beinist áhugi veiðimanna að dýr- um sem eru í útrýmingarhættu og það skapar mikil vandamál þegar veiðimenn láta sér ekki segjast. Veiðar á fjölmörgum dýrategund- um eru bannaðar vegna náttúru- vemdarsjónarmiða en ákaflr veiði- Þegar fíliinn er kominn í skotfæri er baunað á hann með máiningarbyssunni og afleiðingin er ekki banvænt sár heldur hressileg, bleik málningarklessa. menn láta sig oft reglur engu skipta og kæra sig kollótta. í þeim tilfellum er oft blóðug barátta milli dýra- vemdunarsinna og veiðimanna. Al- þekkt em dæmin frá Afríku um veiði á fílum, nashyrningum, górill- um og fjöldamörgum öðrum tegund- um sem hafa verið í útrýmingar- hættu áratugum saman. Málning og byssur Nýverið var bryddað upp á skemmtilegri nýjung í Simbabve, á víðáttumiklum landsvæðum nálægt Viktoríufossunum, en þau eru heim- kynni margra stærstu villtu fíla- hjarða heims. Ágjamir veiðimenn, eða öllu heldur veiðiþjófar, hafa lengi dundað sér við þann ljóta leik á þessu svæði að skjóta fila sér til skemmtunar við litla hrifningu yfir- valda og náttúruverndarsinna. Búgarðseiganda á þessu svæði, Adrian Read, datt í hug það snjall- ræði að bjóða áhugasömum veiði- mönnum upp á veiðitúra með byss- ur að vopni - og einnig myndavélar. í stað þess að byssumar séu hlaðn- ar banvænum kúlum em þær fyllt- ar bleikri málningu. „Veiðimenn- imir“ haga sér á nákvæmlega sama hátt og veiðimenn í fymdinni meö sín banvænu vopn og fá alla þá spennu sem því fylgir. Þegar fillinn er kominn í skotfæri er baunað á hann með málningar- byssunni og afleiðingin er ekki ban- vænt sár heldur hressileg bleik málningarklessa. Síðan er að reyna að ná mynd af „skotinu" til að sanna að bráðin hafi „náðst“. í hverri veiðiferð eru með í för þraut- þjálfaðir veiðimenn sem hafa ban- vænar fílabyssur með sér. í þeim til- vikum þar sem filarnir ráðast á fólk (sem er sjaldgæft) eru veiðimenn- imir baktryggingin. Málningin í byssunum er þeim eiginleikum búin að hún hverfur á nokkrum klukkustundum með svit- anum frá skepnunni. Málningin pirrar fílana á engan hátt og ekki er hætta á að hún mengi vatnsból. Bú- garðseigandinn Adrian Read datt niður á þessa hugmynd þegar hann las um niðurstöður könnunar sem gerð var í Evrópu. í þeirri könnun kom fram að fjöldi fólks hefúr áhuga á dýraveiðum en flestir láta þær ekki eftir sér vegna dýravemdunar- sjónarmiða. Náttúruverndarsinnar eru mjög hrifnir af uppátæki Reads, enda hef- ur dregið úr raunverulegum veiði- þjófnaði síðan þessar nýju veiöiaö- ferðir voru teknar upp. Einfalt mál ætti að vera að uppfæra þessa veiði- aðferð á aðrar dýrategundir og mætti haga magni málningarinnar í sam- ræmi við stærð veiðidýrsins. ÍS 6 daga sigling um Malakkaflóann: Undur Asíu Óhefðbundnar slóðir þar sem möguleiki er að kynnast ólíkum menningarheimum og frábmgðnum lífsháttum njóta sífellt meiri vin- sælda hjá íslenskum ferðalöngum. íslenskar ferðaskrifstofur leggja sí- fellt meiri áherslu á sérferðir á staði sem hingað til hafa aðeins verið til í hugarheimi landans. í sérferðabæklingi Samvinnu- ferða-Landsýnar er getið um eina slíka, draumasiglingu um Malakkaflóann með heimsókn til eyjarinnar Balí í Indónesíu dagana 25. september til 9. október. Farar- stjóri i þeirri ferð er Friðrik Har- aldsson. Þeir em nú orðnir nokkur hundmð íslendingarnir sem prófað hafa að fara í draumasiglingu á Karíbahafi en þessi draumasigling er á allt aðrar slóðir. Ólík þjóöarbrot Ferðatilhögun er þannig að flogið er frá Keflavík til London með Flug- leiðum 25. september og þaðan áfram til Singapúr með Singapore Airlines. SA hefur árum saman ver- ið talið meðal bestu flugfélaga í heiminum. Komið verður til Singap- úr kvöldið 26. september og gist á fjögurra stjömu hóteli. Daginn eftir verður farið í hálfs dags skoðunarferð um borgina. Þar ægir saman ólíkum þjóðarbrotmn sem hefur á aðdáunarverðan hátt tekist að lifa saman í sátt og sam- lyndi. Meðal þess sem heimsótt verður er dýragarður, Kínahverfið, veitingastaðir frá öllum heimshom- um og íjölbreytt næturlíf. Sunnudaginn 28. september hefst síðan ævintýrasiglingin frá Singapúr