Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Qupperneq 51
JLP-^ÍT LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997
^fikmyndir
Harrison Ford í Devils Own:
Ameríski draumurinn varð að veruleika
)
i
>
i
>
i
„Ég er aðstoðarsögumaður. Það
er alveg eins og að vera þjónn á
bensínstöð. Ég þjóna sex milljón
manneskjum á viku ef ég er hepp-
inn,“ segir leikarinn Harrison
Ford. Hann er flestum lesendum
bíósíðnanna að góðu kunnur enda
hefrn' hann verið vinsæll leikari
til gölda ára. Aðdáendur hans eiga
nú kost á að sjá hann í kvikmynd-
inni Devil’s Own þar sem hann
leikur aðalhlutverkið ásamt Brad
Pitt.
Hann fæddist í Chicago 13. júlí
árið 1942. Hann gekk í Ripon-há-
skólann en hætti mánuði áður en
hann útskrifaðist.
Ford á tvo uppkomna syni, Benj-
amin og Willard, með fyrri eigin-
konu sinni, Mary Marquardt, en
hjónabandi þeirra lauk árið 1979.
Fjórum árum síðar gekk hann að
eiga handritshöfundinn Melissu
Mathison og eiga þau tvö börn
saman, Malcolm og Georgiu.
Þyrnum stráður ferill
Á bak við hverja einustu amer-
íska stórstjörnu virðist vera ein-
hver saga um erfiða lífsbaráttu.
Harrison Ford fæddist ekki bein-
línis með silfurskeið í munni. Fer-
ill hans er þyrnum stráður og ein-
kennist af höfnun og angist vegna
þess. Hann var bláfátækur og
lærði sjálfur að leggja teppi til
þess að sjá sér farborða. En amer-
íski draumurinn verður auðvitað
að veruleika og allt er gott sem
endar vel. Núna þarf Ford ekki að
leggja teppi því hann fær ávísanir
upp á átta stafa tölur (í dollurum)
sendar heim á búgarðinn sinn í
Jackson Hole í Wyoming.
Nördinn í hverfinu
Harrison Ford er mest dáður
sem hetjan á hvíta tjaldinu. Það er
því dálítið kaldhæðnislegt að hann
var allt annað en hetja á bemsku-
árum sínum í úthverfum Des
Plaines í IUinois. Þá var hann nör-
dinn sem hlegið var að og gert
grin að og átti mjög fáa vini. Hann
þótti bæði vonlaus námsmaður og
hinir nemendumir höfðu engan
sérstakan áhuga á að umgangast
hann. Þegar hann var í Main
Township High fékk hann C og D í
einkunn og hékk aðaUega með
stelpunum. (Mörgum hefði þótt
það í lagi). Eftir að Ford útskrifað-
ist fékk hann inni í mjög litlum
menntaskóla, Ripon College í
Wisconsin en sá skóli var talinn
frekar afturhaldssamur. Hann
lærði þar ensku en skólavistin
reyndist honum erfið þar sem
hann var uppreisnarsamur og
neitaði að klippa hár sitt stutt.
Ford segist hafa eytt menntaskóla-
árunum í svefn i stað menntunar.
Sumarleikhús
Á sumrin tók hann þátt í upp-
færslum með leikhúsinu í heima-
bæ sínum. Þegar honum var tU-
kynnt að hann hefði of lélegar ein-
kunnir tU þess að ná prófum yfir-
gaf hann heimkynni sín og hélt tU
borgar englanna. Hann fór í af-
gömlum Volkswagen með æskuást
sinni og eiginkonu Mary Marqu-
ardt og drauminn um að verða
frægur leikari.
Það kom þó fljótt í ljós að margt
var auðveldara heldur en að finna
draumastarfið i leiklistinni. Ford
var mikill nákvæmnismaður
og leikstjórum og fram-
leiöendum veittist
erfitt að vinna með
honum. Hann var
útskúfaður Hjót-
lega frá Col-
umbia og
Universal
vegna sam-
starfsörðug-
leika. Þegar
Ford var
tuttugu og
fjögurra
ára hóf
hann störf
sem teppa-
lagninga-
maður.
Eina
reynsla
hans af
teppalögn var
í gegnum bók
sem hann las.
<? -
Harrison Ford á að baki langan
þyrnum og stjörnum stráðan feril í
leiklistinni.
Hittí George Lucas
Vendipunktur í ferli Fords var
þegar George Lucas bauð honum
aukahlutverk i kvikmyndinni Amer-
ican Graffiti. Ford gekk burt sár-
móðgaður þar sem launin voru
minni en hann hafði fyrir teppalögn-
ina. Sem betur fer skipti hann um
skoðun þar sem vinátta tókst með
honum og Lucas og kvikmyndin sló
í gegn. Vinskapur Fords við Lucas
færði honum hlutverkið sem gerði
hann að smástjörnu, Han Solo í
kvikmyndinni Star Wars. Það var
ekki fyrr en hann lék í Raiders of
the Lost Ark sem Ford datt inn í það
hlutverk sem hentaði honum full-
komlega og hann var fæddur til þess
að leika. Hlutverk hans sem forn-
leifafræöingurinn Indiana Jones
færði honum heimsfrægð og kyn-
táknsímynd og festi hann í sessi sem
leikara.
Hlutverk Fords í kvikmyndinni
Blade Runner festi hann í sessi sem
greindan leikara og hlutverk hans í
Witness varð til þess að hann var til-
nefndur til Óskarsverölauna árið
1985. Kvikmyndaunnendur muna
einnig eftir kvikmyndunum Pres-
umed Innocent, Patriot Games, The
Fugitive og Clear and Present Dan-
ger auk Working Girl. -em
Aheyrendaprufa
fyrir söngleikinn
„EVITU",
sem verbur í íslensku Óperunni
í sumar.
Vib leitum ab hæfileikaríku fólki
(1 7-50 ára), sem getur
sungib og dansab.
Lögb verbur áhersla á lögin:
Don't cry for me Argentina,
Oh what a circus ...,
Another suitcase...
0/7 this night of...
Áhugasamir mæti kl. 10:00
sunnudag 6. apríl í
Islensku Óperuna og taki númer.
Pé-leikhópurinn
1