Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 05.04.1997, Page 19
JL>"^" LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1997 19 menning Meistari „minimalismans", Larry Bell, sýnir á Kjarvalsstöðum: Besti sýningarstaður sem ég hef séð - segir Larry um Kjarvalsstaði og lýsinguna þar Sýning á verkum eftir banda- ríska listamanninn Larry Bell verður opnuð á Kjarvalsstöðum í dag. Hér er á ferðinni með merkari listamönnum sem þar hafa sýnt síðustu ár en Larry hefur oft verið nefndur meistari minimalismans, listastefnu hinna óhlutbundinna myndverka sem Larry og fleiri listamenn komu af stað með sýningu þeirra í New York árið 1966. Einnig hefur verið talað um svokallaða ABC-list. Sýningin á Kjarvals- stöðum nefn- ist „Rýmis- gler“ en þar verða sýndir glerskúlptúr- ar og sam- klippimynd- ir. Verkin byggja ekki á innri tengslum forma held- ur er það heildin and- spænis áhorfandan- um sem skiptir mestu máli. Hluturinn hefur verið einfaldaður í grindur eða bygging- ar, ósnertanleg fyrirbæri eins og t.d. ljós. í sýningarskrá segir Larry m.a. um verkin: „Þessi sýning er um yfirborð og ljós. Pappír og gler eru grunnurinn, efni sem við meðhöndlum daglega til margskyns nota. Hún er líka um tilfinningar. Tilgangur verka minna er að tjá tiifinningar." Larry Bell setti sýninguna upp í vikunni ásamt aðstoðarmönnum sinum og verður viðstaddur opnun- ina í dag. Eftir það ætlar hann að ferðast um landið í nokkra daga ásamt eiginkonu sinni. Góðvinur Errós í viðtali við DV, sem tekið var þegar hann var að setja upp fyrstu verkin í vikunni, sagði Larry að Kjarvalsstaðir væru einstakur sýn- ingarstaður og einhver sá besti sem hann hefði sett upp sýningu á. Lýs- ingin, sem hans list byggðist á, væri einstök. Hann sannfærðist um þetta þegar hann kom hingað fyrst í maí- mánuði 1995 i boði Gunnars Kvar- ans, forstöðumanns Kjarvalsstaða, til að kynna sér aðstæður. Ár var þá liðið frá því Erró kynnti þá Gunnar og Larry á sýningu á verkum eftir Kjarval í París. Larry og Erró hafa nefnilega þekkst í 30 ár og hist með reglubundnum hætti í París. Larry sagðist hlakka til sýningar- innar. Hann reiknaði ekki með að svo margir íslendingar þekktu hans verk en sýningin myndi vonandi bæta þar úr. „Ég vil endilega koma verkum mínum á framfæri við fólk og fá þeirra viðbrögð. Lít á það sem ein- stakt tækifæri. Ég læri alltaf af þeirri reynslu og vona að fólk læri einnig á að skoða verkin mín. Fyr- irfram veit ég ekkert um viðbrögðin hér á íslandi. Eina sem ég veit að hvar sem ég hef komið hafa bömin hrifist af verkunum. Þau gera sér engar væntingar og þannig vil ég hafa það. Kannski að fullorðna fólk- ið vilji sjá meira efni. Ég veit það ekki. En á hverri sýningu er ég að gera tilraunir, vinn ekki eftir for- múlum. Kjarvalsstaðir eru bara út- víkkun á minni vinnustofu. Maður er alltaf að læra eitthvað nýtt,“ sagði Larry. -bjb Larry Bell við hluta af einu gleriistaverkanna á sýningu hans á Kjarvalsstöðum sem hefst í dag og stendur til 11. maí nk. DV-mynd ÞÖK Hljómsveitin Mezzoforte sló í gegn í Norður-Noregi: Sjö daga tór um hjara veraldar Hljómsveitin Mezzoforte er ný- lega komin úr sjö daga tónleikaferð um Norður-Noreg, svæði sem þeir félagar höfðu aldrei leikið á áður. Að sögn Friðriks Karlssonar gítar- leikara heppnaðist ferðin mjög vel og var þeim alls staðar vel tekið, fullt hús í hvert skipti. Þeir spiluðu alveg nyrst í Noregi, í Tromsö og þar í kring, nánast á hjara veraldar. „Staðimir sem við lékum á tóku um 500 manns í sæti. Viðtökumar vom mjög góðar og við mun þekkt- ari þarna en við héldum. Norðmenn á þessu svæði eru afskaplega líkir okkur og þarna er hávetur líkt og á íslandi. Það er ráðgert að fara aftur til Noregs seinna á þessu ári og halda þá tónleika á stærri stöðum sunnar í landinu eins og í Björgvin og Osló. Um leið er fyrirhugað að fara til Svíþjóðar,“ sagði Friðrik í samtali frá London í vikunni, þá ný- kominn frá Noregi. Mættur á ný til að spila í söngleiknum Súperstar og vinna að fleiri verkefnum í stór- borginni. Næsta verkefni Mezzoforte verð- ur að halda tónleika í jassklúbbi í London í nokkrar vikur í sumar. Þess má geta að hljómsveitin fagnar 20 ára afmæli næsta haust og af því tilefni verður heimildarþáttur lík- lega sýndur á Stöð 2. í sveitinni eru sem fyrr, auk Friðriks, þeir Gunn- laugur Briem á trommur, Jóhann Ásmundsson á bassa, Eyþór Gunn- arsson á hljómborð og Óskar Guð- jónsson á saxófón. -bjb $6Íf§£" ; l!!81IP SP: . ii ■ ■>. Bi MMh Bfl:; lílBi t/$i h ** * '3i í Ck sSaff’® wk - \ ' DV-mynd Pjetur ■ Hver var að hringja? Símvakinn CID-1214 Einn fullkomnasti númerabirtirinn hingað tii með eftirtöldum eiginleikum: - Stór og skýr 3ja línu kristalsskjár - Sýnir hver hringdi, hve margir, hvenær og hversu oft - Klukka og dagatal á skjá - Sjálfvirkt Ijós lýsir upp skjáinn fyrir aflestur i myrkri - 50 símanúmera minni - Endurtekið símanúmer notar aðeins 1 minni - Blikkandi Ijós sýnir að ný símanúmer hafi borist - Valhnappur til að hringja í simanúmerið á skjánum - Veggfesting, snúrur og íslenskar leiðbeiningar fylgja mte I Síðumúla 37-108 Reykjavik Sími 588-2800 - Fax 568-7447 , Yáí \ (//cm b%auðstangir Með kryddi og þremur tegundum af osti ofan á. Ljúffengar brauðstangirnar fylgja öllum tilboðspizzum á Hótel Esju. S 533 2000 Hótel Esja • Kringlan $ 1 bemu sambandi í allan sólarhringin £ SVARPSéNIIS™ 11 Svarþjónusta DV leiðir þig átram Þú hrlngir i sima 99-56-70 og velur eftirfarandi: J.: til þess aö svara auglýsingu 2 ; tll þess aö hlusta á svar auglýsandans íSStii (ath.l á eingöngu viö um atvinnuauglýsingar) ef þú ert auglýsandi og vllt ná I svör eöa tala Inn á skllaboöahólfiö þitt 5 •© 903 « 5670®» > •'k+A /J : sýnishom af svarl ^ ; til þess aö fara tll baka, áfram eöa hætta aögerö 2 Hljómsveitin Mezzoforte i sveiflu á tónleikum sem þeir héldu hér á landi sl. haust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.