með skemmtiferðaskipinu Superstar Gemini. Þar er aðbúnað- ur allur fyrsta flokks: veitingastað- ir, barir, setustofur, spilavíti, diskó- tek, karaoke, spilaherbergi, kabar- ett, verslanir, hlaupabraut, sund- laug, nuddpottur og margt fleira. Siglingin hefst á ferð norður Malakkaflóa. Daginn eftir er komið til Port Klang í Malasíu og þaðan er boðið upp á skoðunarferðir til höf- A milli þess að siglt er á milli áhugaveröra staða er upplagt að slappa af í sólinni. uðborgarinnar Kuala Lumpur. Um nóttina er siglt norður með fram Malasíuskaganum. Fegursta eyjan Þriðjudaginn 30. september er komið til Langkawi-eyjanna sem liggja nyrst í Malasíu og em frægar fyrir drifhvítar strendur sínar. Dag- inn eftir er komiö til Phuket, feg- Óheföbundnar slóöir þar sem möguleiki er að kynnast ólíkum menningarheimum og frábrugðnum lífsháttum njóta sífellt meiri vinsælda hjá íslenskum feröalöngum. urstu eyjar Taílands, og næsta dag siglt í suður í átt til Singapúr. Um kvöldið er hátíðarkvöldverður í boði skipstjórans. Síðdegis 3. októ- ber er komið til Singapúr, flogið þaðan beint til Balí og lent þar um kvöldmatarleytið. Dvalið verður þar næstu 6 næturnar á Sanur Beach, fyrsta flokks strandhóteli. Boðiö verður upp á fjölda skoðunarferða á þeim tíma. Balí er fögur eldfjallaeyja austur af Jövu og menningin þar hefur ekki orðið fyrir miklum vestrænum áhrifum. Innfæddir geisla af hlýju viðmóti og listfengi þeirra er meira en menn eiga að venjast. Þar má sjá heilu byggðarlögin sem sérhæfa sig í hvers konar iðnaði: silfursmíði, tréútskurði, listmálun eða öðrum skemmtilegum listgreinum. Að sjálf- sögðu fá ferðalangamir að kynnast „morgunleikfimi" innfæddra, bar- ongdansinum, sem stiginn er af áköfum trúarhita. Fimmtudaginn 9. október, síödeg- is, er flogið til Singapúr og áfram til London og komið þangað fóstudag- inn 10. október. Flogið verður til Keflavíkur samdægurs. Verð á mann í tvíbýli er 194.900 krónur. Innifalið í því gjaldi er flug, akstur til og frá flugvelli erlendis, gist- ing/morgunverður á Balí, skemmti- siglingin með fullu fæöi, hafnar- gjöld, hálfsdags skoðunarferð í Singapúr og íslensk fararstjórn. Flugvallarskattar og forfallagjald er ekki innifalið. -ÍS Tími til kominn Spánverjar hafa loksins látið undan kröfum fólks um að hætta ógeðfelldum dýraslátrmium sin- um sem hefð er fyrir í nokkrum héruðum landsins. Spánverjar hafa til dæmis slátrað geithafri á hveiju ári með því að henda honum niður úr kirkjutumi. í öðru þorpi er asni dreginn nauö- ugur um stræti og líftóran murk- uð úr honum með því að hella hann fullan af léttvíni. Nú er búið að setja lög sem banna þessi óvinsælu dráp á dýrum og liggja háar sektir viö því að bijóta gegn lögunum. Sökudólgar verða sektaðir um 1,4 milljónir króna ef þeir verða uppvísir að því að bijóta þessi lög. Ovinsæll skattur Viktoríufossar í Afríku hafa alla tíð dregið að sér mikinn fjölda ferðamanna. Fossarnir eru á landamærum Simbabve og Zambíu. Þeir eru stórfengleg- ir mjög og sums staðar með yfir 100 metra vatnsfall. Fossarnir þykja tilkomumestir séðir frá Simbabve og yfirvöld í landinu sjá sér hag í því til að blóð- mjólka ferðamenn sem koma til að skoða þetta náttúruundur. Nýverið settu yfirvöld í Simbabve óvinsælan skatt á ferðamenn. Þeir sem koma þarna til skoðunar í nokkrar klukkustundir, án gistingar, eru látnir borga um 700 króna skatt, þeir sem koma á eigin vegum með gistingu fyrir aug- um, eru látnir borga 3.500 krón- ur. Aðeins þeir sem koma í skipulögðum ferðum á vegum ferðaskrifstofa landsins sleppa við þennan óvinsæla skatt. V ■V' Frakkarí London Frakkar hafa aukið mjög komur sínar yfir Ermarsundið síðan Eurostar-lestin hóf göngu sína og aukinn fjöldi franskra ferðamanna kallar á sérhæföa þjónustu fyrir þá. I júní verður opnuð sérstök ferðaskrifstofa fyrir franska ferðamenn á Piccadilly-torgi í London þar sem hægt er að fá gjaldmiðli skipt, hvort heldur sem er í pund eða franska franka. Á skrifstofunni verður einnig veitt þjónusta um feröir 1 Englandi fyrir alla frönskumæl- andi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.